24 stundir - 07.02.2008, Page 2

24 stundir - 07.02.2008, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 24stundir VÍÐA UM HEIM Algarve 16 Amsterdam 9 Ankara 5 Barcelona 17 Berlín 8 Chicago -2 Dublin 9 Frankfurt 8 Glasgow 8 Halifax 0 Hamborg 8 Helsinki 1 Kaupmannahöfn 8 London 10 Madrid 16 Mílanó 12 Montreal -3 München 4 New York 9 Nuuk -18 Orlando 20 Osló 2 Palma 22 París 12 Prag 4 Stokkhólmur 4 Þórshöfn 5 Snýst í suðvestan 15-23 m/s með éljum, fyrst suðvestantil á landinu. Heldur hvassara um landið austanvert undir hádegi, en dregur úr vindi þar og léttir til síðdegis. Frost 0 til 8 stig, kaldast inn til landins. VEÐRIÐ Í DAG 0 -2 0 -1 1 Suðvestan og él Vaxandi suðaustanátt, 18-25 m/s undir kvöld, en víða 20-28 um miðnætti, hvassast suð- vestanlands. Talsverð rigning sunnan- og vestanlands, en dálítil slydda norðaustan til. Hlýnar í veðri og hiti 1 til 6 stig um kvöldið. VEÐRIÐ Á MORGUN 2 4 5 6 6 Hlýnar í veðri Upplýsingar um laun og vakta- töflu læknaritara á Landspítalan- um hafa borist aðilum sem sýnt hafa ritun sjúkraskráa utan Land- spítalans áhuga, að því er Ög- mundur Jónasson, formaður BSRB, greinir frá. „Ég hef fengið vísbendingar úr fleiri en einni átt um að fyrirtæki hafi fengið afhent gögn sem snúa að launum, vaktavinnu og vinnu- fyrirkomulagi einstaklinga á Land- spítalanum. Ég lít þetta mjög al- varlegum augum,“ segir Ögmundur. Neitað um upplýsingar Hann bendir á að BSRB og Sjúkraliðafélagi Íslands hafi síðast- liðið haust verið neitað um upplýs- ingar um launakjör starfsfólks frá starfsmannaleigum. „Þá var um að ræða stéttarfélög sem hafa það að markmiði sínu að standa vörð um kjörin. Þetta þótti þá slíkt trún- aðarmál að ekki mátti láta slíkar upplýsingar af hendi. Það var rétt- lætt með viðskiptahagsmunum. En hvað er þá þetta?“ spyr Ögmundur. Hagsmunatengsl? Hann veltir fyrir sér hvort ein- hverjir í stjórnsýslunni innan Landspítalans gangi erinda fyrir- tækja úti í bæ, eins og hann orðar það. „Ég fer þá að spyrja alvarlegra spurninga um hagsmunatengsl þessara aðila. Þetta er alvarlegur hlutur sem verður að fá botn í.“ Alls bárust 12 tilboð í sex mán- aða tilraunaverkefni Landspítalans um ritun sjúkraskráa utan sjúkra- hússins. Tilraunaverkefnið snýst um að meta hvort hagstætt geti verið að bjóða út ritun tiltekinna hluta sjúkraskrárgagna fyrir skil- greindar einingar spítalans, sam- kvæmt upplýsingum frá Landspít- alanum. Órói meðal læknaritara Mikill órói hefur verið vegna málsins í röðum læknaritara á Landspítalanum sem eru á annað hundrað talsins. Þeir óttast að ein- hverjir þeirra missi vinnuna í framhaldi af verkefninu. ingibjorg@24stundir.is Upplýsingar um læknaritara á Landspítalanum til áhugamanna um ritun sjúkraskráa Gögn um laun afhent aðilum úti í bæ Landspítali Vísbend- ingar eru um afhendingu gagna um starfsmenn. Sparisjóðurinn er í fyrsta sæti Ís- lensku ánægjuvogarinnar en þetta er í níunda sinn sem hún mælir ánægju íslenskra viðskiptavina. Í fréttatilkynningu frá henni kemur fram að mikil fylgni er milli ánægju og tryggðar viðskiptavina og afkomu fyrirtækis. Í flokki banka og sparisjóða á fyr- irtækjamarkaði var Landsbankinn í fyrsta sæti. Tryggingamiðstöðin var í fyrsta sæti tryggingafélaga og Síminn í flokki farsímafyrirtækja. Í flokki netveitna var Vodafone í fyrsta sæti og Ölgerðin Egill Skalla- grímsson í flokki gosdrykkjaframleiðenda. Í flokki rafveitufyrirtækja Hitaveita Suðurnesja og Olís í flokki olíufélaga. Í flokki bygging- arvöruverslana varð BYKO í fyrsta sæti. Að Íslensku ánægjuvoginni standa Samtök iðnaðarins, Stjórnvísi og Capacent Gallup en þeir þættir sem hafa áhrif á ánægjuvogina eru m.a. ímynd fyrirtækja, mat á gæðum og tryggð viðskiptavina. aak Tengsl ánægju og afkomu Í skýrslu stýrihóps sem fjallaði um samruna REI og GGE mun koma fram að hópurinn telur að verkferlar og valdmörk hafi verið óskýr. Ákvarðanir voru að mati hópsins teknar án fullnægjandi umræðu og málsaðilar brugðust trausti, kemur fram á Stöð 2. mbl.is REI-skýrsla kynnt í dag Ríkisendurskoðun áformar að ljúka stjórnsýsluúttekt á starfsemi Þró- unarfélagsins á Keflavíkurflugvelli um miðjan febrúar. Á fundi fjár- laganefndar Alþingis í gær var lagt fram bréf frá fjármálaráðuneytinu þar sem fram kemur að í ár er gert ráð fyrir að söluverð eigna á Kefla- víkurflugvelli geti numið um fjórum milljörðum króna og innborganir um 1,5 milljörðum króna. Áætlunin stendur ennþá óbreytt. mbl.is Úttekt á Þróunarfélaginu að koma Ingibjörg B. Sveinsdóttir ingibjorg@24stundir.is Fólksbílar sem skráðir voru á karla í fyrra voru nær tvöfalt fleiri en fólksbílarnir sem skráðir voru á konur, eða 115.996 á móti 65.061, samkvæmt upplýsingum frá Um- ferðarstofu. Þrefalt fleiri Toyota Land Cruiser 120 og Mercedes Benz E-bílar voru skráðir á karla en konur. Svipaður fjöldi Nissan Almera var skráður á karla og konur en nær tvöfalt fleiri Toyota Yaris-bílar voru skráðir á konur en karla. Þessar upplýsingar koma Guðnýju Waage, fulltrúa hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, í raun ekki á óvart. Konur eru aðeins um þriðjungur félagsmanna í FÍB, að því er Guðný greinir frá. Hún segir þónokkur dæmi þess að ungar giftar konur, sem sjálfar eru skráðar eigendur bifreiða, hringi til FÍB til að skrá eiginmenn sína í félagið. „Þær taka það fram að þær séu skráðar eig- endur bílanna en ákveða samt að skrá manninn sinn. Mér finnst þetta vera áberandi hjá ungum gift- um konum. Það er eins og þær telji að karlinn hafi meira vit á bílamál- unum. Það er mín tilfinning að konurnar verði sjálfstæðari upp úr 35 ára,“ segir Guðný og tekur um leið fram að svo virðist sem enn eimi eftir af hlutverkaskiptingu kynjanna. „Ég hélt að þetta væri að líða undir lok en svo er greinilega ekki,“ bætir hún við. Vilja höfða til kvenna Guðný segir FÍB reyna að höfða til kvenna. „Við höfum reynt að gera félagsblaðið okkar fjölskyldu- vænna. Systurfélög okkar á Norð- urlöndum hafa mýkt sín félagsblöð til að benda konum á að félögin séu ekki lokaðir karlaklúbbar, heldur kostur fyrir konur. Það höfum við líka gert. Þetta eru neytendasamtök fyrir bílaeigendur og það eru ekki bara karlar sem eiga bíla. Það eru hagsmunir allra í umferðinni að mengun verði minni og slysum fækki svo eitthvað sé nefnt.“ Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra eru 88.988 konur með réttindi til að aka fólksbifreið undir 3.500 kg eða svokölluð B-réttindi. Karlar með B-réttindi eru 106.375. Nær tvöfalt fleiri bílar í eigu karla  Þrefalt fleiri Land Cruiser og Benz E skráðir á karla en konur  Ungar giftar konur hringja í FÍB og skrá eiginmenn sína í félagið Á dæmigerðan konubíl Guðný Waage, fulltrúi hjá FÍB, sér sjálf um öll sín bílamál. ➤ Mercedes Benz E: 581 skráðurá karla í fyrra en 163 á konur. ➤ Toyota Land Cruiser 120:2140 voru skráðir á karla en 677 á konur. ➤ Toyota Yaris: 1956 voruskráðir á karla en 3590 á konur. BÍLAEIGENDUR Árvakur/Kristinn Ingvarsson STUTT ● Þýfi á leið úr landi Lögreglan kom í veg fyrir að umtalsvert magn af þýfi, meðal annars úr innbroti í íþróttavöruverslun í Hafnarfirði, yrði sent úr landi með póstþjónustu í fyrradag. Lögreglan komst á snoðir um 12 pakka sem samtals vega um 130 kg og átti að senda til Pól- lands. Þrír menn voru handteknir í pósthúsi á Suðurnesjum og í kjölfarið voru tveir aðrir færðir til yfirheyrslu. Lögreglan í Hafnarfirði tók skýrslur af mönnunum. Lögreglan vinnur nú að rann- sókn málsins en megnið af þýf- inu mun hafa verið fatnaður og merkjavara. mbl.is Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Hræ af hnúfubakstarfi fannst í fjöru við Garðskaga í dag. Dýrið er rúmir 10 metr- ar á lengd hið minnsta og ligg- ur á bakinu í fjöruborðinu. Fram kemur á fréttavef Víkur- frétta, að skrokk- urinn sé nokkuð heillegur, ekki mikið úldinn, og víða settur hrúðurkörlum. Haft hefur verið samband við Hafrannsóknastofnun, sem hyggst skoða hræið á morgun. mbl.is Úldið hnúfubakshræ Hvalreki við Garðskaga

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.