24 stundir - 07.02.2008, Qupperneq 4
NEYTENDAVAKTIN
Raforkuverð
Seljandi raforkuverð á ári
(5.392 Kwh)
Verðmunur
Rafveita Reyðarfjarðar 54.651
Fallorka (Norðurorka) 55.255 1,0 %
Orkuveita Húsavíkur 55.255 1,0 %
Orkusalan (RARIK) 55.926 2,0 %
Orkuveita Reykjavíkur 55.926 2,0 %
Orkubú Vestfjjarða 56.219 3,0 %
Hitaveita Suðurnesja 56.329 3,0 %
4 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 24stundir
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
„Það sem einkennir þetta öðru
fremur er að þeir sem í þessu lenda
eru í þeirri stöðu að vera mikið í
samskiptum við fólk og hafa þar af
leiðandi ekki allt um það að segja
hver niðurstaðan verður,“ segir
Kristinn Tómasson yfirlæknir
Vinnueftirlits ríkisins en hann er
meðal frummælenda á málþingi
Náttúruverndarfélagsins um kulnun
í starfi sem fram fer á Loftleiðum í
kvöld.
Kulnun í starfi hefur verið skil-
greind sem þrjú stig eða fasar. Í
fyrsta lagi er vinnutengd streita sem
fólk finnur fyrir þegar skyldum
verður ekki sinnt vegna þreytuein-
kenna. „Það eru stöðugar áhyggjur,
minnkuð einbeiting, sinnuleysi og
ábyrgðarleysi og fólk fer jafnvel að
sofa illa af áhyggjum af vinnunni,“
segir Kristinn. Annar fasi kemur yf-
irleitt ekki löngu síðar en Kristinn
segir hann einkennast af því sem yf-
irleitt er kallað ofálag og fólk finnur
verulegar takmarkanir á að sinna
skyldum sínum á vinnumarkaði. Í
þriðja fasa er farið að bera á því sem
kallað er kulnun í starfi. „Hlutir eins
og að finna sig vanhæfan til að sinna
verkefnum, finna sig daglega úr-
vinda á vinnustaðnum og fólk er
sinnulítið um þau verkefni sem
koma upp,“ segir Kristinn en bætir
við að þrátt fyrir þetta hafi þeir sem
þjást af kulnun oft ekki uppburði í
sér til að biðjast undan verkefnum
eða breyta vinnu sinni. Hann segir
mikilvægt að þeir sem finni fyrir
þessu leiti til sinna yfirmanna en
jafnframt til heimilislæknis því ein-
kennin geta átt líka við um aðra
sjúkdóma.
Ása Ásgeirsdóttir er fagstjóri
vinnueftirlitsins. Hún segir mikil-
vægt til að koma í veg fyrir kulnun
að hugað sé að því í stefnumótun
fyrirtækja. „Til dæmis starfsmanna-
viðtöl,“ segir hún, „er eingöngu ver-
ið að horfa á laun eða er líka litið á
einstaklinginn, möguleika hans á
starfsþróun og það að hann upplifi
að hann geti notið sín innan fyr-
irtækisins og að hann noti sína hæfi-
leika þar.“
Hún segir mikilvægt að stefna sé
til staðar innan fyrirtækja um
heilsueflingu í víðum skilningi. „Það
þarf að vera í lagi að tala um streitu,“
segir Ása en hún segir líka mikilvægt
að ýta undir það sem er jákvætt.
„Það þurfa allir að upplifa að starf
þeirra sé metið að verðleikum og að
þeir skipti máli fyrir heildina.“
Mikilvægt að huga að heilsueflingu í víðum skilningi
Áhyggjur, sinnuleysi og leiði
➤ Kulnun í starfi er það semkallað hefur verið burnout á
ensku.
➤ Fyrstur til að skrifa um kuln-un var bandarískur sálkönn-
uður, Herbert Freudenberger
árið 1974.
KULNUN Í STARFI
Nú finn ég neistann
Fólk þarf að finna að störf
þess skipti máli svo það
kulni ekki í starfi.
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
„Ástandið á hrossunum nú er
mun verra en það hefur verið
undanfarin ár enda hefur veturinn
verið mjög harður og víða jarð-
bönn,“ segir Óðinn Örn Jóhanns-
son, búfjáreftirlitsmaður á Suður-
landi.
Slæmt ástand útigangshrossa á
Suðurlandi má einnig rekja til
svokallaðra hnjúska sem er feld-
sjúkdómur sem lagðist á fjölda
hrossa á svæðinu vegna mikillar
vætutíðar á haustmánuðum.
„Ég hef farið um svæðið til að
sinna eftirliti og í nokkrum til-
fellum hef ég þurft að hnippa í
menn sem hafa trassað að gefa
skepnunum sínum eða veita þeim
skjól. Menn hafa í flestum tilfell-
um ekki búist við jafn hörðum
vetri og varð raunin og hafa ekki
gætt nægilega að sér.“
Ábendingum fjölgað mikið
Auk þess að fara í eftirlitsferðir
tekur Óðinn við ábendingum frá
fólki vegna gruns um vanrækslu
útigangshrossa, en hann segir til-
kynningarnar hafa margfaldast í
ár og hann hafi þurft að bæta við
sig starfsmönnum til að sinna
þeim öllum. „Tilkynningunum
hefur fjölgað gríðarlega í ár en ætli
ég sé ekki að fá um tuttugu
ábendingar á viku um hross sem
eru illa haldin og þarf að koma til
aðstoðar. Menn hafa í langflestum
tilfellum tekið afskiptum okkar vel
og ráðist í úrbætur.“
„Réttu hrossin“ gangi úti
Óðinn segir viðkomandi sveit-
arfélög hafa þurft að grípa til að-
gerða í nokkur skipti. Þá ræður
sveitarfélagið menn til að gefa úti-
gangshrossum og sendir eiganda
þeirra reikninginn, hafi þeir ekki
orðið við tilmælum.
Kristinn Guðnason, formaður
Félags hrossabænda, segir mikil-
vægt að menn velji réttu hrossin
til útigangs.
„Menn verða að fylgjast vel með
hrossunum sínum og gæta þess að
þau séu öflug og láta ekki merar
og trippi ganga úti.“
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Svöng útigangs-
hross á sveitina
Ástand útigangshrossa hefur ekki verið jafn slæmt á Suðurlandi um árabil Búfjár-
eftirlitsmanni á svæðinu berast um tuttugu ábendingar á viku um vanrækslu hrossa
Hross í kuldakasti
Á Suðurlandi hefur
ástandið ekki verið jafn
slæmt síðan 1999.
➤ Ástand útigangshrossa al-mennt á landinu er nokkuð
gott, að sögn héraðs-
dýralækna.
➤ Ábendingum vegna van-rækslu útigangshrossa hefur
þó fjölgað í ár.
ÁSTANDIÐ
Árvakur/Ásdís
Forsvarsmenn Bændasamtak-
anna gengu í dag á fund Einars
K. Guðfinnssonar, landbún-
aðar- og sjávarútvegs- ráð-
herra, og lýstu þar áhyggjum
sínum vegna verðhækkunar
sem orðið hefur á aðföngum
landbúnaðarins, þar á meðal á
áburði. „Við ræddum við ráð-
herra þá alvarlegu stöðu sem
bændur standa frammi fyrir
vegna verðhækkana sem hafa
dunið yfir að undanförnu,“
segir Haraldur Benediktsson,
formaður Bændasamtakanna.
mbl.is
Verðhækkanir ræddar
Bændur fara á
fund ráðherra
Karl Gústaf Svíakonungur
hefur útnefnt Alyson Bailes til
viðurkenningar með stórridd-
arakrossi hinnar konunglegu
sænsku norðurstjörnuorðu.
Alyson Bailes var áður for-
stöðumaður SIPRI í Stokk-
hólmi, sem er rannsókn-
arstofnun um stríð og frið í
heiminum. Veiting konungs-
orðunnar fer fram í sænska
sendiráðinu í dag.
Svíakonungur heiðrar
Gestakennari
krossaður
Réttarstaða leigutaka lóða undir
frístundahús er bætt og meðal
annars lagt til að
þeir fái einhliða
rétt til að fram-
lengja leigu-
samning ef ekki
semst um áfram-
haldandi leigu
við landeiganda,
í nýju frumvarpi
félagsmálaráð-
herra.
Í dag er réttarstaða leigjenda yf-
irleitt sú að beri ákvæði leigu-
samnings ekki með sér að leigu-
taki hafi ótvíræðan rétt til leigu
að leigutíma loknum er hann of-
urseldur vilja landeiganda um
framhaldið. Frumvarpið er fyrsta
sinnar tegundar á Alþingi.
Nýtt frumvarp ráðherra
Réttarstaða
leigutaka bætt
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Raforkusala til neytenda var gefin frjáls árið 2006 og var
markmiðið að skila neytendum lægra raforkuverði. Ef
miðað er við 140m2 raðhús í Reykjavík munar ekki
nema 3% á hæsta og lægsta verði. Það sama á reyndar
við á flestum stöðum því verðmunur er yfirleitt lítill
sem enginn. Það má því segja að samkeppni á raf-
orkumarkaði hafi ekki skilað sér til neytenda.
Samkeppnin litlu skilað
Brynhildur
Pétursdóttir
TB
W
A\
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA