24 stundir - 07.02.2008, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 24stundir
ÁSTANDHEIMSINS
frettir@24stundir.is a
Þótt ég hafi aldrei haft neitt á móti því að vera í hlutverki
lítilmagnans og hafi jafngaman af óvæntum sigri og hver
annar, þá held ég að við verðum núna að venjast þeirri hugmynd
að ég sé forystukólfur Repúblikanaflokksins. John McCain
John McCain hefur forskot í bar-
áttunni um forsetatilnefningu
Repúblikanaflokksins eftir að
flokksmenn 24 fylkja Bandaríkj-
anna gengu að kjörborðinu á
þriðjudag. Demókratarnir
Hillary Clinton og Barack Obama
eru enn hnífjöfn í baráttu sinni.
Góður árangur McCains þykir
sérstaklega eftirtektarverður þar
sem framboð hans var svo gott
sem afskrifað síðasta sumar.
„Þótt ég hafi aldrei haft neitt á
móti því að vera í hlutverki lít-
ilmagnans og hafi jafngaman af
óvæntum sigri og hver annar, þá
held ég að við verðum núna að
venjast þeirri hugmynd að ég sé
forystukólfur Repúblikanaflokks-
ins,“ sagði McCain blaðamönn-
um þegar úrslit fóru að skýrast.
Sigur McCains er ekki í höfn, en
fleiri fylki munu kjósa á næstu
dögum og vikum.
Mike Huckabee, sem er þriðji í
röð repúblikana, segist ekki af
baki dottinn. „Svo lengi sem er
hægt að vinna atkvæði og kjör-
fulltrúa, þá er einn náungi sem
svarar bjöllunni í hvert sinn sem
ný lota hefst,“ sagði Huckabee. aij
John Mc-
Cain sigur-
stranglegur
AFPStolt móðir Roberta McCain fylgist með syni sínum á kosningavöku í Phoenixborg aðfaranótt miðvikudags. Roberta fagnar í dag 96 ára afmæli sínu.
Fjallið flúið Íbúar Baños í Ekvador flýja undan gosi í eldfjallinu Tungurahua. Hraun byrjaði að flæða úr gíg fjallsins í gær.
Verkefnalítill Það var lítið að gera hjá þessum burðarmanni í Kolkata á Indlandi, enda
Vestur-Bengalhérað lamað vegna allsherjarverkfalls.
Marserandi Mörgæsirnar í Ashiyama-dýragarðinum í Japan fara daglega í heilsubótargöngu, gestum garðsins til mikillar ánægju.
Útför Sautján ára drengurinn Radeeswaran Rajaratnam var borinn til grafar á Srí
Lanka í gær. Hann var meðal sjö fórnarlamba sjálfsmorðsárásarmanns á sunnudag.