24 stundir - 07.02.2008, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 24stundir
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
„Mér finnast 2+1-vegir vel koma til
greina á Íslandi, þeir hafa gefist
mjög vel í Svíþjóð. Þeir koma mjög
vel út í samanburði, bæði hvað
varðar kostnað og umferðarör-
yggi,“ segir Haraldur Sigurþórsson,
verkfræðingur hjá Línuhönnun, en
hann var einn þeirra sem fluttu er-
indi á morgunverðarfundi slysa-
varnarráðs Lýðheilsustöðvar í gær-
morgun.
Haraldur segir þessa leið mjög
vinsæla í Svíþjóð og nú sé svo kom-
ið að margar þjóðir líti til reynslu
Svía af 2+1-vegum, en búast má
við 50-80% fækkun alvarlegra slysa
sé tveggja akgreina vegi breytt í 2+1
að hans sögn.
„Svona vegur er alltaf með veg-
riði eða víraleiðara, það er stóra at-
riðið í þessu, aðgreining aksturs-
stefna,“ segir Haraldur. Hann segir
2+1-útfærslu fyrir Suðurlandsveg
tilbúna svo hægt væri að byrja á
lagningu hans nú þegar. Hann hef-
ur þó ekkert á móti því að vegir séu
með tvær akreinar í báðar áttir.
„Það er ekki þannig að 2+2 sé vond
lausn en menn verða að athuga það
að þeir geta náð sama árangri í
fækkun slysa með 2+1 með mun
minni tilkostnaði,“ segir hann.
Brýnt að aðskilja umferð
Ágúst Mogensen, forstöðumað-
ur rannsóknarnefndar umferðar-
slysa, segir að þó mikið hafi verið
kvartað undan 2+1-kaflanum í
Svínahrauni sé ljóst að hann hafi
komið í veg fyrir mörg slys.
Hann segir mikilvægast að koma
í veg fyrir framanákeyrslur og því
verði að aðgreina umferð úr gagn-
stæðum áttum á Suðurlandsvegi og
Vesturlandsvegi sem fyrst. „Hvert
ár í töf þýðir fleiri banaslys og slys
með miklum meiðslum.“
Ekki nóg að spara 80%
Steinþór Jónsson, formaður
Samstöðu og FÍB, er ekki sammála
Haraldi um 2+1-vegi. „Ég er mikill
áhugamaður um öryggismál. Ég
kem fram með þá skoðun að við
eigum að hafa 2+2 vegi á öllum
stofnbrautum út frá Reykjavík,“
segir hann og vill að litið sé til
reynslunnar af Reykjanesbraut.
„Nú eru komin fjögur ár síðan hún
var tvöfölduð og við höfum náð
gríðarlegum árangri,“ segir hann
og bætir við: „Um leið og fyrsti
áfangi var opnaður hafði hann þau
áhrif á ökumenn að þeir urðu
miklu afslappaðri og ökulagið á
Reykjanesbrautinni breyttist
mjög.“
Hann segir að við vegabætur á
Reykjanesbraut hafi sparast 16-24
mannslíf, fækkun slysa um 70-80%
sé ekki nóg, hún þurfi að vera
100%. Hann er hissa á því að þessi
umræða komi fram núna.
„Stóra málið er að það er búið
að taka einhliða ákvörðun af ráða-
mönnum og þingmönnum um að
Suðurlandsvegur skuli verða 2+2
og þá finnst mér óskiljanlegt að
fara að tefja málið aftur með um-
ræðum um 2+1-veg.“
Duga þrjár akreinar?
2+1-vegir hafa gefið góða raun í Svíþjóð Mikilvægast að aðgreina umferð „Búið að
ákveða 2+2 á Suðurlandsvegi, óskiljanlegt að fara að tefja málið núna,“ segir formaður FÍB
Aðgreining Mestu
máli skiptir að að-
greina akstursstefnur.
➤ Hugtakið 2+1-vegir lýsir veg-um sem eru að jafnaði með
tvær akreinar í aðra aksturs-
stefnu en eina í hina.
➤ Að sama skapi er 2+2-vegurinn með tvær akreinar í
hvora átt.
➤ Margir telja 2+1-leiðina hag-kvæmari.
2+1 OG 2+2
Á árinu 2007 voru framin 43
rán á Íslandi samkvæmt bráða-
birgðatölum frá embætti ríkislög-
reglustjóra. Það eru eilítið færri
rán en voru framin árið 2006 en
þá voru framin fimmtíu rán á
landinu og 49 árið 2005. Á ár-
unum 2001 til 2005 voru að með-
altali framin 39 rán á ári á Íslandi.
Ekki er til mjög nákvæm töl-
fræði um vettvang rána. Þó má sjá
að á árinu 2007 voru ríflega 23
prósent rána framin í einhvers-
konar verslunum en aðeins tæp
fimm prósent rána voru framin í
fyrirtækjum. Ekkert bankarán var
framið á þessu árabili og sam-
kvæmt upplýsingum frá Samtök-
um fjármálafyrirtækja var ránið í
útibúi Glitnis í Lækjargötu fyrsta
bankaránið sem framið hefur ver-
ið hér á landi frá árinu 2004. Á ár-
unum 2003 og 2004 reið yfir
hrina bankarána og alls voru
framin tíu bankarán á þessu tíma-
bili.
freyr@24stundir.is
43 rán á
síðasta ári
Ránum hefur farið
fjölgandi á síðustu
þremur árum
Miðað við farþegaspár er nauð-
synlegt að fjölga flugstæðum á
Keflavíkurflugvelli innan tveggja
ára, að því er Elín Árnadóttir, for-
stjóri Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar, greinir frá. „Ef hægt verð-
ur að fjölga landgöngubrúm
verður það gert en það er út-
færsluatriði,“ tekur Elín fram.
Hún segir áform um uppbygg-
ingu flugstöðvarinnar í endur-
skoðun. „Það er unnið í samræmi
við farþegaspár flugstöðvarinnar
en gert er ráð fyrir að 2015 verði
farþegar 3,2 milljónir en þeir
voru í fyrra rúmlega 2 milljónir.
Það er verið að skoða stækk-
unarmöguleika en ákvörðun hef-
ur ekki verið tekin.“
Það er stjórn flugstöðvarinnar
sem tekur ákvörðun eins og er, að
sögn Elínar. „Endanleg ákvörðun
verður í höndum nýs sameinaðs
fyrirtækis.“
ibs
Flugstæðum
verður fjölgað
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
4
07
10
0
1/
08
Óþarfa gluggapóstur finnur sér leið inn á of mörg heimili í dag.
Á tímum rafrænna greiðslna og vefvæðingar ætti gluggapóstur
fyrir löngu að vera leifar gamals tíma, sóunar og óskynsemi.
Svo ekki sé minnst á umhverfisspjöllin.
Með því að fara inn á www.or.is/bodgreidslur getur þú lagt þitt af mörkum
til umhverfisverndar og borgað reikningana þína með boðgreiðslum.
Enginn pappír, enginn gluggapóstur, ekkert vesen.
Skiptu yfir í boðgreiðslur
• Ef allir viðskiptavinir OR skipta yfir í boðgreiðslur sparast 7068 kg
af pappír á ári eða 295 tré.
www.or.is
Fyrstu 100 sem skipta
yfir í boðgreiðslur
fá glaðning frá
Orkuveitu Reykjavíkur
Er þetta
ekki orðið
ágætt?
Fangelsismál voru til umræðu á
Alþingi í gær, en 24 stundir hafa á
undanförnum dögum sagt frá því
að þröng sé á þingi í íslenskum
fangelsum þar sem dómar séu að
þyngjast og refsingum að fjölga. Í
vikunni var brugðið á það ráð að
láta fanga á Litla-Hrauni deila klef-
um vegna plássleysis.
Ágúst Ólafur Ágústsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, bar upp
fyrirspurn til Björns Bjarnasonar
dómsmálaráðherra og spurði hve-
nær yrði gerð bragarbót á aðstæð-
um fyrir heimsóknir til fanga.
Hann sagði þyngri dóma auka álag
á fangelsin og kerfið og að „ým-
islegt væri ógert í fangelsismálum“.
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins, vakti við
sama tækifæri máls á því að ekki
væri tækt að tveir fangar væru látn-
ir deila klefa. Þá sagði hún það ekki
forsvaranlegt að Hegningarhúsið
væri enn notað sem fangelsi.
Dómsmálaráðherra þakkaði
þingmönnunum fyrir áhuga þeirra
á málaflokknum. Hann rakti þær
framkvæmdir sem áttu sér stað í
fangelsinu við Kvíabryggju í fyrra-
haust og þær sem standa yfir um
þessar mundir í fangelsinu á Ak-
ureyri. Hann neitaði hins vegar að
nefna neinn ákveðinn tíma um
verklok við þær framkvæmdir sem
fyrirhugaðar eru á Litla-Hrauni, en
þar stendur til að reisa nýjan mót-
tökusal og heimsóknaraðstöðu.
thordur@24stundir.is
Fangelsismál til umræðu á Alþingi
Verklok ekki kunn