24 stundir - 18.12.2007, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2007 24stundir
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
Það hefur verið vaxandi aðsókn hjá
okkur núna á aðventunni en um 15
til 20.000 gestir heimsækja okkur á
ári, flestir erlendir á sumrin. Nú í
desember erum við með sérstakan
aðventumatseðil og erum líka í sam-
starfi við jólasveinana sem búa í
Dimmuborgum. Þeir koma og
heimsækja okkur um helgar klukkan
hálfsex, á mjaltatíma, segir Ólöf Hall-
grímsdóttir, eigandi kaffihússins.
Hrátt hangkjöt með kotasælu
Á aðventumatseðlinum má finna
margt þjóðlegt, meðal annars
hverabrauð, hangikjöt og reyktan
silung. Auk þess er á matseðlinum
heimagerður mosarella- og fetaost-
ur framleiddur á staðnum. „Hver-
arúgbrauðið er bakað við jarðhita í
sólarhring og það notum við mjög
mikið með öllum réttum. Síðan
bjóðum við upp á hrátt hangikjöt
sem við berum fram með kotasælu
og heimagerðri bláberjasultu, en
þetta þrennt fer mjög vel saman.
Fólki finnst hráa hangikjötið mjög
gott og vinsældir þess hafa tekið
kipp, en er það kjörið í smá- og for-
rétti. Að reykja kjötið tekur sinn
tíma þar sem það tekur lágmark tíu
daga upp í hálfan mánuð og síðan
er það látið hanga eftir á. Í fetaost-
inn sem við framleiðum tínum við
villtar jurtir eins og blóðberg og
birki og förum svo út í eyjar hér
skammt undan og tökum hvanna-
rfræ sem við notum í olíuna þannig
að osturinn fær svolítinn keim af
villijurtum. Fetaosturinn þarf um
viku til að verða góður, en hann er
bestur eftir að hafa legið dálítinn
tíma í olíunni. Mosarellaosturinn er
þægilegri í framleiðslu en hann er
búinn til í dag og borðaður á morg-
un. Einnig erum við ætíð með gúll-
assúpu á matseðlinum og notum
einungis okkar kjöt í hana eins og
annað en það má segja að einkunar-
orð okkar séu þú ert það sem þú
borðar og því viljum við vita hvað-
an hráefnið kemur. Loks verkum
við og taðreykjum silung sam-
kvæmt okkar gömlu hefðum en
fiskinn kaupum við hjá eldisstöð í
Kelduhverfi,“ segir Ólöf.
Mývetnskar gjafakörfur
Fyrir jólin er einnig hægt að
kaupa mývetnskar matarkörfur í
Vogum en í þær getur fólk valið úr
þeim matvælum sem framleidd eru
á staðnum. Auk þess er hægt að
setja í körfurnar konfekt jólasvein-
anna í Dimmuborgum og nýja spil-
ið Fiskispil, sem er hönnun stráks
úr Mývatnssveitinni. Segir Ólöf að
vinsældir hafi verið vonum framar
og sé hangikjötið af veturgömlu svo
til uppselt. Körfurnar eru sendar
víða um land og þær er hægt að
panta í síma 464 4344.
Aðventumatseðill á kaffihúsinu í Vogum í Mývatnssveit
Heimatilbúnir ostar
og hrátt hangikjöt
➤ Notast við matvæli frá bónda-bæjum í nágrenninu, svo sem
grænmeti og ís.
➤ Tekur á móti hópum á að-ventunni með öllu tilheyr-
andi.
➤ Hefur til sölu mývetnskargjafakörfur fullar af heima-
gerðu góðgæti sem hafa ver-
ið afar vinsælar.
KAFFIHÚSIÐ Í VOGUM
Kaffihúsið í Vogum í Mý-
vatnssveit er innbyggt í
fjósið á bænum. Þar er í
boði þjóðlegur matur á
aðventunni en kaffihúsið
er nú opið um helgar
fram til 23. desember.
Vinsælt Hráa hangikjötið er
mjög vinsælt og borið fram
með sultu og kotasælu.
Fyrir þá sem vilja ekki alveg tapa
sér í konfektinu um hátíðarnar er
tilvalið að hafa skálar af ávöxtum,
hnetum og rúsínum um allt hús.
Konfektátið stafar oft hreinlega af
leiða og vegna þess að það er uppi
við. Að sama skapi er tilvalið að
hafa hollari valkost í boði og þá
eru minni líkur á að konfektið sé
alltaf valið. Best er að skera ávext-
ina niður því þá eru þeir aðgengi-
legri auk þess sem meiri líkur eru
á að fólki næli sér í bita, séu þeir
niðurskornir og lokkandi. Hnetur
og rúsínur eru að sama skapi góð-
ur kostur og seðja þessa sæt-
indaþörf, sem hellist yfir marga á
jólunum.
Hollt nasl
á jólunum
Söluaðilar.: Garðheimar - Húsasmiðjan - EGG - Búsáhöld, Kringlunni - Pottar og Prik, Akureyri
www.weber.is
hnífaparatöskur
Jólatilboð
www.pottar.is
Pöntunar sími 897-0513
Sýni vörurnar í heimahúsum á höfuðborgarsvæðinu ef óskað er.
72 hlutir, verð 16.000 krónur
gyllt eða stál
114 hlutir, aðeins 25.000 krónur
stál
Ice-Atlantic ehf.
Serblad 24 stunda jolablad
Kolbrun S.510 3722 Kolla@24stundir.is Katrin s.510 3727 Kata@24stundir.is