24 stundir - 07.02.2008, Side 6

24 stundir - 07.02.2008, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 24stundir Landsvirkjun tók á dögunum yf- ir verkefni Arnarfells við Kára- hnjúka vegna fjárhagsörðugleika þess síðarnefnda. Þá réði Landsvirkjun til sín starfsmenn Arnarfells en launa- greiðslur til þeirra um mánaðmót- in töfðust. „Skýringin á því er í raun afar einföld. Þegar átti að greiða launin síðastliðinn föstudag kom í ljós í látunum við yfirtökuna að launa- listinn var ekki réttur svo að helgin var notuð til að fara yfir listann og laga hann,“ segir Sigurður Arnalds, talsmaður Kárahnjúkavirkjunar. „Núna er búið að gera upp við starfsmennina, sem eru um fimm- tíu talsins, og mikill hugur er í mönnum.“ aegir@24stundir.is Landsvirkjun greiðir vangoldin laun Gert upp við fyrrv. starfsfólk Arnarfells Eftir Frey Rögnvaldsson freyr@24stundir.is Móðir Ásgeirs Hrafns Ólafssonar sem rændi útibú Glitnis á mánu- daginn var hefur í mörg ár reynt að finna úrræði fyrir son sinn en án árangurs. Henni finnst skilnings- leysi kerfisins gagnvart vanda- málum sonar síns vera æpandi. Dvaldi í Byrginu Ásgeir Hrafn flutti frá Dan- mörku ásamt fjölskyldu sinni árið 2001, þá fjórtán ára. Fljótt fór að halla undan fæti hjá honum eftir flutninginn hingað til lands. „Hann lenti í slæmum félagsskap og var farinn að neyta fíkniefna strax þennan vetur. Ég hafði sam- band við barnaverndarnefnd strax þegar ég komst að því hvernig ástandið var. Þar var mér hins veg- ar sagt að það væri ekki hægt að gera neitt strax. Ég reyndi þá að koma Ásgeiri að hjá Götusmiðj- unni en það var ekki hægt að taka við honum þar. Á endanum fór hann í Byrgið og dvaldi þar í ein- hverja þrjá mánuði.“ Vistin í Byrginu virtist gera Ás- geiri Hrafni gott en því miður fór allt í sama farið stuttu eftir að hann kom þaðan. Hann byrjaði aftur í neyslu og dvaldi aftur í Byrginu um nokkurra mánaða skeið. „Sumarið eftir tíunda bekk fór hann í fyrstu meðferðina á Vogi og kláraði hana. Hann fór síðan í eftirmeðferð á Staðarfelli og stóð sig vel. Eftir að hann kláraði hana og kom heim leið hins vegar ekki nema vika þangað til hann datt í það og þá braust hann inn í fyrsta skipti. Síð- an hefur leiðin legið niður á við.“ Tíminn skiptir öllu máli Síðan þá hefur móðir Ásgeirs Hrafns ítrekað reynt að finna úr- ræði handa honum. Meðal annars reyndi hún að koma honum inn á geðdeild Landspítalans eftir að hann hafði hótað að fremja sjálfs- morð. „Ég fékk þau til að leggja hann inn en svo var hringt morg- uninn eftir og sagt að hann væri hótandi öllum og öllu og ég yrði að ná í hann. Hann var bara veikur og ég skil ekki af hverju hann var ekki vistaður á geðdeildinni áfram. Mér finnst eins og ég gangi sífellt á veggi í þessari baráttu. Ég er dauðhrædd um að hann verði aldrei heill.“ Móðir Ásgeirs Hrafns segist oft hugsa til þess hvort málin hefðu farið öðruvísi ef brugðist hefði ver- ið við vanda sonar síns strax þegar hann var að byrja í neyslu á ung- lingsárum. „Tíminn skiptir svo miklu máli í þessu. Það verða að vera til úrræði fyrir börn sem lenda í þessum vandræðum.“ ÞEKKIR ÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á 24@24stundir.is „Skilningsleysið innan kerfisins er æpandi“  Móðir bankaræningja segist alls staðar hafa gengið á veggi í kerfinu þegar hún leitaði hjálpar fyrir son sinn  Úrræði vantar fyrir ung börn sem komast á glapstigu ➤ Ásgeir Hrafn hefur lengst ver-ið edrú í átta mánuði síðan hann var fjórtán ára. ➤ Hann féll svo skömmu áðuren hann átti að hefja af- plánun á tveggja mánaða fangelsisdómi. BARÁTTA Byrgið Móðir Ásgeirs kom honum í meðferð í Byrginu þegar það var til húsa í Rockville á Miðnesheiði. Vetrarhátíð í Reykjavík hefst í dag og stendur til 9. febrúar, en hátíðin er haldin í sjö- unda skipt- ið í ár. Þema hátíð- arinnar er ljós og hreyfing og á þemað að endurspegl- ast á fjöl- breytilegan hátt í dag- skrá hátíðarinnar. Hátíðin hefst með litríkri ljósa- göngu á Skólavörðuholti, þar sem ljósverur munu bregða á leik. æþe Vetrarhátíð hefst í dag Sjöunda skiptið Strætisvagnafarþegar í næst- stærsta sveitarfélagi landsins, Kópavogi, sem margir hverjir verða að bíða vagnanna úti undir beru lofti vegna skorts á skýlum, eiga betri tíð í vændum. Eftir helgina munu forráðamenn Strætó bs. funda með bæjarstjórn Kópavogs um framtíðar leiðaskipulag. Í kjöl- farið verða sett upp skýli á þeim stöðum þar sem engin slík eru fyr- ir. Á það m.a. við um aðalskipti- stöð Strætó í Hamraborg þar sem hundruð farþega fara um daglega. Þetta staðfestir Þór Jónsson, upplýsingafulltrúi Kópavogs, en hann segir óvíst hvenær uppsetn- ing skýla hefjist. Krafa um slíkt hefur reglulega heyrst frá notend- um strætisvagna í Kópavoginum síðan í sumar. Er Hamraborgin í raun eina stóra skiptistöð strætis- vagna á höfuðborgarsvæðinu þar sem ekki eru skýli fyrir veðri og vindum. Tafir vegna breytinga á leiðum Að sögn Þórs er gert ráð fyrir að þau skýli sem í framhaldinu verða sett upp verði glerskýli en hversu mörg þau verða eða hvenær því starfi lýkur ræðst ekki fyrr en að fundinum loknum í næstu viku. Tafir á uppsetningu skýla í Kópa- vogi staðfestir Þór að séu tilkomn- ar vegna sífelldra breytinga á leiða- kerfi Strætó enda fráleitt að reisa slík skýli þegar slíkt liggi ekki fyrir. albert@24stundir.is Bjartari tíð framundan hjá strætisvagnafarþegum í Kópavogi Rætt um fleiri og betri skýli Skjól í kuldanum Ekki veitir af að hafa strætóskýli í tíð eins og þeirri sem verið hefur. STUTT ● Bitinn í lærið Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt 31 árs gamlan karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fang- elsi fyrir að slá annan mann tvisvar í andlitið og bíta hann í vinstra lærið í apríl 2006 í gleð- skap í Vestmannaeyjum. Árás- armaðurinn, sem þrisvar áður hefur verið dæmdur fyrir lík- amsárásir, greiði manninum bætur. ● Öskurapar á öskudegi Lögregla höfuðborgarsvæð- isins var kölluð til vegna skrílsláta og óróa í versl- unarmiðstöðinni Kringlunni um klukkan hálfþrjú í dag. Varðstjóri lögreglunnar sagði að öryggisverðir hefðu beðið um aðstoð vegna hópamynd- ana og skrílsláta. Ekki kom þó til afskipta lög- reglunnar af máli þessu. 1 Samningstími Rætt er um að samið verði til þriggja ára, þ.e. eins árs með möguleika á tveggja ára framlengingu ef forsendur kjarasamninga halda. Mun nokk- ur samhljómur vera orðinn um það milli samningsaðila þó enn séu efasemdaraddir innan verka- lýðshreyfingarinnar. 2 Launahækkanir Talað er um að samið verði um fjögurra pró- senta almenna launahækkun sem taki strax gildi. Minni sam- hljómur er um þær launahækk- anir sem muni verða síðar á samningstímabilinu. 3 Baksýnisspegill er hugtak sem komið hefur til álita í kjarasamn- ingsviðræðum. Það þýðir að sam- ið verði um svokallaða launa- tryggingu sem gangi út á að launahækkanir verði ekki ákveðnar fyrirfram heldur á samningstímanum. 4 Launaskrið Ákvarðanir um launahækkanir verði teknar á samningstímanum og þá verði horft til þess hvort launþegar hafi þegar fengið launahækkanir. Þeir fái þá hækkun í samræmi við það sem upp á vanti. Kjarasamningar mikils hluta verkalýðshreyfingarinnar við at- vinnnurekendur eru lausir og hafa verið síðan um áramót. Starfs- greinasambandið hefur þegar vísað sínum samningum til rík- issáttasemjara og standa samn- ingaviðræður yfir við Samtök at- vinnulífsins. Lítið hefur þokast áfram undanfarnar vikur en þó virðist kominn eilítið jákvæðari tónn í samningsaðila nú síðustu daga. Rætt er um ákveðna að- ferðafræði sem beitt skuli í samn- ingunum. fr Kjaraviðræðurnar Sátt um aðferðir? Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu mun funda í vikunni vegna at- hugasemda sem henni hafa borist frá heilbrigðisnefnd Reykjavíkur- borgar vegna fimm skemmtistaða sem ákveðið hafa að hundsa reyk- ingabannið svokallaða og heimila reykingar í húsakynnum sínum. Þar verður ákveðið til hvaða að- gerða verður gripið, en lögregla getur svipt staði rekstrarleyfi gerist þeir sekir um brot á lögunum. Staðirnir sem um ræðir eru Litli ljóti andarunginn við Lækjargötu, Q-bar við Ingólfsstræti, Hverfis- barinn við Hverfisgötu og Café Oliver og Barinn við Laugaveg. Heilbrigðisnefnd borgarinnar sendi lögreglu bréf vegna málsins á mánudaginn. aegir@24stundir.is Lögregla fundar vegna brota á reykbanni Funda í vikunni um næstu aðgerðir

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.