24 stundir - 07.02.2008, Qupperneq 48
24stundir
ER MEÐ TENGI FYRIR iPOD
SIMPLY CLEVER
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Se
x ö
ry
gg
isl
of
tp
úð
ar
ES
P s
tö
ðu
gl
eik
ak
er
fi
Hi
ti
í s
æt
um
CD
og
M
P3
sp
ila
ri
Te
ng
i f
yr
ir
iP
od
Þr
ír
hö
fu
ðp
úð
ar
að
af
ta
n
Ra
fd
rif
na
r r
úð
ur
að
fr
am
an
og
af
ta
n
Fja
rs
tý
rð
sa
m
læ
sin
g
Þo
ku
ljó
s
Hæ
ða
rs
til
lin
g á
ök
um
an
ns
sæ
ti
Hr
að
as
til
lir
og
m
ar
gt
fl
eir
a
Rí
ku
leg
ur
st
að
al
bú
na
ðu
r: Verð:
1.720.000 kr.
Mánaðarleg útborgun: 17.200 kr.*
Komdu og eigðu stefnumót við Skoda Fabia.
Þú finnur strax að leitinni er lokið.
*M.v. 30% útborgun og bílasamning til 84 mánaða.
Árleg hlutfallstala kostnaðar: 6,57%.
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
? Sumar reglur eru ruglingslegri en aðr-ar, til dæmis nýju reglurnar í borg-arpólitíkinni. Hver er kosinn út, hvermyndar bandalag með hverjum, hvervinnur Survivor? Langlokan er algjör ogþeir sem tapa geta risið upp á ný, svipaðog í hinum ágætu Laugardagslögum áRÚV. Reglurnar í þeim þætti eru tví-
mælalaust besta skemmtun hans, sem
hlýtur beinlínis að hafa verið meiningin.
Eða hvernig er hægt að túlka það öðru-
vísi að níu manns hafi verið valdir til að
semja þrjú Júróvisjónlög hver, sem sé 27
lög, en þess utan hafi dómnefnd valið
sex stykki úr 146 innsendum lögum? Að
keppnin hafi hafist með 33 lögum í 11
þáttum?
Í hverri viku komst eitt lag áfram en
taparar höfðu þó ekki verið slegnir út,
ekki frekar en í borginni. Þeir kepptu sín
á milli á Rás 2, þar sem til varð pottur
með 11 lögum. Sérskipuð dómnefnd
valdi loks úr honum þrjú lög sem kepptu
í aukaþætti. Þaðan komst eitt lag áfram.
Fylgið þið mér?
100 dögum eftir að keppnin hófst var
hægt að hefja undankeppnirnar. Ha,
voru þær ekki búnar? Nei, nú átti að
fækka úr 12 lögum í 8. Og af hverju þá
ekki að halda fjórar undankeppnir sem
samtals taka mánuð? Örvæntið eigi, úr-
slitin munu fara fram – þó ekki fyrr en
upphitunarþátturinn er afstaðinn.
Stóra spurningin er hvort úrslitin í
borginni eru búin eða hvort við erum
enn stödd í langri undankeppni með
einkennilegum reglum. Kannski þetta
hafi allt bara verið upphitun.
Borgarstjóri og Júróvisjón
Sigríður Víðis
Jónsdóttir
missti þráðinn
Hverjir
eru komnir
í úrslit?
YFIR STRIKIÐ
24 LÍFIÐ
Flest fjarskiptafyrirtækin auglýsa
ótakmarkað niðurhal, en setja
þrátt fyrir það takmark-
anir á hið endalausa.
Niðurhalið er
ekki ótakmarkað
»38
Ólafi Ægissyni brá þegar fordóma-
fullur dyravörður bannaði honum
að klæða sig eins og
Pólverji á skemmtistað.
Bannað að klæðast
eins og Pólverjar
»46
Jeremy Clarkson úr sjónvarpsþátt-
unum Top Gear lendir á Íslandi í
dag og horfir á þáttinn
sinn í Laugarásbíói.
Top Gear-snilling-
urinn í Reykjavík
»46
● Bítlarnir Í dag
hefst forsala að-
göngumiða á stór-
tónleika í Laug-
ardalshöll, þar sem
Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands ásamt
valinkunnum tón-
listarmönnum
flytur meistarastykki Bítlanna, Sgt.
Peppeŕs Lonely Hearts Club. Einn
þeirra er Björgvin Halldórsson.
„Mér líst þrælvel á þetta. Þetta er
platan sem mín kynslóð ólst upp
við og allir þekkja lögin. Ég hef nú
sungið þau flest áður, en ég tek
þarna Long and Winding Road,
Fixing a Whole og Golden Slum-
bers svo einhver séu nefnd.“
● Ekki græn
Umhverfis-
ráðherra hefur
ákveðið að skipa
Kristínu Lindu
Árnadóttur for-
stjóra Umhverf-
isstofnunar til
næstu fimm ára.
„Ég hlakka mikið til að stuðla að
opinni og góðri umræðu um
umhverfismál almennt í sam-
félaginu og fá fólk með okkur til
samstarfs til verndar umhverf-
inu. Ég hef mikinn áhuga á
málaflokknum en þetta hefur
verið mitt starfssvið frá því ég
lauk lögfræðináminu. Það er því
varla hægt að segja að ég sé neitt
rosalega græn í umhverfismál-
unum.“
● Fundahöld
„Við skoðum
gaumgæfilega alla
sem við teljum
koma til greina,
innlenda sem er-
lenda, og horfum
fyrst og fremst á
árangur hvers fyr-
ir sig en ég get staðfest að hóp-
urinn sem til greina kemur tak-
markast við sex til átta manns,“
segir Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ. Ætlar Einar að
nýr landsliðsþjálfari í handbolta
verði ráðinn á næstu tveimur til
þremur vikum.
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við