24 stundir - 07.02.2008, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 24stundir
e-Vildarkortið færðu á sérkjörum
í Gull- og Platinumþjónustu SPRON
Njóttu ávinningsins – sæktu um á spron.is
Njóttu
fríðindanna!
Nánari upplýsingar fást í næsta útibúi SPRON, í þjónustuveri
í síma 550 1400 eða á spron.is
A
R
G
U
S
/
0
8
-0
0
5
9
Í Gull- og Platinumþjónustu SPRON færðu betri vexti, ýmis sérkjör og
fríðindi ásamt persónulegri þjónustu og ráðgjöf.
Meðal fríðinda er e-Vildarkortið, alþjóðlega VISA-kreditkortið, þar sem þú
safnar bæði Vildarpunktum Icelandair og færð endurgreiðslu í peningum.
Vildarpunktar Icelandair
+ Endurgreiðsla í peningum
= e-Vildarkortið
Eftir Sigrúnu Ernu Geirsdóttur
Í gær og í dag ganga stúdentar við
Háskóla Íslands að kjörborðinu og
kjósa í Stúdentaráð HÍ. Tveir listar
bjóða fram að þessu sinni: Vaka, fé-
lag lýðræðissinnaðra stúdenta, og
Röskva, samtök félagshyggjufólks
við Háskóla Íslands.
Pólitísk tengsl „bara mýta“
,,Það að Röskva tengist vinstri
flokkunum og Vaka þeim hægri er
bara gömul mýta,“ segir Helga Lára
Haarde, formaður Vöku, og blæs á
það að sjálfstæðismenn í röðum
stúdenta krossi við Vöku og sam-
fylkingarfólk við Röskvu. Hún seg-
ir að Röskva skilgreini sig kannski
frekar sem vinstri lista en Vökulist-
inn sé hins vegar þverpólitískur.
Helga Lára segir að annað sé
ekki heppilegt því að þarna sé verið
að berjast fyrir hagsmunum stúd-
enta og sú barátta sé ekki hægra
eða vinstra megin. Enda sé þeim
tilmælum beint til Vökuliða að þeir
starfi ekki í öðrum pólitískum
hreyfingum á meðan þeir séu í
Vöku. ,,Ef fólk vill tengja sig
ákveðnum flokki þá eru ungliða-
hreyfingar flokkanna betur fallnar
til þess en stúdentapólitíkin,“ segir
hún.
Þrátt fyrir þessar fullyrðingar er
samt ákveðinn þungi í flæði fólks
frá Vöku yfir í Sjálfstæðisflokkinn
og viðurkennir Helga að svo sé.
Lilja Guðrún Jóhannsdóttir,
stjórnarmaður í Röskvu, tekur í
sama streng. „Við leggjum áherslu
á jafnrétti allra til náms og mögu-
lega telst það vinstra megin en við
skilgreinum okkur ekki sem vinstri
flokk,“ segir hún.
Báðar fylkingar þvertaka fyrir að
nokkur samvinna sé við stjórn-
málaflokkana.
Úrelt eða þrautreynt
Eingöngu nemendur við Há-
skóla Íslands nota framboðslista-
fyrirkomulag við val á fulltrúum í
stjórn samtaka nemenda. Báðir
talsmenn segjast mjög ánægðir
með ríkjandi fyrirkomulag og hafa
engan áhuga á að breyta því. Það sé
ákveðin hagræðing í þessu þar sem
það væri kostnaðarsamt fyrir hvern
og einn að standa í kosningabar-
áttu og stúdentar séu að auki frekar
einsleitur hópur sem hafi svipuð
baráttumál.
Síðast en ekki síst fari reynslan
ekki úr skólanum þegar fólk hættir.
,,Við lítum líka til þess að þetta er
mun betra fyrir minni deildir, ef
þetta væru einstaklingskosningar
myndi fólk frá stærri deildunum
ráða ríkjum í Stúdentaráði á kostn-
að hinna.“
Pólitísk tengsl „mýta“
Vaka og Röskva ánægðar með ríkjandi fyrirkomulag í kjöri til Stúdentaráðs Engin
tengsl við stjórnmálaflokka, segja talsmenn listanna Stúdentar kjósa sér fulltrúa í dag
Háskóli Íslands Stúdentar við HÍ eru
þeir einu, sem enn nota framboðslista
við val á fulltrúum sínum.
➤ Menn sem nýlega voru áber-andi í átökum í borgarstjórn
voru í stúdentapólitík.
➤ Björn Ingi Hrafnsson var íStúdentaráði fyrir Röskvu
1997-1999.
➤ Gísli Marteinn Baldursson satí SHÍ fyrir Vöku 1994-1996.
➤ Dagur B. Eggertsson var í SHÍfyrir Röskvu 1994-1996.
ÆFINGABÚÐIR?
Árvakur/Sverrir
Landsvirkjun hefur tekið aftur
til skoðunar áform um bygg-
ingu Búðarhálsvirkjunar. Þó
er eftir sem áður stefnt að því
að byggja fyrst nýjar virkjanir
í neðri hluta Þjórsár í því
skyni að selja orku til há-
tækniiðnaðar á Suður- og
Suðvesturlandi. Landsvirkjun
segir eftirspurn eftir raforku
meiri en sem nemur orkugetu
virkjananna þriggja í neðri
hluta Þjórsár. mbl.is
Búðarhálsvirkjun
Þjórsá í byggð
virkjuð fyrst
Ásta Valdimarsdóttir hefur
verið kosin í stjórn Evrópsku
einkaleyfastofunnar. Ásta er
forstjóri Einkaleyfastofunnar
en hún hefur verið fulltrúi Ís-
lands í framkvæmdaráði Evr-
ópsku einkaleyfastofunnar frá
því að Ísland gerðist aðili að
Evrópsku einkaleyfastofunni
1. nóvember 2004. aak
Evrópsk einkaleyfi
Ásta í stjórn