24 stundir - 18.12.2007, Page 31

24 stundir - 18.12.2007, Page 31
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2007 31 Hátíðarmaturinn krefst und- irbúnings og er nauðsynlegt að skipuleggja sig vel áður en hafist er handa. Sumt er hægt að und- irbúa snemma í desember og frysta í allt að eina til tvær vikur. Byrjaðu degi fyrr Á Þorláksmessu skal fara yfir allt sem nota á í jólamatinn og ganga úr skugga um að ekkert vanti til matargerðarinnar. Eftirréttinn má gera tilbúinn á Þorláksmessu og jafnvel fyrr, til dæmis ef um heimatilbúinn ís er að ræða en hann má búa til snemma þar sem hann er hvort sem er frystur. Ef borinn er fram kalkúnn á aðfangadag skal ekki gleyma því að það tekur nokkra daga að affrysta fuglinn í ísskáp. Ef fuglinn er fylltur má búa til fyllinguna og setja hana inn í fuglinn á Þorláksmessu sem gefur enn betra og meira bragð og eins má fara að huga að sós- unni. Það er tilvalið að búa til soðið sem á að setja út í sós- una. Leggðu á borð og ljúktu við að stússast í skreytingum á heimilinu tímanlega þannig að ekkert þurfi að huga að þess háttar umstangi. Hafðu eldunartímann á öllu sem á að elda á hreinu þannig að þú byrjir nógu snemma að matbúa á aðfangadag. Á aðfangadagsmorgun Undirbúðu allt snemma þannig að þú eigir einhvern ró- legan tíma yfir daginn. Ef sósan er ekki tilbúin byrjaðu þá á henni þar sem hún má malla góða stund. Settu kjötið tím- anlega í ofninn og ef þú ert ekki með forsoðnar kartöflur settu þá kartöflurnar í suðu. Taktu til það meðlæti sem á að vera með matnum og settu í skálar. Brúnaðu kartöflurnar á meðan steikin mallar. Það tekur tíma að undirbúa jólamatinn Tímanlega í jólamatinn Jólamaturinn Það getur tekið langan tíma að undirbúa mat- inn um hátíðarnar og ætti að hefjast handa í tíma. 24 stundir/Þorkell Held ekki fast í hefðirnar Sigmundur Ernir Rúnarsson, forstöðumaður fréttasviðs Stöðvar 2 „Ég er dálítið frjálslegur í þessu og held ekki endilega fast í hefðirnar. Við höfum því prófað að hafa ýmislegt í jóla- matinn, allt frá saltfiski til hangikjöts. En ætli við verðum ekki með humar í forrétt þetta árið og í aðalrétt verður pur- usteik sem ég elda með sér- stökum hætti. Við eldum jóla- matinn saman enda er ég vaskur í eldhúsinu,“ segir Sig- mundur Ernir og hlær. „Aðal- atriðið er að gefa sér góðan tíma til að elda og framreiða jólamatinn. Við erum líka allt- af með hangikjöt og hamborg- arhrygginn á sínum stað og oftast er það kalkúnn á gaml- árskvöld. Við kryddum þetta líka aðeins með því að hafa líka ýmsa fiskrétti svo maður fái ekki hundleiða á kjöti.“ Þóra Tómasdóttir sjónvarpskona „Það verður frjáls aðferð í eldhús- inu þessi jólin. Flestir úr minni fjölskyldu verða erlendis og ég ætla því að hafa eitthvað fljótlegt, ætli það verði ekki hreindýr, car- paccio og eitthvað óvænt og óhefðbundið. Ég hef yfirleitt borðað rjúpu en það hefur breyst undanfarin ár. Ég þekki ekki nægilega góðar skyttur, það hefur að minnsta kosti enginn fært mér rjúpur í ár og ég þarf því að velja það sem er næst efst á óskalistanum. Rjúpan er besta villibráðin og ég á eflaust eftir að sakna hennar á jólunum en ég borða hana á áramótunum í stað- inn. Það er algjörlega óráðið hvað verður í matinn aðra jóladaga og ég er ekki einu sinni farin að hugsa út í það. Þetta verða mjög óvenjuleg jól hjá mér. Eina mark- miðið með jólunum núna er að það verði ekkert stress og ég nenni ekki að eyða heilum dögum í eld- húsinu, ég ætla bara að slaka á.“ Óhefðbundin jól án streitu JÓLAMATURINN? Nýárskvöld í Perlunni Sími: 562 0200 · Fax: 562 0207 · perlan@perlan.is · www.perlan.is Hr ing br ot Gjafabréf PerlunnarGefðu einstaka kvöldstund í jólagjöf!

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.