24 stundir - 22.02.2008, Qupperneq 25
24stundir FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 25
KYNNING
Það er oft léttara en maður held-
ur að hugsa um sig með einföld-
um aðferðum, leysa minni háttar
vandamál og fyrirbyggja þau.
Margir þjást af þyngslum í fótum
eða tilfallandi bjúg. Æðahnútar
og marblettir sem ekki vilja
hverfa eru að sama skapi algengir
hjá bæði konum og körlum. Fó-
tapirringur getur valdið vanlíðan
og truflað svefn en margir glíma
við þann vanda. Fyrir þetta fólk
hefur Weleda þróað Venadoron
sem er fitulaust gel sem styrkir
og losar bjúg. Að sama skapi
dregur það úr þreytu í vöðum og
liðum.
Venadoron er búið til úr lækn-
ingajurtum og kopar og gengur
því auðveldlega inn í húðina þar
sem það frískar og svalar.
Venadoron er tilvalið fyrir þá
sem ferðast mikið með flugvélum
en gelið er notað kvölds og
morgna. Innihaldsefni Venadoron
eru meðal annars hreinar ilm-
kjarnaolíur, sítrónusýra, sítrón,
vatn og margt fleira en Weleda
vörurnar eru allar unnar úr líf-
rænum jurtum án aukaefna. We-
leda vörurnar má fá í heilsuversl-
unum og apótekum um allt land.
Venadoron frá Weleda er fyrir þreytta fætur
Lífrænar jurtir án aukaefna
Þreyttir fætur Margir þjást af þyngslum í fótum eða hafa bjúg en Venadoron gelið frá
Weleda er fitulaust gel sem frískar og svalar.
Venadoron Gelið er búið til
úr lækningajurtum og kopar.
Ef þú ert með stutta fætur og vilt
láta þá sýnast lengri skaltu forðast
eins og heitan eldinn að klæðast
síðu pilsi og flatbotna skóm við.
Það á bara eftir að gera illt verra.
Síð pils geta gengið með háum
hælum eða miðsíð með flottum,
háhæluðum stígvélum. Stutt pils
geta hjálpað stuttum fótum en það
er undir hverri og einni komið í
hversu stuttu hún þorir að ganga.
Varúð, varúð,
stuttir fætur
Þessi sæti kjóll kallast tekjóll upp á
ensku eða tea dress. Hann smell-
passar því til að fara í teboðið á
sunnudagseftirmiðdegi eða morg-
unmatinn í miðri viku. Sætur og
sumarlegur kjóll sem getur látið
þér finnast vorið vera komið að-
eins fyrr. Þér þarf ekki að verða
kalt í honum klæðir þú þig í góðar
sokkabuxur, stígvél og peysu.
Brúnir eða svartir fylgihlutar
myndu passa vel við.
Vorlegur og
sætur tekjóll
Þegar þú ert búin að klæða þig upp
í fínustu sparifötin, farða þig og
setja á þig fallega skartgripi ertu
tilbúin að fara á árshátíðina, ballið
eða afmælið. Eða hvað? Passaðu
vel að neglurnar séu líka hreinar og
fínar. Sumar konur kjósa að vera
með gervineglur þar sem það er
þægilegt og þarfnast lítils viðhalds.
Annars er að hafa neglurnar vel
klipptar og mótaðar og lakkaðar
með fallegum lit.
Neglurnar mega
ekki gleymast