Morgunblaðið - 29.12.2004, Síða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 10.15. B.i. 14 ára.Sýnd kl. 3.30, 5.45 og 8.
PoppTíví
Hann er á toppnum...
og allir á eftir honum
Framleidd af Mel Gibson
Pottþéttur spennutryllir...
...
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14 ára.
Jólaklúður Kranks
Jólamynd fjölskyldunnar
Sýnd kl. 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10, og 11.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. ÍSLENSKT TAL
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 2, 4, 8 og 10.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. ÍSLENSKT TAL
SMÁAR HETJUR STÓRT ÆVINTÝRI
SMÁAR
HETJUR
STÓRT
ÆVINTÝRII I
BLÓÐBAÐIÐ ER HAFIÐ
VAMPÍRUBANINN BLADE ER MÆTTUR AFTUR
HÆTTULEGRI EN NOKKRU SINNI FYRR
Í I
I I I
kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
GLEÐILEG JÓL
GLEÐILEG JÓL
GLEÐILEG JÓL
VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐII I I I Í I IVIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐII I I I Í I I
ÍSLANDSBANKI ÍSLANDSBANKI
... „séríslenskt
Fönn, fönn, fönn!“
SV MBL
... „séríslenskt
Fönn, fönn, fönn!“
SV MBL
í l
"...bráðvel heppnuð
skemmtun, grín og fjör..."
ÓHT rás 2
... rí l t
, f , f !
... l
t , rí fj r...
r
"...bráðvel heppnuð
skemmtun, grín og fjör..."
ÓHT rás 2
... l
t , rí fj r...
r
SKÁLDSÖGUR Jane Austen hafa
orðið mörgum kvikmyndastjór-
anum ríkulegur innblástur. Pat-
ricia Rozema gerði skemmtilega
mynd eftir Mansfield Park og
gleymum ekki Clueless, klassískri
unglingamynd Amy Heckerling
sem byggðist á Emmu. Konuefni
og kreddur er „Bollywood“-
útgáfan af Hroka og hleypidómum
og er hún býsna forvitnileg kvik-
mynd. Svona klassísk ástarsaga er
auðvitað upplögð í dans- og
söngvamynd og ekki síst þar sem
verið er að fjalla um hjónabönd
þar sem foreldrar ákveða ráðahag-
inn, líkt og gert var á tímum Jane
Austen. En þessi mynd er furðu-
leg blanda af nokkrum tegundum
kvikmynda, og veit ekki í hvaða
fót af mörgum hún vill stíga.
Sagan segir frá Lalitu og þrem-
ur systrum hennar í Amritsar í
Indlandi. Þetta eru fagrar ungar
konur og gjafvaxta, tilbúnar í
hjónabandið, og móðirin meira en
æst í að gefa þær góðum mönnum.
Og nú er á ferð í Indlandi Bingley
nokkur sem alist hefur upp í Eng-
landi og hrífst af systur Lalitu.
Með honum er William nokkur
Darcy, forríkur og fúll bandarísk-
ur hóteleigandi.
Það er stórskemmtileg og
spennandi hugmynd að setja þessa
sögu söngleikjabúning í takt við
indverska Bollywood-hefð en sem
gæti höfðað til vestrænna áhorf-
enda. En sem söngva- og dans-
mynd er hún alls ekki nógu vel
heppnuð. Lögin eru hreinlega lé-
leg, melódíurnar leiðinlegar og
textinn illa skrifaður og innihalds-
laus. Það var mjög erfitt að sitja
undir flestum þeim, nema kannski
helst laginu í lokin sem er
skemmtileg blanda af hefðbundnu
indversku lagi en sem er sungið af
gospelkór. Það kemur bara vel út
og er táknrænt á því augnabliki.
Án þess að ég viti nokkur um
indverska dansa, þá kom mér á
óvart hversu skessulegir dans-
arnir voru yfir höfuð, og get ekki
ímyndað mér annað en að það
hefði mátt koma með fallegri
dansa úr svo dulúðlegu menning-
arsamfélagi sem Indland er. Í
einu atriðinu sem er nokkuð fynd-
ið, dansar ein systirin slöngudans,
og þar loksins sér maður áhuga-
verðan dans, en þá er allt í gríni.
Myndin er þó oftast mjög falleg
og flest hópatriðinu einstaklega
litrík. Sjaldan hef ég séð jafnmikið
af fallegum fötum í einni mynd.
Ríki Kaninn varð ósköp litlaus í
sínum fínu Boss-jakkafötum, á
móts við Indverjana sem voru
stórkostlegir til fara.
Öfugt við margar kvikmyndir
var myndin ansi leiðinleg fyrri
helminginn en lifnar öll við í þeim
seinni. Því má helst kenna um að
persónurnar voru svo leiðinlegar.
Eins og við öll vitum er Darcy
stífur og leiðinlegur og á að vera
það til að byrja með. Það sem
tekst hins vegar ekki að koma til
skila hér er dýpt persónanna í
skáldsögunni, einsemdin sem hrjá-
ir þau og hræðslan. Darcy og vinir
eru einfaldlega óheillandi og
klisjukenndar snobbhænur. Fínu
drættirnir hafa flogið út um
gluggann og allt sem við fáum eru
flatar og yfirborðskenndar týpur.
Og ekki nóg með það, heldur er
Elizabeth Bennet myndarinnar,
hin fagra Lalita, líka leiðinleg.
Textinn sem hún fær er fárán-
legur, en það er hlutverk hennar í
Forvitnileg furðumynd
KVIKMYNDIR
Regnboginn og Laugarásbíó
Leikstjórn: Gurinder Chadha.
Handrit: Paul Mayeda Berges og Gur-
inder Chadha eftir skáldsögu Jane Aust-
en Pride and Prejudice. Kvikmyndataka:
Santosh Sivan. Aðalhlutverk: Aishwarya
Rai, Martin Henderson, Daniel Gillies,
Naveen Andrews, Namrata Shirodkar,
Indira Varma og Nadira Babbar. BNA/
Bretland. Pathé 2004.
Konuefni og kreddur (Bride & Prejudice)
Aishwarya Rai fer með aðal-
hlutverkið í Bride & Prejudice.