24 stundir - 18.12.2007, Qupperneq 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2007 24stundir
Þrátt fyrir að malt og appelsín
standi alltaf fyrir sínu vill fólk oft
drekka eitthvað annað um hátíð-
irnar, og ekki síst á gamlárskvöld
þegar margir lyfta sér upp. Á
gamlárskvöld freistast fólk oft til
að prófa eitthvað nýtt en láta það
gamla lönd og leið. Þótt margir
kjósi fremur áfenga drykki eru síst
færri sem vilja óáfenga en ljúf-
fenga drykki. Hvort heldur sem er,
þá er tilvalið að prófa nýja drykki
og oft er netið gagnlegt í leit að
þeim. Hér eru til að mynda þrír
ljúffengir drykkir sem hægt er að
gæða sér á á gamlárskvöld sem og
önnur kvöld.
Klassískur kampavínskokteill
Sítrónusafi
Síróp
Kampavín
Gin
Setjið sítrónusafann í
hristara og bætið sírópi út í.
Fyllið hristarann af kampavíni
og gini. Berið fram í kampa-
vínsglasi.
Líflegur sparidrykkur
Ávaxtasafi að eigin vali
Sprite eða sódavatn.
Blandið saman í könnu, smakk-
ið til og hellið í glös. Það er til-
valið að skreyta glösin með app-
elsínu- eða sítrónusneiðum.
Blóðuga marían
100 g klaki
175 ml vodka
örlítið af sellerífræjum
skvetta af sérríi
skvetta af Worcestershire-sósu
1 msk. kremuð piparrót
1 lítri tómatsafi
sítrónusneiðar
Tabasco-sósa
sellerístilkar
Setjið klaka, vodka, sellerífræ, sérrí,
Worcestershire-sósu, piparrót og tóm-
atsafa í stóra könnu og hrærið vel. Renn-
ið sítrónusneiðum meðfram barmi glas-
ins og hellið blöndunni í glasið. Berið
fram með Tabasco sósu og selleríi.
Kampavínskokteill og líflegur sparidrykkur
Ljúffengir drykkir á gamlárskvöld
Áramót Það er alltaf gaman að prófa að skála í nýjum drykkjum.
200 g smjör
175 g sykur
1 matskeið síróp
550 ml hveiti
1 teskeið matarsódi
50 g möndlur
Blandið saman smjöri, sykri og
sírópi. Bætið söxuðum möndlum
út í ásamt hveiti og matarsóda.
Hnoðið deigið og mótið í kúlur.
Bakið við 200 gráður í 15 mín-
útur.
Sænskar
jólakökur
Í Belgíu er hefð fyrir því að baka
jólabrauð í líki Jesúbarnsins.
Brauðið er búið til úr hveiti, eggj-
um, mjólk, geri, rúsínum og
sykri. Brauðið er yfirleitt borið
fram á jóladag með bolla af heitu
súkkulaði. Ýmsar útgáfur eru til
af brauðinu og fer það eftir
landssvæðum hvað brauðið kall-
ast, hver uppskriftin er nákvæm-
lega og með hverju brauðið er
borið fram.
Jólabrauð í líki
Jesúbarnsins
Það eru ekki aðeins Íslendingar
sem gera vel við sig í mat og drykk
um jólin. Í fyrra snæddu 60 millj-
ónir Breta um 11 milljónir kalkúna
sem þeir skoluðu niður með 142
milljónum lítra af bjór og 40 millj-
ón léttvínsflöskum. Um 3 millj-
ónum tonna af rusli er fargað yfir
jólin í Bretlandi og 10 milljónir
plastpoka eru notaðir við inn-
kaupin. Um 16.000 tonn af jóla-
matnum enda í ruslinu.
Jólamaturinn
endar í ruslinu
Súkkulaði tilheyrir tvímælalaust lysti-
semdum lífsins. Rannsóknir hafa einnig
sýnt fram á að hófleg neysla á dökku
súkkulaði hefur góð áhrif á heilsufar fólks.
Meðvitund neytenda og þekking þeirra á
súkkulaði vex stöðugt. Því leggur Nói Síríus
metnað í að uppfylla óskir viðskiptavina sinna
og bjóða þeim gæðavörur úr úrvals hráefni.
Kökur og konfekt, eggjandi eftirréttir, tertur
og töfrandi drykkir. Lykilinn að öllum þessum
guðdómlegu dásemdum er að finna í Síríus
súkkulaðinu – stolti Nóa Síríus. Njótið vel!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Síríus Konsum
Suðusúkkulaði er samheiti yfir
dökkt, mjólkurlaust súkkulaði
sem nefnist Síríus Konsum og
er með 45% kakóinnihaldi.
Súkkulaðiunnendur vita að
Sírius Konsum er frábært
hráefni í bakstur, matargerð,
súkkulaðidrykki og ljúffenga
eftirrétti og ekki síðra sem
átsúkkulaði, enda uppáhald
margra.
Síríus Konsum Orange
Síríus Konsum Orange er eins
og venjulegt Konsum, að
viðbættri náttúrulegri
appelsínuolíu, sem gefur
ljúffengan appelsínukeim.
Síríus rjómasúkkulaði
Síríus rjómasúkkulaði hefur
öðlast sess sem vinsælasta
átsúkkulaði Íslendinga.
Bragðið er sérlega ljúft og milt
og flestir borða það bara eitt og
sér. Síríus rjómasúkkulaði fæst
bæði hreint og bragðbætt – og
þá ýmist með rúsínum,
kornkúlum og hnetum eða
bæði hnetum og og rúsínum.
Síríus 56%
Síríus 56% hefur meira
kakóinnihald en Konsum.
Súkkulaðibragðið er ósvikið líkt
og í öðrum Konsum súkkulaði-
plötum og sver sig í ættina
hvað bragð og gæði snertir.
Síríus 70%
Mikið og afgerandi súkkulaði-
bragð, með mikilli fyllingu.
Kakóinnihaldið er eins og
nafnið gefur til kynna 70%.
Í dökku súkkulaði er mikið
magn af andoxunarefninu
epicathecin sem hefur góð
áhrif á hjartað og virkar eins og
vítamín, víkkar æðar og bætir
blóðrennsli.
www.noi.is