24 stundir - 18.12.2007, Blaðsíða 48
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
Nýjasta kvikmynd Will Smith gerði
sér lítið fyrir um síðastliðna helgi
og sló met sem myndin Lord of the
Rings: The Return of the King átti
áður, þegar hún átti bestu frum-
sýningarhelgi desembermánaðar.
Þegar Return of the King var
frumsýnd árið 2003 halaði hún inn
72,6 milljónir dollara fyrstu
helgina. Nú hefur I am Legend
bætt um betur en hagnaður af
henni yfir frumsýningarhelgina var
76,5 milljónir dollara, eða ríflega
4,8 milljarðar íslenskra króna.
Þótt þessi árangur sé býsna góð-
ur nær myndin þó ekki nema 16.
sæti á listanum yfir bestu frumsýn-
ingarhelgar allra tíma.
Palli var einn í heiminum
Það er óhætt að fullyrða að um-
fjöllunarefni I am Legend sé ekki í
takt við hinn hefðbundna jóla-
anda. Myndin segir frá manni að
nafni Robert Neville sem er, að öll-
um líkindum, síðasti maðurinn á
jörðinni eftir að skelfilegur vírus,
sem er manngerður og átti að vera
lækning við krabbameini, hefur
gengið yfir heimsbyggðina og fellt
um 90 prósent mannkyns.
Þeir sem smitast af þessum vírus
deyja þó ekki heldur breytast í ein-
hvern óskapnað sem nærist á þeim
sem veiktust ekki af vírusnum. Í
myndinni er fjallað um lífsbaráttu
Neville á götum New York-borgar
sem er svipur hjá sjón eftir að öll
siðmenning hefur farið til fjand-
ans.
Vinsæl saga
Kvikmyndin I am Legend er
byggð á samnefndri vísindaskáld-
sögu eftir rithöfundinn Richard
Matheson frá árinu 1954.
Saga hans hefur þrívegis verið
kvikmynduð en söguþráður hinn-
ar nýju myndar á lítið sameiginlegt
með hinni upprunalegu bók þar
sem bæði endi sögunnar og lyk-
ilatriðum hennar hefur verið
breytt mjög mikið. Myndin hefur
fengið misjafna dóma gagnrýn-
enda en hún verður frumsýnd á Ís-
landi 26. desember.
Kvikmyndin I am Legend er vinsælust vestanhafs
Mynd Will Smith
slær aðsóknarmet
➤ Fyrsta myndin sem byggð vará sögunni var The Last Man
on Earth árið 1964 og skart-
aði hún Vincent Price í aðal-
hlutverki.
➤ The Omega Man var svo gerðárið 1971 og þá var ekki
ómerkari maður en Charlton
Heston í aðalhlutverkinu.
I AM LEGEND
Kvikmyndin I am Legend
sló um síðastliðna helgi
fjögurra ára gamalt met
er hún átti bestu frumsýn-
ingarhelgi desembermán-
aðar. Will Smith fer með
hlutverk manns sem er
líklega síðasti maðurinn á
jörðinni, að utanskildum
skrímslunum.
Brenndur maður forðast
skrímslin Þegar þú ert um-
kringdur milljónum skrímsla er
öruggara að vera vel varinn.
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Nýjasta kvikmynd Wills Smiths gerði sér lítið
fyrir um síðastliðna helgi og sló met, sem
myndin Lord of the Rings: The Return of the King
átti áður.
48 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2007 24stundir
Peter Jackson ætlar að sjá til þess
að leikarinn Andy Serkis hafi nóg
að gera en hinn knái leikstjóri
hefur nú opinberað að Serkis
komi til með að leika í hinum
þremur væntanlegu Tinnamynd-
um sem Jackson er að undirbúa
ásamt Steven Spielberg.
Jackson hefur fullyrt að Serkis
komi ekki til greina sem hinn æv-
intýragjarni Tinni en margir
standa í þeirri trú að Serkis sé
ætlað að fara með hlutverk Kol-
beins kafteins, hins bölvandi og
sídrekkandi félaga Tinna.
Jackson ætti ekki að vera ókunn-
ur verkum Serkis því hann hefur
tvívegis leikið í myndum Jack-
sons, fyrst lék hann Gollum í
Hringadróttinssögu og svo of-
vöxnu górilluna Kong í stór-
myndinni King Kong. vij
Serkis leikur í
Tinnamyndum
Sú var tíðin að Medal of Honor-
leikirnir voru hápunkturinn á hverju
ári skotleikjaunnandans. Nú hefur
gæðastimpill seríunnar horfið sömu
leið og diskótónlistin og fótanudd-
tækin. Medal of Honor Airborne
reynir að blása lífi í leikjaröðina með
því að láta hvert borð hefjast á því að
leikmaðurinn stekkur út úr flugvél
og notar síðan fallhlíf til að stýra falli
sínu til jarðar.
Í Medal of Honor Airborne fer
leikmaðurinn í fótspor Boyd Tra-
vers, fallhlífahermanns sem hefur
fengið það sígilda verkefni að frelsa
Evrópu undan ofríki og illsku nas-
istanna. Grafík leiksins er vel fyrir
neðan það sem maður myndi kalla
viðunandi og ofan á það bætist síð-
an þó nokkuð hikst í spilun leiksins
þegar hasarinn hefst fyrir alvöru.
Því er það hægara sagt en gert að
þurrka út hersveitir nasista ef mað-
ur sér ekkert hvert eða hvað maður
er að skjóta.
Stjórnkerfi leiksins er vægast sagt
óþægilegt, þó venst það með tím-
anum en verður aldrei það gott að
gott flæði komi á leikinn. Það er
vissulega hægt að kreista nokkra
dropa af skemmtun út úr leiknum
en þeir eru fáir og alltof dýru verði
keyptir.
Hikstandi í háloftum
MEDAL OF HONOUR AIRBORNE
PS3
16+
Viggó Ingimar Jónasson viggo@24stundir.is
67%=
SPILUN: 56%
ENDING: 68%
GRAFÍK: 59%
HLJÓÐ: 86%
X-treme Power
Allt að 80% meira ljós.
FÆST Á ÖLLUM
BENSÍNSTÖÐVUM SKELJUNGS
www.stilling.is // stilling@stilling.is
NÝJAR H4 og H7
bílaperur frá
Skeifan 11, 108 Reykjavik | Bíldshöfði 12, 110 Reykjavík
Smiðjuvegur 68, 200 Kópavogur | Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður
Draupnisgata 1, 600 Akureyri | Eyrarvegur 29, 800 Selfoss. | Sími: 520-8000
Serblad 24 stunda
Auglysingasimi
Katrin s.510 3727 / kata@24stundir.is
KOLLA s. 510 3722 / kolla@24stundir.is
Heilsa
4.januar 2008