24 stundir - 07.02.2008, Blaðsíða 46

24 stundir - 07.02.2008, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 24stundir „Við vorum að vigta okkur í Sundlaug Akureyrar, bosmamikl- ir alvörukarlmenn. Menn heyrð- ust taka andköf þegar stafræn vogin birti þeim nöturlegan sannleikann. Einn vildi ekki á vigtina. Kvaðst ekkert hafa með það að gera. Hann væri ánægður með sig eins og hann væri.“ Séra Svavar Alfreð Jónsson svavaralfred.blog.is „Ekki tekur betra ár við hjá Kín- verjunum, ár rottunnar, kannski dönsku fjölskyldurnar væru til í að senda sínar rottur til Kína. Nei, það er ekki gerandi grín að þessu, en hvað skyldu þeir hafa verið að elda á Nings þegar allt í einu tók að skíðloga í öllu hjá þeim?“ Ásdís Sigurðardóttir asdisomar.blog.is „Tarantúla er er frekar óhugn- anlegt kvikindi og baneitrað. Ég skil nú ekki hvað fólk hefur út úr því að hafa svona gæludýr, nema til ógnunar.Fóðraði hana á mús- um, þvílíkur vibbi. Hann hlýtur að hafa fengið eitthvað út úr því- að horfa á hana éta mýsnar.“ Guðrún Emilía Guðnadóttir milla.blog.is BLOGGARINN Eftir Atla Fannar Bjarkason atli@24stundir.is „Það verður gaman að hitta hann. Ég hitti þá alla þrjá í janúar og það var mjög gaman,“ segir Emil Grímsson, framkvæmdastjóri Arc- tic Trucks, um hinn skelegga sjón- varpsmann Jeremy Clarkson, einn af stjórnendum bílaþáttarins Top Gear. Jeremy Clarkson er væntanlegur til landsins í dag. Hann verður sér- stakur heiðursgestur á forsýningu Top Gear-þáttar í Laugarásbíói sem fjallar um ferð Top Gear, Toyota í Bretlandi og Arctic Trucks á Íslandi á segulpólinn í apríl á síð- asta ári. Emil Grímsson var einn þriggja Íslendinga sem voru með í för. Hann segir þremenningana í Top Gear hafa verið mjög skemmtilega ferðafélaga. „Þeir eru algjörir snill- ingar,“ segir hann. „Jeremy [Clark- son] og James [May] eru mjög líkir sjálfum sér úr þáttunum. Þeir djóka og grína mikið.“ Ferðin á pólinn var þó ekkert spaug og mun erfiðari en bresku félagarnir gerðu sér grein fyrir að sögn Emils. „… Það rann upp fyrir þeim þegar við fórum út fyrir það svæði þar sem erfitt var að fá að- stoð,“ segir hann. „Þá áttuðu þeir sig á því að við vorum eitt lið sem varð að standa saman.“ Enginn íburður Hallveig Andrésdóttir hjá Arctic Trucks segir að Jeremy Clarkson sé að gera félögum sínum hjá Arctic Trucks greiða með því að mæta til landsins á forsýningu þáttarins. Top Gear er með vinsælustu sjón- varpsþáttum Bretlands með yfir átta milljónir áhorfenda í viku hverri. Jeremy Clarkson er því með þekktari mönnum Bretlandseyja, en þrátt fyrir það fór hann ekki fram á neinn íburð á ferðalagi sínu til landsins. „Við höfum ekki feng- ið kröfur um eitt né neitt frá hon- um,“ segir Hallveig og hlær. „Þrír af starfsmönnum okkar voru með í leiðangrinum. Þó að menn séu stjörnur þá myndast vinátta og traust milli manna þegar þeir eru háðir hver öðrum til að komast til byggða aftur. Hann er að gera okk- ur greiða með að koma.“ Þátturinn um ferðalagið verður sýndur á Skjá einum á sunnudag. Breski sjónvarpsmaðurinn Jeremy Clarkson mætir til landsins Clarkson horfir á Top Gear á Íslandi Jeremy Clarkson úr sjón- varpsþáttunum Top Gear er væntanlegur til lands- ins í dag. Tilefnið er for- sýning á Top Gear-þætti þar sem þrír Íslendingar komu mikið við sögu. Á pólnum Ferðin á seg- ulpólinn var ekkert grín. HEYRST HEFUR … Moli sem birtist í þessum dálki í gær um auglýs- ingar DV í kvikmyndahúsum, þar sem Sigurjón M. Egilsson, fyrrverandi ritstjóri DV og núverandi rit- stjóri Mannlífs, tilkynnir gestum að hann sé ritstjóri blaðsins sló í gegn á ritstjórn DV. En þegar hlátr- inum linnti brugðust Reynir Traustason, núver- andi ritstjóri DV, og félagar skjótt við og létu fjar- lægja auglýsinguna úr kvikmyndahúsum. afb Í Bakþönkum Fréttablaðsins á þriðjudag lagði pistla- höfundurinn Karen D. Kartansdóttir þessi orð út- varpsstjóranum Páli Magnússyni í munn: „Ég er þeirrar skoðunar að RÚV eigi ekki að vera á auglýs- ingamarkaði …“ Þá skýtur Karen föstum kaldhæðn- isskotum að Páli í framhaldinu, en pistillinn ber nafnið „Elsku Páll“ og fjallar um beltið og axlabönd- in sem RÚV fær að bera umfram aðra miðla ... Er Páll Magnússon las pistilinn brá honum þó held- ur betur í brún enda kannaðist hann ekki við þessi ummæli sem Karen lagði honum í munn. Eftir sam- tal þeirra tveggja kom upp úr dúrnum að það var ekki Páll sem sagði þessi fleygu orð heldur Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylking- arinnar! Óskaði Páll eftir leiðréttingu Fréttablaðsins á mistökunum. Þjóðin (61,8%) bíður spennt. tsk Ólafi Má Ægissyni brá heldur betur í brún um síðustu helgi, þeg- ar hann hugðist sækja skemmti- staðinn Vegamót heim ásamt vini sínum. „Eftir langa bið í röðinni var loks komið að okkur félögunum. Ég var frekar snyrtilega til fara eins og ævinlega og skartaði aukreitis sixpensara, en félagi minn var með derhúfu. Við vorum þó vinsamleg- ast beðnir að fjarlægja höfuðfötin, sem við og gerðum. Hinsvegar þegar við létum þau upp aftur inni á staðnum kom stæðilegur dyra- vörður að okkur og lét félaga minn fjarlægja höfuðfatið og tók fram að slíkt væri bannað, ásamt hettu- peysum, því slíkur klæðnaður væri einkennisklæðnaður Pólverja! Þá sprungum við úr hlátri auðvitað,“ sagði Ólafur, örlítið hneykslaður. Óvarlegt orðalag dyravarðarins Rósella Pétursdóttir, vaktstjóri á Vegamótum, segist harma orðalag dyravarðarins, en það sé hans eig- ið, ekki stefna staðarins. „Þetta hljóta að hafa verið ein- hverjir persónulegir fordómar hjá dyraverðinum. Vissulega erum við þó með reglur um klæðaburð líkt og tíðkast víða. Víður hip-hop- klæðnaður, hettupeysur og derhúf- ur, er ekki leyfður,“ segir Rósella og bætir við að útlendingar séu allir velkomnir á staðinn. „Þeir hafa þó kosið að halda sig meira á öðrum stöðum. Annars er staðurinn vin- sæll hjá öllum kynþáttum og hing- að mega allir koma, svo framarlega sem þeir virða reglur okkar um klæðnað og framkomu,“ sagði Ró- sella í lokin. traustis@24stundir.is Lentu á fordómafullum dyraverði Bannað að klæðast eins og Pólverjar Hnuss! Ólafi þótti dyravörðurinn heldur óvæginn í garð Pólverja. Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 7 9 3 8 1 5 2 4 6 8 1 4 6 2 3 7 9 5 2 5 6 7 9 4 8 1 3 3 2 1 9 5 7 4 6 8 9 6 5 1 4 8 3 2 7 4 7 8 2 3 6 9 5 1 5 4 2 3 7 1 6 8 9 6 3 9 5 8 2 1 7 4 1 8 7 4 6 9 5 3 2 Einhverjar spurningar? 24FÓLK folk@24stundir.is a Nei, ekki eftir að tannburstinn var fundinn upp fyrir nokkrum árum. Eru Bolvíkingar ekkert hræddir við Karíus og Baktus? Grímur Atlason er bæjarstjóri Bolungarvíkur, sem er eini staðurinn á landinu þar sem krakkar maska þrjá daga í röð. Auk þess er enginn tannlæknir starfandi í plássinu. Jeremy Clarkson Mætir til landsins í dag.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.