24 stundir - 07.02.2008, Síða 10

24 stundir - 07.02.2008, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 24stundir e-Vildarkortið færðu á sérkjörum í Gull- og Platinumþjónustu SPRON Njóttu ávinningsins – sæktu um á spron.is Njóttu fríðindanna! Nánari upplýsingar fást í næsta útibúi SPRON, í þjónustuveri í síma 550 1400 eða á spron.is A R G U S / 0 8 -0 0 5 9 Í Gull- og Platinumþjónustu SPRON færðu betri vexti, ýmis sérkjör og fríðindi ásamt persónulegri þjónustu og ráðgjöf. Meðal fríðinda er e-Vildarkortið, alþjóðlega VISA-kreditkortið, þar sem þú safnar bæði Vildarpunktum Icelandair og færð endurgreiðslu í peningum. Vildarpunktar Icelandair + Endurgreiðsla í peningum = e-Vildarkortið Eftir Sigrúnu Ernu Geirsdóttur Í gær og í dag ganga stúdentar við Háskóla Íslands að kjörborðinu og kjósa í Stúdentaráð HÍ. Tveir listar bjóða fram að þessu sinni: Vaka, fé- lag lýðræðissinnaðra stúdenta, og Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands. Pólitísk tengsl „bara mýta“ ,,Það að Röskva tengist vinstri flokkunum og Vaka þeim hægri er bara gömul mýta,“ segir Helga Lára Haarde, formaður Vöku, og blæs á það að sjálfstæðismenn í röðum stúdenta krossi við Vöku og sam- fylkingarfólk við Röskvu. Hún seg- ir að Röskva skilgreini sig kannski frekar sem vinstri lista en Vökulist- inn sé hins vegar þverpólitískur. Helga Lára segir að annað sé ekki heppilegt því að þarna sé verið að berjast fyrir hagsmunum stúd- enta og sú barátta sé ekki hægra eða vinstra megin. Enda sé þeim tilmælum beint til Vökuliða að þeir starfi ekki í öðrum pólitískum hreyfingum á meðan þeir séu í Vöku. ,,Ef fólk vill tengja sig ákveðnum flokki þá eru ungliða- hreyfingar flokkanna betur fallnar til þess en stúdentapólitíkin,“ segir hún. Þrátt fyrir þessar fullyrðingar er samt ákveðinn þungi í flæði fólks frá Vöku yfir í Sjálfstæðisflokkinn og viðurkennir Helga að svo sé. Lilja Guðrún Jóhannsdóttir, stjórnarmaður í Röskvu, tekur í sama streng. „Við leggjum áherslu á jafnrétti allra til náms og mögu- lega telst það vinstra megin en við skilgreinum okkur ekki sem vinstri flokk,“ segir hún. Báðar fylkingar þvertaka fyrir að nokkur samvinna sé við stjórn- málaflokkana. Úrelt eða þrautreynt Eingöngu nemendur við Há- skóla Íslands nota framboðslista- fyrirkomulag við val á fulltrúum í stjórn samtaka nemenda. Báðir talsmenn segjast mjög ánægðir með ríkjandi fyrirkomulag og hafa engan áhuga á að breyta því. Það sé ákveðin hagræðing í þessu þar sem það væri kostnaðarsamt fyrir hvern og einn að standa í kosningabar- áttu og stúdentar séu að auki frekar einsleitur hópur sem hafi svipuð baráttumál. Síðast en ekki síst fari reynslan ekki úr skólanum þegar fólk hættir. ,,Við lítum líka til þess að þetta er mun betra fyrir minni deildir, ef þetta væru einstaklingskosningar myndi fólk frá stærri deildunum ráða ríkjum í Stúdentaráði á kostn- að hinna.“ Pólitísk tengsl „mýta“  Vaka og Röskva ánægðar með ríkjandi fyrirkomulag í kjöri til Stúdentaráðs  Engin tengsl við stjórnmálaflokka, segja talsmenn listanna  Stúdentar kjósa sér fulltrúa í dag Háskóli Íslands Stúdentar við HÍ eru þeir einu, sem enn nota framboðslista við val á fulltrúum sínum. ➤ Menn sem nýlega voru áber-andi í átökum í borgarstjórn voru í stúdentapólitík. ➤ Björn Ingi Hrafnsson var íStúdentaráði fyrir Röskvu 1997-1999. ➤ Gísli Marteinn Baldursson satí SHÍ fyrir Vöku 1994-1996. ➤ Dagur B. Eggertsson var í SHÍfyrir Röskvu 1994-1996. ÆFINGABÚÐIR? Árvakur/Sverrir Landsvirkjun hefur tekið aftur til skoðunar áform um bygg- ingu Búðarhálsvirkjunar. Þó er eftir sem áður stefnt að því að byggja fyrst nýjar virkjanir í neðri hluta Þjórsár í því skyni að selja orku til há- tækniiðnaðar á Suður- og Suðvesturlandi. Landsvirkjun segir eftirspurn eftir raforku meiri en sem nemur orkugetu virkjananna þriggja í neðri hluta Þjórsár. mbl.is Búðarhálsvirkjun Þjórsá í byggð virkjuð fyrst Ásta Valdimarsdóttir hefur verið kosin í stjórn Evrópsku einkaleyfastofunnar. Ásta er forstjóri Einkaleyfastofunnar en hún hefur verið fulltrúi Ís- lands í framkvæmdaráði Evr- ópsku einkaleyfastofunnar frá því að Ísland gerðist aðili að Evrópsku einkaleyfastofunni 1. nóvember 2004. aak Evrópsk einkaleyfi Ásta í stjórn

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.