24 stundir - 07.02.2008, Síða 1
24stundirfimmtudagur7. febrúar 200826. tölublað 4. árgangur
Ragnhildur Björg Guðjónsdóttir,
varaformaður Neytendasamtak-
anna, telur að fólk þurfi að gæta
að sér í tryggingakaupum. Oft
telur fólk sig betur tryggt
en síðar reynist.
Margir tvítryggðir
SPARIBAUKURINN»30
Hany Hadaya ætlar að taka þátt í
tangómaraþoni sem haldið verður í
Iðnó á laugardaginn og stendur yfir
í sólarhring en hann segir að slíkar
uppákomur njóti sívaxandi vin-
sælda erlendis.
Tangó í sólarhring
MENNING»28
Samkeppni í raf-
orku litlu skilað
NEYTENDAVAKTIN »4
0
-2
0 -1
1
Leita þurfti aðstoðar slökkvi-
liðs þegar átta ára drengur
festist í handjárnum sem
hann fann í svefnherbergi
móður sinnar.
„Litli strákurinn kom á
slökkvistöðina með ömmu
sinni og handjárnin voru föst
við annan úlnlið hans,“ segir
Dan French, slökkviliðsmaður
í Portsmouth. Beita þurfti
klippum á járnin, enda voru
þau úr sérhertu stáli og alls
ekki hugsuð sem leikföng. aij
8 ára fastur í
handjárnum
GENGI GJALMIÐLA
SALA %
USD 66,15 +0,55
GBP 129,69 +0,47
DKK 13,02 +0,55
JPY 0,62 +0,81
EUR 97,07 +0,55
GENGISVÍSITALA 127,34 +0,55
ÚRVALSVÍSITALA 5.102,39 -2,48
Vísbendingar eru um að upplýs-
ingar um laun og vaktatöflu
læknaritara á Landspítalanum hafi
borist aðilum sem sýnt hafa ritun
sjúkraskráa utan sjúkrahússins
áhuga, að sögn Ögmundar Jón-
assonar, þingmanns og formanns
BSRB. Hann veltir fyrir sér mögu-
legum hagsmuna-
tengslum aðilanna.
Gögn um laun
frá Lansa út í bæ
»2
Fólksbílar sem skráðir voru á karla
í fyrra voru 115.996. Á konur var
hins vegar skráður 65.061 fólksbíll.
Þrefalt fleiri Land Cruiser og Benz
E voru skráðir á karla en á konur.
Ungar konur sem skráðar eru fyrir
bílum skrá eiginmenn sína sem fé-
laga í Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda.
Fleiri og dýrari
bílar í eigu karla
»2
Fangelsimál voru til umræðu á Al-
þingi í gær þegar Ágúst Ólafur
Ágústsson bar upp fyrirspurn til
dómsmálaráðherra um heimsókn-
araðstæður fanga. Í svari Björns
Bjarnasonar kom fram að hann
vildi ekki tímasetja verklok á fram-
kvæmdum sem eiga að
bæta þær aðstæður.
Fangelsismál til
umræðu á þingi
»8
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
„Ég kom alls staðar að lokuðum
dyrum. Ég reyndi allt til að veita
honum hjálp en það var engin úr-
ræði að hafa í kerfinu.“ Þetta segir
móðir Ásgeirs Hrafns Ólafssonar,
sem rændi útibú Glitnis banka í
Lækjargötu sl. mánudagsmorgun.
Ásgeir Hrafn hefur verið í fíkni-
efnaneyslu frá fjórtán ára aldri.
Hann hefur margítrekað brotið af
sér, brotist inn og framið vopnuð
rán. Móðir hans hefur leitað á náð-
ir allra mögulegra meðferðarstofn-
ana en hlotið litlar undirtektir.
Hún segir kerfið hafa brugðist.
Lenti í vondum félagsskap
„Ásgeir var fyrirmyndarbarn.
Hann stóð sig frábærlega í skólan-
um, var mikill íþróttamaður og
hvers manns hugljúfi. Við fluttum
heim til Íslands vorið 2001 frá
Danmörku. Veturinn áður hafði
hann eitthvað verið farinn að fikta
við drykkju en ég hélt að ég hefði
tekið á því. Þegar við komum heim
lenti hann í félagsskap sem var ekki
sá besti. Veturinn eftir, þegar hann
var í níunda bekk, hallaði undan
fæti í skólanum hjá honum. Ég
skildi ekkert í því hvað var að ger-
ast fyrr en ég heimtaði að hann
tæki fíkniefnaprufur og þær sýndu
fram á að hann var í bullandi
neyslu.“
Hefði þurft úrræði strax
Móðir Ásgeirs Hrafns segir að
hún hafi haft samband við barna-
verndaryfirvöld í Reykjavík og leit-
að eftir úrræðum fyrir son sinn.
„Ég fékk þau svör að það væri ekk-
ert hægt að gera strax í málinu. Það
þyrfti að fara í gegnum alls konar
pappírsvinnu og það myndi taka
að minnsta kosti þrjá mánuði. En
málið var það að á þessum tíma var
Ásgeir Hrafn tilbúinn til að taka á
sínum málum og það hefði þurft
að finna handa honum úrræði
strax, áður en ástandið versnaði.“
Kerfið brást
Móðir pilts sem rændi útibú Glitnis banka segir vanta úrræði
fyrir unga afbrotamenn Hefði þurft að bregðast miklu fyrr við
SKILNINGSLEYSIÐ ÆPANDI»6
➤ Ránið í útibúi Glitnis í Lækj-argötu er annað bankaránið
sem Ásgeir Hrafn fremur.
➤ Hann rændi útibú SPRON íMjóddinni árið 2004.
➤ Ásgeir Hrafn hefur verið íneyslu frá fjórtán ára aldri.
ENDURTEKIN AFBROT
„Það er búið að vera svakalega mikið að gera hjá okkur í dag,“ segir Hanna María Siggeirsdóttir lyfjafræðingur í
Laugarnesapóteki en starfskonur apóteksins klæddu sig allar upp í búninga í gær í tilefni öskudagsins. Hún segir
viðbrögð krakkanna hafa verið mjög skemmtileg. „Svipurinn á þeim þegar þau sáu að við vorum í búningum –
það bara datt af þeim andlitið,“ segir hún. „Fullorðnir viðskiptavinir brostu líka en það var enginn í búningi.“
Öskudegi fagnað í apótekinu
Árvakur/Frikki
„Það bara datt af þeim andlitið þegar þau sáu okkur“
Mikið úrval notaðra bíla á góðum kjörum!
fitnesskort
TILBOÐ
Brautarholti 20 • 105 Rvk • Sími 561 5100 • www.badhusid.is
VEÐRIÐ Í DAG »2
»14