24 stundir


24 stundir - 07.02.2008, Qupperneq 32

24 stundir - 07.02.2008, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 24stundir LÍFSSTÍLLHEILSA heilsa@24stundir.is a Það er svo oft sem lögreglan eða náms- fulltrúi kemur í skólann og er með Powerpoint uppi á töflu. Enginn nennir að hlusta og helmingur af bekknum er sofandi. Nú þegar jörð er víða snævi þak- in og hált á götum er upplagt að draga fram gönguskíði til að koma kroppnum á hreyfingu. Áhugafólk um skíðagöngu á höfuðborgar- svæðinu stofnaði Skíðagöngufélag- ið Ull á vordögum 2007 til að auka veg íþróttarinnar. Félagar eru á milli 70 og 80 og segir Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, einn forsvars- manna félagsins, að í þeim hópi sé bæði keppnisfólk og þeir sem gangi sér til heilsubótar. „Mörg okkar stunda hlaup á sumrin og skíða- göngu á veturna. Þetta fer mjög vel saman því að þetta er náttúrlega þolíþrótt,“ segir hún. „Þetta er alhliða hreyfing sem eykur þol og kraft og reynir mikið á efri hluta líkamans. Maður þarf líka að hafa styrk í þetta og vera sterkur í baki, maga og upphand- leggjum,“ segir Hólmfríður Vala. Ull stendur fyrir Bláfjallagöng- unni á laugardag en hún er liður í Íslandsgöngu Skíðasambands Ís- lands. „Þetta er stærsti viðburður- inn hjá okkur á árinu og mikið lagt í hana,“ segir hún. Þeim sem vilja kynna sér betur Bláfjallagönguna eða félagið er bent á vefsíðu þess: www.skida- gongufelagid.blog.is. Tími gönguskíðanna er runninn upp Hreyfing sem eykur þol og kraft Alhliða hreyfing Skíðaganga er góð alhliða hreyfing sem hentar fjölskyldunni einnig vel. Farsímanotendur geta andað léttar því ný rannsókn hefur leitt í ljós að farsímanotkun eykur ekki hættuna á myndun heilaæxla. Jap- anskir vísindamenn stóðu að rann- sókninni sem er sú fyrsta þar sem könnuð eru áhrif geislunar á ólíka hluta heilans. Í henni voru bornir saman 322 sjúklingar með krabba- mein í heila og 683 heilbrigðir ein- staklingar. Krabbameinssjúklingarnir voru allir með eitt af þremur algengustu heilakrabbameinum. Hverjum sjúklingi var gefin einkunn eftir því hversu lengi þeir höfðu notað far- síma og hve lengi þeir töluðu í hann á degi hverjum. Ennfremur mældu vísinda- mennirnir geislun sem mismun- andi tegundir farsíma gefa frá sér og könnuðu með hvaða hætti sím- arnir hefðu áhrif á ólíka hluta heil- ans. Flestar rannsóknir sem gerðar hafa verið á tengslum farsímanotk- unar og krabbameins hafa ekki sýnt fram á skaðsemi hennar. Farsímanotkun og hætta á krabbameini Valda ekki krabba Eftir Einar Jónsson einarj@24stundir.is Engum blandast hugur um að fíkniefnabölið sé eitt helsta heil- brigðisvandamál nútímans. Það er því mikilvægt að vel sé staðið að forvörnum og fræðslu um skað- semi fíkniefna, ekki síst þegar börn og ungmenni eiga í hlut. Nokkrir unglingar úr leikfélaginu Borgar- börnum leggja sitt af mörkum til forvarna með söngleiknum Alsælu sem frumsýndur verður í Borg- arleikhúsinu á laugardag. Í verkinu er söng, dansi og leik blandað saman við fræðslu um skaðsemi fíkniefna. Blaðagrein kveikja verksins Auður Bergdís Snorradóttir, einn leikaranna, segir að frétt í dagblaði hafi verið kveikjan að verkinu. „Björk (Jakobsdóttir) leikstjóri sá grein um stelpu sem hafði dáið eftir að hafa tekið að- eins eina e-pillu. Henni fannst þetta svo merkilegt og við ræddum um þetta í tímanum,“ segir Auður og bætir við að hugmyndir að verkinu hafi verið spunnar út frá hugmyndum Bjarkar. Ekki eintómur ömurleiki Verkið sjálft skiptist niður í nokkrar senur sem draga upp ólík- ar hliðar fíkniefnaneyslunnar. „Í einni senunni er stelpa að flýja frá fjölskyldu sinni, í annarri segir fræg kona frá neyslu sinni og hvernig hún þykist vera betri en allir aðrir. Svo er ein sena á geð- veikrahæli og önnur á skemmti- stað þar sem þetta byrjar allt sam- an,“ segir Auður. Þrátt fyrir ömurleikann eru áhorfendur ekki skildir eftir án vonar því verkið sýnir einnig fram á að hægt er að snúa baki við böl- inu og segja nei. Lifandi fræðsla Leikararnir eru allir nemendur í grunn- eða framhaldsskóla en á þeim aldri byrja einmitt margir að fikta með fíkniefni. Auður segir að þessi framsetning fræðslunnar höfði til unglinga. „Það er svo oft sem lögreglan eða námsfulltrúi kemur í skólann og er með Po- werpoint uppi á töflu. Enginn nennir að hlusta og helmingur af bekknum er sofandi. Þetta er aftur á móti lifandi og fullt af söngvum og dönsum. Þegar unglingar segja frá höfðar það miklu meira til manns af því að þetta eru jafn- ingjar manns,“ segir Auður og bætir við að þegar fullorðnir sjái um fræðsluna tali þeir oft dálítið niður til unglinganna. Alsæla verður sýnd í Borgarleik- húsinu í febrúar og fara sýningar fram á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum. Hægt er að panta miða á verkið í miðasölu Borgarleikhússins. Unglingar setja upp söngleik um skaðsemi fíkniefna Forvarnir sem ná eyrum unglinga Borgarbörn nota ekki þurrar Powerpoint- glærur til að fræða jafn- aldra sína um skaðsemi fíkniefna heldur setja þau upp lifandi leiksýn- ingu með dansi og söng. Frétt í dagblaði var kveikjan að sýningunni. Jafningjafræðsla Leik- hópurinn Borgarbörn setur upp leiksýningu til að fræða jafnaldra sína um skaðsemi fíkniefna. ➤ Borgarbörn eru leikfélag inn-an Sönglistar, leik- og söng- skóla sem er starfræktur í Borgarleikhúsinu. ➤ 12 leikarar taka þátt í sýning-unni og eru allir á aldrinum 15-19 ára. ➤ Ragnheiður Hall er söngstjórií verkinu, Halla Ólafsdóttir danshöfundur og Valdimar Kristjónsson tónlistarstjóri. BORGARBÖRN Í tilefni af Tannverndarvikunni sem nú stendur sem hæst er ekki úr vegi að hvetja fólk til að drekka vatn í stað gosdrykkja eða annarra sykraðra drykkja sem geta leikið glerunginn grátt. Vatnið er ekki aðeins ódýrt held- ur er auðvelt að nálgast það þar sem það bíður manns í næsta krana. Í stað þess að sötra gos all- an liðlangan daginn er upplagt að setja svalt vatn í plastflösku og hafa við höndina í skólanum eða í vinnunni. Foreldrar ættu enn fremur að hvetja börn sín til að drekka meira vatn enda hafa rannsóknir sýnt að gosdrykkja íslenskra barna er meiri en góðu hófi gegn- ir. Hollur svaladrykkur Það styttist í að borgarbúar geti stundað heilsu- rækt í hæstu hæðum því næst- komandi mánu- dag verður ný World Class-stöð í Turninum í Kópavogi opnuð almenningi. Stöðin er á 15. hæð í byggingunni og því gott útsýni yfir Kópavog og nágrenni. Stöðin er 700 fermetrar að stærð og þar er fullkominn tækjasalur. Sama kort gildir í nýju stöðina og aðrar stöðvar World Class auk þess sem korthafar hafa aðgang að þremur sundlaugum. Heilsurækt í Turninum Ef menn þurfa að lækka blóð- þrýstinginn getur verið gott ráð að bæta rauðrófum á matseð- ilinn. Niðurstöður nýrrar breskr- ar rannsóknar benda til þess að með því að drekka hálfan lítra af rauðrófusafa á dag geti maður dregið verulega úr blóðþrýstingi. Rauðrófur eru nítratríkar og er talið að það hafi þessi áhrif á þrýstinginn. Rauðrófur draga úr blóðþrýstingi Skólavörðustíg 21 - Sími - 551 4050 - Reykjavík Gullfalleg sængurverasett aldrei meira úrval

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.