24 stundir - 07.02.2008, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 24stundir
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Ótakmarkað niðurhal er 80 gígabæt og það
er núna búið að hefta þessa 12 megabæta
tengingu mína niður í 512. Ég get ekkert sagt eða
gert annað en segja upp áskriftinni minni.
Bandaríska hljómsveitin Band of
Horses hefur boðað komu sína á
Hróarskeldu-hátíðina sem fer
fram í Danmörku dagana 3. til 6.
júlí.
Band of Horses sló í gegn með
laginu Funeral árið 2006 – sama
ár og fyrsta breiðskífa sveit-
arinnar, Everything All the Time,
kom út. Í fyrra kom svo út önnur
breiðskífa Band of Horses, Cease
to Begin. afb
Band of Horses
á Hróarskeldu
Kylie Minogue hefur vísað til föð-
urhúsanna sögusögnum þess efn-
is að hún og fyrrverandi kærast-
inn, Olivier Martinez, séu farin
að stinga saman nefjum á ný.
„Tíkin mín, hin yndislega Sheba,
er sú eina sem sefur í rúminu
mínu. Olivier og ég erum bara
vinir eins og við höfum alltaf ver-
ið,“ sagði leikkonan eftir að hafa
ítrekað sést með Olivier í Frakk-
landi á dögunum. hþ
Bara með hund-
inn í rúminu
Faðir söngkonunnar Jennifer Lo-
pez hefur staðfest orðróm um að
stjarnan gangi með tvíbura. „Já,
það eru tvíburar á leiðinni. Þetta
virðist vera gegnumgangandi í
fjölskyldu minni, en systir mín
átti einnig tvíbura,“ sagði David
Lopez í viðtali við sjónvarpsstöð-
ina Escándalo. „Ég er mjög stolt-
ur. Jennifer hefur sjálfa langað til
þess að verða móðir í mörg ár,“
bætti afinn við. hþ
Tvíburar á leið-
inni hjá Lopez
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
„Ég er með 12 megabæta tengingu
og ótakmarkað niðurhal. Ótak-
markað niðurhal er 80 gígabæt og
það er núna búið að hefta þessa 12
megabæta tengingu mína niður í
512. Ég get ekkert sagt eða gert
annað en segja upp áskriftinni
minni,“ segir Jóhann Kiesel, við-
skiptavinur Símans, um ástand
nettengingar sinnar eftir að Sím-
inn setti hömlur á hann fyrir að
hafa farið yfir kvótann á erlendu
gagnamagni. Síminn er síður en
svo eina fyrirtækið sem setur tak-
markanir á ótakmarkað niðurhal.
Hægt eða aftengt
Þrátt fyrir að auglýsingar gefi
annað til kynna eru íslensku fjar-
skiptafyrirtækin með takmarkanir
á niðurhali viðskiptavina sinna
sem telja sig vera með ótakmarkað
niðurhal. Fyrirtækin setja sér sér-
stök mörk sem viðskiptavinir eiga
helst ekki að fara yfir. Þeir sem fara
yfir þessi mörk geta átt von á því
að hægt verði á tengingu þeirra,
þeir aftengdir um stundarsakir eða
þá fyrir fullt og allt.
Hrannar Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi Vodafone, segir að tak-
markanirnar á Vodafone-
tengingum ættu ekki að koma
neinum á óvart. „Þetta gagnamagn
sem um ræðir er skilgreint í skil-
málum sem eru tengdir hverjum
viðskiptum þannig að þetta á að
vera öllum ljóst.“
Hann segir að flestir við-
skiptavinir Vodafone, um 99,9
prósent, séu undir þessum mörk-
um og þar að leiðandi sé nið-
urhalið ótakmarkað fyrir nær alla
viðskiptavini. „Ég held því að orð-
ið ótakmarkað sé miklu nær því að
vera lýsandi fyrir fólk heldur en að
segja 80 gígabæta niðurhal.“
Hive í sérstöðu
Hive er eina fjarskiptafyrirtækið
sem stendur við loforðið um ótak-
markað niðurhal. „Hive var fyrst
til að bjóða ótakmarkað niðurhal
og hefur ekki takmarkað það síðan
það kom á markaðinn,“ segir Óm-
ar Ægisson, sölu- og markaðsstjóri
Hive.
Villandi auglýsingar fjarskiptafyrirtækja
Niðurhalið er
ekki ótakmarkað
Ótakmarkað er í raun takmarkað
Flestir ættu þó að sleppa við takmarkanir.
➤ Síminn: Erlent niðurhal meiraen 20 gígabæt á viku.
➤ Vodafone: Erlent niðurhal yfir80 gígabæt á mánuði.
➤ Sko: Erlent niðurhal yfir 80gígabæt á mánuði.
➤ Hive: Ekki neinar takmarkanir.
TAKMARKAÐ NIÐURHAL
Öll símafyrirtækin aug-
lýsa ótakmarkað erlent
niðurhal en flest þeirra
setja þó takmarkanir á
hið endalausa. Þeir sem
hala of mikið niður fá
skerta þjónustu.
American Idol-dómarinn Paula
Abdul virðist ekki hafa sagt sitt
síðasta í poppbransanum. Söng-
konan hyggst nú gefa út nýja
plötu, en þetta mun vera hennar
fyrsta í 13 ár. Ekkert hefur verið
látið uppi varðandi plötuna sjálfa
en á heimasíðu söngkonunnar
segir að nýja platan muni að lík-
indum líta dagsins ljós sumarið
2008. hþ
Paula sendir frá
sér nýja plötu