24 stundir - 07.02.2008, Side 23

24 stundir - 07.02.2008, Side 23
24stundir FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 23 ➤ Fyrirtæki leita sífellt meira tilIndlands og Kína, aðallega af tveimur ástæðum. Löndin eru mannmörg og mikill hag- vöxtur hefur verið þar und- anfarin ár. LÖND TÆKIFÆRANNA Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur thorakristin@24stundir.is Íslenskum fyrirtækjum sem hefja viðskipti á Indlandi fjölgar stöð- ugt. Í fyrra fjárfesti Kaupþing í ind- verska fjármálafyrirtækinu Fi- Noble og Askar Capital opnuðu skrifstofu í Mumbai síðastliðinn nóvember. „Við finnum fyrir vaxandi áhuga á Indlandi og fyrirtækin sem skoða Indlandsmarkað eru mjög fjölbreytt,“ segir Guðjón Svansson, forstöðumaður nýrra markaða hjá Útflutningsráði. „Aukin áhersla á Indland sést m.a. á því að á næstu árum munum við skipuleggja 1-2 ferðir til landsins á ári,“ segir hann. Indland vaxandi markaður „Indland er á hægri en öruggri siglingu og þar hefur verið hag- vöxtur um langt skeið. Það sem er sérstaklega spennandi eru hinar ört vaxandi millistéttir sem hafa mikið fé á milli handanna. Svo er mikilvægt að á milli íslenskra og indverskra viðskiptamanna hafa skapast mjög góð persónuleg tengsl,“ segir Guðjón. Glitnir virkjar á Indlandi Í gær tilkynnti Glitnir að fyr- irtækið hygðist opna skrifstofu á Indlandi og hefja samstarf við LNJ Bjhilwara Group, einn af 50 stærstu fjárfestum Indlands, um þróun jarðvarmavirkjana þar og í Nepal. Glitnir kemur með sérfræð- inga í nýtingu jarðvarma inn í samstarfið ásamt því að afla fjár- festa til að fjármagna verkefnið á hinum ýmsu stigum en Bjhilwara Group leggur til þekkingu á ind- verskum markaði. Lagt er upp með að Glitnir ráði yfir 40% hlutabréfa og Bjhilwara Group 60%. „Glitnir kom á fót farsælu verk- efni í Kína þar sem sérþekking og fjárhagsleg aðkoma Glitnis að verkefninu nýttist til að hita stór svæði í Xian Yang-héraðinu,“ segir Lárus Welding, forstjóri Glitnis, og bætir við að Indland sé rökrétt framhald af því verkefni. Bala Kamallakharan, fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs Glitn- is, hefur leitt verkefnið á Indlandi. Hann segir landið þurfi að nýta all- ar mögulegar orkulindir, sérstak- lega þær endurnýtanlegu, þar sem orkuþörf Indverja hafi aukist. Í útrás til Indlands  Íslenskum fyrirtækjum sem hefja viðskipti á Indlandi fjölgar stöðugt og áhugi eykst Indland Forsetahjónin í opinberri heimsókn Árvakur/Rax Skv. lögum Kóransins mega múslímar ekki greiða vexti og geta því ekki tekið bankalán. Í Danmörku verður þessi vandi leystur fljótlega því þar hafa fjórir sparisjóðir búið til stofnunina Amanah Kredit sem er með annað lánakerfi en aðrir bankar. Í stað þess að kúnninn fái lán til kaupa á t.d. fasteign, kaupir fyrirtækið eignina. Kúnninn kaupir svo viðkomandi eign með mán- aðarlegum afborgunum, á t.d. 30 árum. Kerfið er nýtt í Dan- mörku en hefur lengi verið fyrir hendi annars staðar, t.d. í Bretlandi. þkþ Danskir sparisjóðir Múslímar fá loksins lán Það er fjárhagslega hagkvæmt fyrir fyrirtæki að taka tillit til fatlaðra, að mati Páls Ásgeirs Davíðssonar, sérfræðings á lagadeild Háskólans í Reykja- vík. Hann bendir á að ekki að- eins styrki stuðningur við fatl- aða samfélagsstöðu og orðstír fyrirtækisins heldur séu fatl- aðir og aðstandendur þeirra stór hópur neytenda og fjár- festa. Þá sé mikilvægt að at- huga að í mörgum löndum eru lög um að fatlaðir starfs- menn og neytendur njóti sömu meðferðar og ófatlaðir. Þannig er tillit til fatlaðra vörn gegn bótakröfum. þkþ Samfélagsleg ábyrgð Fjárhagslega hagkvæmt Fjárfestar í Asíu eru margir hverjir farnir að leita til feng shui meistara til þess að fá spár um markaðina á árinu sem nú er að hefjast, ári rottunnar. Meist- ararnir spá erfiðu ári fyrir hluta- bréfamarkaðinn og halda einnig að gengi dollarans verði áfram veikt. Hins vegar verði árið gott fyrir alla sem eru í iðnaði tengd- um jörðinni, eins og málmiðnaði og byggingu fasteigna. þkþ Feng Shui í stað hagfræðinga Landsframleiðsla á mann á Íslandi var sú sjötta mesta af 36 Evr- ópuríkjum árið 2006 og 30% hærri meðaltalið innan ESB árið 2006 skv. bráða- birgðatölum frá Hagstofunni. Mest var landsframleiðsla á mann í Lúxemborg sem skýrist af þeim fjölda fólks sem starfar og verslar í landinu en býr utan landamæranna. Ísland er hins vegar hæst hvað varðar hlutfalls- legt verðlag Til að kaupa það sem kostaði 100 evrur að meðaltali í Evrópu þurfti að borga 142 á Ís- landi. Fyrir mat og drykk sem að meðaltali kostaði 100 evrur innan ESB greiddu Íslendingar 164. þkþ Ísland í sjötta sæti í Evrópu • Bylting fyrir bakið • Styrkir magavöðvana • Frelsi í hreyfingum • Með eða án hjóla Swopper vinnustóllinn www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Kletthálsi 11 sími 590 5044 www.bilathing.is bilathing@bilathing.is Opið 10-18 virka daga og 10-14 laugardaga M SKODA B IFR EIÐ UM ÍKL R %

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.