24 stundir - 22.02.2008, Blaðsíða 15
24stundir FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 15
Það hefur valdið allnokkrufjaðrafoki að alþingismað-urinn Birkir
Jón Jónsson skuli
vera pókerspilari og
spila upp á peninga.
Menn hafa ýmist
svívirt hann fyrir at-
hæfið eða tekið upp
hanskann. Bjarni Harðarson fer í
vörn fyrir samflokksmann sinn á
heimasíðu sinni og viðurkennir
eigin syndir Birki til málsbóta og
öðrum þingmönnum. Það er ekki
hægt annað en brosa út í annað
yfir syndalista Bjarna sem er
fremur óvenjuleg viðurkenning á
eigin göllum: „En auðvitað er
Birkir vinur minn breyskur mað-
ur og það er ég líka,“ viðurkennir
Bjarni og heldur áfram með
syndalista sinn.
Kannski óvenjulega breysk-ur meira að segja því aðég reyki, ég safna spiki,
ég skila skattframtalinu alltaf of
seint og það kemur
fyrir að ég hugsi
girndarlega um alls
óviðkomandi og
þroskaðar konur.
Svo er ég í tilbót
trúlaus og fer aldrei
svo mikið sem í anddyri á leik-
fimihúsum. Ég man ekki hvað ég
get talið fleira en ef það er ætlun
hæstvirtra kjósenda að ekki skuli
aðrir en vammlausir einir séu á
Alþingi þá er ég ekki rétti mað-
urinn,“ segir Bjarni og verður að
telja þetta óvenjulega hreinskilni.
Hitt vita kjósendur að þingmenn
eru langt í frá þeir saklausustu
enda hafa þeir setið í fangelsi, ek-
ið fullir og farið illa með al-
mannafé svo fátt eitt sé talið upp.
Stjórnmálamenn gera hvaðsem er til að komast í fjöl-miðla fyrir prófkjör og
kosningar. Þá samþykkja þeir alls
kyns fáránlegar
uppákomur til að
vekja athygli á sér.
Hins vegar er það
þekkt saga að eftir
að kosningum lýkur
getur verið erfitt að
ná í þetta sama fólk. Það hefur
t.d. gengið afar illa að ná í borg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
undanfarið, jafnvel svo að visir.is
birti tilkynningu í gær þar sem
hann lýsir eftir þremur borg-
arfulltrúum. Það eru Vilhjálmur,
Ólafur og Hanna Birna. Blaða-
menn Vísis og Fréttablaðsins biðu
í tvo tíma eftir þeim en þau létu
sig hverfa bakdyramegin, sem
virðist vera vinsælt hjá þessu
fólki. elin@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Svo virðist sem auðveldasta leið-
in fyrir danska stjórnmálamenn til
að ná athygli æsingaþyrstra fjöl-
miðla og öðlast tímabundinn
stuðning háværra hópa heima fyrir
sé að leggja illt orð til innflytjenda,
– sér í lagi múslima. Lengst af voru
það helst stjórnmálamenn í
Danska þjóðarflokknum og síðar
hægriflokknum Venstre sem lögð-
ust svo lágt. En þegar hinn geð-
þekki leiðtogi danskra vinstri
manna Villy Søvndal fer að hræra í
þessum sama drullupolli er fjand-
inn laus. Deilan sem varð í kjölfar
Múhameðsteikninganna þar sem
spámaðurinn birtist sem hryðju-
verkamaður og morðóður saurlífs-
seggur gaus upp á nýjan leik um
daginn þegar svo til öll dagblöð
Danmerkur ákváðu að birta eina
afskræmingarmyndina vegna þess
eins að lögreglan grunaði þrjá unga
múslimadrengi um samsæri gegn
teiknaranum. Það þótti semsé rétt
að saurga trúarbrögð milljóna
manna vegna þess að þrír einstak-
lingar höfðu lagt á ráðin um glæp.
Skotgrafir
Allir sem þekkja til í Danmörku
vita að andrúmsloftið á milli inn-
fæddra og innflytjenda er grafal-
varlegt. Í fjölmiðlum hér heima er
okkur sagt frá því að múslimar
brenni bíla og berji gamlar konur
fyrir engar sakir. En einhverra
hluta vegna þykir sú staðreynd ekki
jafn fréttnæm að mun fleiri inn-
flytjendur eru barðir til óbóta og
drepnir af dönskum rasistum held-
ur en innfæddir Danir sem verða
fyrir árás af hendi innflytjenda. Í
Danmörku hefur undangenginn
áratug orðið stórhættuleg pólar-
íseríng í samfélaginu þar sem sífellt
er verið að ala á tortryggni í garð
útlendinga. Gagnkvæm tortryggn-
in magnast svo upp og verður
smám saman að hreinni andúð.
Svo sýður upp úr. Því miður eru
margir Danir komnir svo djúpt of-
an í skotgrafirnar að þeir sjá málið
aðeins frá sinni eigin niðurgröfnu
hlið sem byrgir þeim auðvitað sýn
á vandann. Yfirsýnin hverfur. Sú
blinda verður svo til þess að menn
sjá enga aðra leið en að skvetta olíu
á eldinn. Bókstaflega.
Hingað til að hafa vinstri menn í
Danmörku frekar reynt að róa
ástandið en nú er sjálfur leiðtogi
þeirra farinn að grafa sig ofan í
jörðina. Í fyrradag lagði Villy Søvn-
dal semsé til múslíma í grein á
heimasíðu sinni og var umsvifa-
laust klappaður upp. Að vísu gerði
hann örlitla tilraun til að greina á
milli íslamista og annarra mús-
limskra innflytjenda sem gjarnan
vilja aðlagast dönsku samfélagi.
Vissulega stafar ákveðin ógn af
uppgangi íslamista í Evrópu og
auðvitað eigum við að berjast gegn
öllum þeim sem ekki virða vest-
ræna lifnaðarhætti. Það á ekki gefa
neinn afslátt á því. Vandinn er hins
vegar sá að í almennri umræðu í
Danmörku er þessum gjörólíku
hópum yfirleitt grautað saman í
gruggugan grautarpott þar sem
rasistarnir hræra sína göróttu eit-
ursúpu í öruggu skjóli gagnrýnis-
lausra fjölmiðla. Svo botna leiðtog-
ar Dana ekkert í því að hver
alþjóðarannsóknin á fætur annarri
sýnir að hvergi á Vesturlöndum er
verra fyrir innflytjendur að búa
heldur en í Danmörku og að hvergi
fjalla fjölmiðlar með neikvæðari
hætti um íslam heldur en í Dan-
mörku.
Þversögn
Þrátt fyrir þessa neikvæðu af-
stöðu til innflytjenda er óvíða gerð
ríkari krafa um að innflytjendur
aðlagist samfélaginu heldur en í
Danmörku. Þeim er ætlað að for-
danska sig, eins og það heitir nú í
málflutningi Danska þjóðarflokks-
ins. Þeir eiga að yfirtaka dönsk
gildi; almenn gildi á borð við frelsi,
lýðræði og mannréttindi en einnig
það sem sérstaklega danskt þykir;
fánann, smurbrauð, Kim Larsen,
Rødgrød med fløde, krúnuna og
Carlsberg. Þversögnin er bara sú að
á sama tíma er andúðin slík að þeir
eru svo gott sem útilokaðir frá
samfélaginu.
Því miður stefnir allt í að ná-
kvæmlega sama þróun verði hér á
Íslandi.
Höfundur er stjórnmálafræðingur.
Svo sýður upp úr
VIÐHORF aEiríkur Bergmann Einarsson
En einhverra
hluta vegna
þykir sú stað-
reynd ekki
jafn frétt-
næm að mun
fleiri innflytj-
endur eru barðir til óbóta
og drepnir af dönskum
rasistum heldur en inn-
fæddir Danir sem verða
fyrir árás af hendi inn-
flytjenda.
Opið er í Galleríi Fold Rauðarárstíg virka daga frá kl.10–18,
laugardaga frá kl. 11–16 og sunnudaga frá kl. 14–16
Rau›arárstíg 14, sími 5510400 · www.myndlist.is
Sara Vilbergsdóttir
sýnir í Galleríi Fold
Sara ræðir við gesti sýningarinnar
laugardag og sunnudag kl. 14–16
Gallerí Fold · Rauðarárstíg og Kringlunni
Smásögur
Ertu að flytja, láttu fagmenn
sjá um verkið fyrir þig
Örugg og trygg
þjónusta
ECC - Bolholti 4 – Sími 511 1001 – Opið 10-18 – www.ecc.is
Bætt líðan
með betra lofti
Nýtt!
Einstök tækni í bland við verðlauna
hönnun færir þér hreinna og betra loft!
Með Light Air lofthreinsitækinu getur þú haft veruleg áhrif á loftgæðin
á þínu heimili eða vinnustað og gert það með stæl. Með frábærri tækni
og verðlaunaðri hönnun hreinsar LightAir loftið algjörlega hljóðlaust, með
lágmarks orkunotkun (7w) og ekki skemmir fyrir að það þarf aldrei að skipta
um fílter. Rannsóknir sýna að LightAir lofthreinsitæki sem er í stöðugri
notkun hreinsar mjög vel allra smæstu agnirnar úr loftinu (agnir í nano
stærð). Agnir í þessari stærð telja um 90% af öllum mengandi ögnum sem
fljóta um í loftinu og eru taldar valda verstu heilsukvillunum. LightAir tækin
koma frá Svíþjóð og hafa hlotið mikið lof um allann heim.
Suðurlandsbraut 50
(bláu húsunum við Fákafen)
www.gala.is • Sími 588 9925
Opið 11-18 • 11-16 lau.
Glæsifatnaður
Erum með falleg föt frá
..Gina Bacconi...
..Michaela Louisa…
..Pause Café…
St:34-52