24 stundir - 22.02.2008, Side 12
urkenningu og verður tekinn tími
til að skoða málið vel.
Þar verður sérstaklega litið til
þess hverjar fyrirætlanir eru varð-
andi minnihlutahópa og þess að
þetta er fyrrverandi átakasvæði og
mögulega eldfimt ástand.
Áhyggjur íslensku ríkisstjórnar-
innar virðast eiga hljómgrunn hjá
ríkisstjórnum annarra norrænna
ríkja, þó þær hafi kosið að stíga
skrefi lengra.
Norðmenn veita vilyrði
Jonas Gahr Støre, utanríkisráð-
herra Noregs, gaf á miðvikudag
vilyrði fyrir því að Noregur við-
urkenndi Kosovo. Formleg viður-
kenning Noregs bíður staðfesting-
ar ríkisstjórnar. „Það er réttast að
Noregur fylgi Evrópu. Ef við eig-
um að tryggja stöðugleika á Balk-
anskaga þarf alþjóðasamfélagið að
standa eins þétt saman og mögu-
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Sjálfstæðisyfirlýsing Kosovo hefur
fengið misjafnar móttökur. Hvorki
Sameinuðu þjóðirnar né Evrópu-
sambandið hafa tekið sameigin-
lega afstöðu, heldur látið það eftir
hverju aðildarríki fyrir sig.
Ísland mun að sögn utanríkis-
ráðherra fylgja fordæmi alþjóða-
samfélagsins, en Evrópa er klofin í
afstöðu sinni. Hin norrænu ríkin
hafa orðið fyrri til að lýsa því yfir
að þau muni viðurkenna aðskiln-
að Kosovo-héraðs frá Serbíu.
Áhyggjur af mannúðarmálum
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ut-
anríkisráðherra hefur ekki sagt
berum orðum að Ísland muni við-
urkenna sjálfstæði Kosovo. Innan
utanríkisráðuneytisins er verið að
skoða hvernig fara megi í slíka við-
legt er,“ segir Støre.
Sendiherra Serbíu undrast það
hve fljótur Noregur var til. „Um
leið og viðurkenningin verður
formleg, þegar hún fær staðfest-
ingu ríkisstjórnarinnar, þá verð ég
kallaður heim,“ segir Vladislav
Mladenovic sendiherra.
Danir senda staðfestingarbréf
Per Stig Møller, utanríkisráð-
herra Danmerkur, sendi forseta
Kosovo í gær skeyti þar sem hann
lýsti yfir stuðningi Dana við að-
skilnaðinn frá Serbíu.
„Danmörk viðurkennir í dag
Kosovo sem sjálfstætt land. Það
skiptir ríkisstjórnina höfuðmáli að
Kosovo hefur skuldbundið sig til
að koma á fót lýðræðislegu, verald-
legu og fjölmenningarlegu ríki,
sem tryggir að minnihlutahópar
njóti öryggis,“ sagði Møller.
Bætist Danmörk þar með í hóp
þeirra Evrópusambandsríkja sem
styðja vilja við nýbakað Kosovo-
ríki.
Í þeim hópi var fyrir Finnland.
Hefur Ilkka Kanerva utanríkisráð-
herra heitið því að Finnland muni
styðja efnahagsþróun í Kosovo um
1,5 milljarða króna á næstu árum.
Kosovo bætist lið
Ríkjunum sem styðja sjálfstæði Kosovo fjölgar stöðugt Austantjaldsríki flest á móti
➤ Meðal annars viðurkennt afBandaríkjunum, Bretlandi,
Þýskalandi, Ítalíu, Frakklandi
og Tyrklandi.
➤ Ekki viðurkennt af Rússlandi,Spáni, Slóvakíu og Kýpur, auk
annarra.
➤ Fjöldi ríkja hefur sett af staðviðurkenningarferli.
➤ Þar á meðal eru Noregur, Sví-þjóð, Danmörk og Austurríki.
SJÁLFSTÆTT KOSOVO
Þakkarkoss Maður sýnir fán-
um Bandaríkjanna og Albaníu
hversu vel hann kann að meta
stuðning þjóðanna við sjálf-
stæði Kosovo.
12 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 24stundir
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
Auris - Nýtt upphaf.
Bíll er miklu meira en farartæki. Bíll er tákn um
karakter, tákn um hvert þú ætlar þér, hvað þú
stendur fyrir.
Toyota kynnir Auris. Bíl sem er hannaður utan um
þig og þína tilveru. Finndu hljóðláta snerpuna.
Leyfðu honum að flytja þig þangað sem þú vilt.
Leyfðu þér að skoða hann, reynsluaka. Þá stenstu
ekki mátið.
Verð frá: 2.069.000 kr.
Dísil Auris
Nú er Auris líka fáanlegur með Toyota D-4D
dísilvélinni, en sú tækni tryggir þér hljóðlátari,
sparneytnari og aflmeiri akstur en áður hefur
þekkst, auk þess sem D-4D dísilvélin er mun
umhverfisvænni kostur en sambærileg bensínvél.
Kynntu þér eiginleika D-4D dísilvéla Toyota. Kostirnir
leyna sér ekki.
Nýtt upphaf
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/T
O
Y
40
99
0
02
/0
8
Norski netþjónustuaðilinn Im-
bera fjarlægði mynd af Múhameð
spámanni af heimasíðu samtak-
anna Human Rights Service.
Hege Storhaug, formaður sam-
takanna segir þetta vera yf-
irgengilegt.
Jon Bing, prófessor við háskól-
ann í Ósló, telur norsk lög um
netsamskipti gera þjónustuað-
ilann endanlega ábyrgan fyrir
innihaldi síðna sem hjá honum
eru vistaðar. Því sé eðlilegt að Im-
bera hafi gripið til þessa ráðs.
„Afleiðing laganna getur verið að
tæknimenn ákveði hvað maður
getur lesið á netinu,“ segir Bing .
Ritskoða Mú-
hameðsmyndir
Norska jafnlaunanefndin hefur
lagt til að breytingar verði gerðar
á lögum um fæðingarorlof að ís-
lenskri fyrirmynd. „Við leggjum
til að þriðjungur sé frátekinn fyr-
ir móður, þriðjungur fyrir föður
og að frjálst val sé um síðasta
þriðjunginn,“ segir Anne Enger,
formaður nefndarinnar.
Telur Enger breytingarnar skipta
miklu máli til að jafna launamun
kynjanna. „Sá mikli launamunur
sem er á milli karla og kvenna
verður til á tímabilinu sem fólk
verður foreldrar. Mæður sitja eft-
ir, en 40 prósent launamunarins í
einkageiranum má rekja til þessa
tímabils,“ segir Enger. aij
Vilja íslenskt
fæðingarorlof