24 stundir - 18.12.2007, Blaðsíða 8

24 stundir - 18.12.2007, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2007 24stundir Brottkast þorsks á árinu 2006 var 2.754 tonn eða 1,5 prósent af lönduðum afla, samkvæmt nýrri skýrslu frá Haf- rannsóknastofn- un, en greint er frá henni á vefn- um skip.is. Brott- kast ýsu var 2.452 tonn eða 2,6 prósent af lönduðum afla. Þá var samanlagt brottkast þessara tegunda að jafnaði um 6,2 milljónir fiska á ári frá 2001 til 2006. ibs Brottkast þorsks og ýsu Sex milljónum fiska hent hótað lögreglumönnunum lífláti og var sú hótun talin hafa verið til þess fallin að vekja hjá lögreglu- mönnunum ótta um velferð sína. Ekki þótti skipta máli í því sam- bandi þótt maðurinn hefði verið undir talsverðum áhrifum áfengis þegar hann lét þessi orð falla. mbl.is Héraðsdómur Austurlands hef- ur dæmt karlmann á þrítugsaldri í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hóta tveimur lög- reglumönnum lífláti og slá annan þeirra. Þá var maðurinn einnig dæmdur til að greiða sýslumann- inum á Eskifirði 35 þúsund krónur í bætur fyrir skemmdir, sem hann vann á fangaklefa. Þetta gerðist í janúar á þessu ári. Dómurinn taldi sannað, að mað- urinn hefði hótað lögreglumönn- unum með orðunum „þetta er þitt síðasta verk,“ þegar þeir höfðu af- skipti af honum. Þóttu þessi orð ekki verða skilin á annan veg en þann að maðurinn hefði með þeim Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi Hótaði löggunni Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is Meirihluti bæjarráðs Hafnarfjarðar vill selja Orkuveitu Reykjavíkur (OR) 95 prósenta hlut bæjarins í Hitaveitu Suðurnesja (HS) á rúm- lega sjö og hálfan milljarð króna. Bærinn á í dag um fimmtán pró- senta hlut í HS en mun eiga undir einu prósenti verði salan að veru- leika. Í staðinn vill Hafnarfjörður fá að kaupa hlut í OR. Hafa þegar rætt við OR Gunnar Svavarsson, fulltrúi Hafnarfjarðar í stjórn HS, segir viðræður við OR þegar hafa farið fram. „Ég held að það sé vilji innan Orkuveitunnar og eigendahóps hennar til að fá Hafnfirðinga þar inn og því er auðvitað spennandi fyrir okkur að stíga það skref. Okk- ur þótti ekki ásættanlegt að fara þar inn á sínum tíma á meðan við vær- um enn í Hitaveitunni, en síðan hafa þessir hlutir verið á fljúgandi ferð. Við viljum því fjárfesta og tryggja okkur í báðar áttir.“ Mörgu í tillögunni sem var sam- þykkt í gær svipar til svokallaðrar sáttartillögu sem lögð var fyrir stýrihóp Svandísar Svavarsdóttur um málefni OR. Í henni kom með- al annars fram að skipta ætti HS upp í þrjú félög. Gunnar segir það einfaldlega eiga eftir að koma í ljós hvort þetta verði fyrsta skrefið í átt að frekari breytingum á HS. „Það má vel vera að þessi ákvörðun okk- ar og lagaumgjörðin sem boðuð hefur verið þýði að menn vilji skoða það betur að skipta Hitaveit- unni einhvern veginn upp. Það verður bara að koma í ljós.“ Eiga ekki lengur dreifikerfi sitt Árni Sigfússon, stjórnarformað- ur HS, segir ákvörðunina í sam- ræmi við hluthafasamkomulagið frá því fyrr í sumar og að hún segi ekkert um frekari breytingar á rekstrarformi HS. „Samkomulagið segir ekkert til um neinar breyt- ingar á rekstrarfyrirkomulagi og þessi ákvörðun ein og sér breytir engu þar um. En ef Hafnarfjöður selur hlut sinn í Hitaveitunni þá stendur bærinn frammi fyrir því að Hafnfirðingar eigi ekki lengur dreifikerfi sitt. Það er bara þannig.“ Vilja selja í HS og kaupa í OR  Hafnfirðingar vilja selja OR hlut sinn í HS  Viðræður hafa þeg- ar átt sér stað  Mögulega fyrsta skrefið í átt að frekari breytingum Hitaveita Suðurnesja Miklar hræringar hafa verið í eignarhaldi fyrirtækisins á liðnu ári. ➤ Þann 11. júlí í sumar undirrit-uðu eigendur Hitaveitu Suð- urnesja hluthafasam- komulag. ➤ Þar kom fram að aðrir eig-endur myndu ekki nýta for- kaupsrétt sinn ef Hafnfirð- ingar seldu OR hlut sinn í félaginu. Samkomulagið gild- ir fram yfir áramót. HLUTHAFASAMKOMULAG Matseðill: Blandaðir síldarréttir Kæst skata, saltiskur og saltfisk réttur Stóruvalla-hamsatólg Verð kr 2.950- Engin biðröð Skatan beint á borðið Veitingahúsið Einar Ben Veltusund 1 (við Ingólfstorg) S: 511 5090 einarben@einarben.is SKRUDDA Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is www.skrudda.is Þessi sígildu verk Charles Dickens og Jules Verne í myndasöguformi. Frábærar bækur handa börnum frá 10 ára aldri. ER ROSALEGUR GEFUR ÞÚ BARNINU BÓK Í JÓLAGJÖF? Fyrsta bókin í frábærum bókaflokki um Skelmi Gottskálks og Valkyrju Kain. Æsispennandi frá upphafi til enda. Fyrsta bókin í nýjum flokki um Spiderwick- fólkið. Enn meira spennandi en fyrri bækurnar. Heillandi ævintýri handa krökkum frá 9 ára aldri. Jólasveinarnir koma einn af öðrum til byggða síðustu dagana fyrir jól. Hver kemur fyrst? Hver rekur lestina? Í þessari bók er allt á sínum stað, líka Grýla, Leppalúði og jólakötturinn. Yndisleg og gullfalleg jólabók.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.