24 stundir - 22.02.2008, Síða 38
38 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 24stundir
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Við erum eins og fótboltalið
nema í stað fótboltavallar
höfum við tölvur.
Microsoft og Epic Games til-
kynntu á Game Developers
Conference sýningunni, sem
stendur nú yfir í San Francisco,
að framhaldið af hinum geysi-
vinsæla Xbox360 leik Gears of
War væri væntanlegt á mark-
aðinn í nóvember. Í leiknum
munu leikmenn fara aftur í fót-
spor hermannsins og drápsvél-
arinnar Marcus Fenix þar sem
hann berst gegn hinum illu Loc-
ust Horde skrímslum með til-
heyrandi blóðsúthellingum, vél-
sagarbardögum og byssuhvellum.
Eins og við er að búast hefur leik-
urinn fengið dágóða uppfærslu á
grafíkinni og lítur leikurinn mjög
vel út. Fyrri Gears of War leik-
urinn naut sem fyrr sagði gríð-
arlegra vinsælda og var af mörg-
um leikjafjölmiðlum valinn sem
besti leikur ársins 2006. vij
Gears of War 2 í nóvember
Það er ekkert launungarmál að
bilanatíðni Xbox360 tölvunnar er
óeðlilega há, eða allt að 16 pró-
sent samkvæmt fullyrðingum
sumra fagaðila. Það er engu að
síður einstaklega vandræðalegt
þegar tölvur bila á fagsýningum
eins og gerðist á GDC sýningunni
í San Francisco þegar Xbox360
tölva í sýningarbási Microsoft
fékk hinn víðfræga rauða hring
dauðans fyrir framan fjölmennan
hóp af blaðamönnum. vij
Vandræðalegt
fyrir Microsoft
Samkvæmt nýrri rannsókn ísr-
aelsku vísindakonunnar dr. Siegal
Sadetzki, sem birtist í American
Journal of Epidemiology, eykur
notkun farsíma hættuna á því að
fólk fái æxli í munnvatnskirtlum.
Rannsóknin var framkvæmd í Tel
Aviv og voru um 1.800 manns
skoðaðir með hliðsjón af far-
símanotkun og heilsufari. Rann-
sóknin leiddi í ljós að þeir sem
töluðu mjög mikið í farsíma voru
50 prósentum líklegri til að fá
krabbamein en hinir. vij
Slefkrabbamein
frá farsímum
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
„Undanfarin ár höfum við rekið
samtök sem nefnast Copenhagen
eSport, sem eru samtök atvinnu-
manna í tölvuleikjaspilun. Þessi
hugmynd kom þegar við vorum að
vinna að því að koma okkur upp
félagshúsi,“ segir Rasmus Pedersen,
skólastjóri hins nýstárlega skóla
GamingSchool sem opnar senn dyr
sínar í Kaupmannahöfn.
Fræðsla um heim leikjanna
Tilgangurinn með Gaming-
School er að fræða jafnt unga sem
aldna um tölvuleiki, hvernig sé best
að spila þá en einnig hvernig sé
hægt að höfða til þeirra sem lifa og
hrærast í þessum heimi.
„Við erum að fara af stað með
verkefni þar sem við ætlum að
fræða leiðbeinendur félagsmið-
stöðva, æskulýðsfulltrúa og fleiri
um tölvuleiki og venjur tölvu-
leikjaspilara svo að þeir geti betur
skilið af hverju fólki finnst tölvu-
leikir svo spennandi og hvernig fé-
lagslegu tengslin ganga fyrir sig í
þessum heimi.“
Æfingabúðir fyrir atvinnumenn
Rasmus segir að tilgangur skól-
ans sé líka sá að koma upp góðu liði
atvinnumanna í tölvuleikjum.
„Við erum eins og fótboltalið
nema í stað fótboltavallar höfum
við tölvur. Við munum hafa þjálfara
starfandi við skólann, sem eru þaul-
vanir leikjaspilarar, og þeir munu
kenna fólki alls konar aðferðir til að
ná betri árangri í tölvuleikjum.“
Rasmus segir að nú þegar hafi hon-
um borist óskir um að opna sam-
bærilega skóla annars staðar í Dan-
mörku. „Kannski ef allt gengur vel
getum við opnað skóla á Íslandi.“
Sannur leikjaunnandi
Rasmus Pedersen,
skólastjóri og stofnandi
GamingSchool.
Nýstárleg menntastofnun í Danmörku
Leikjaskóli í Köben
Í Kaupmannahöfn hefur
verið opnaður skóli þar
sem markmiðið er að
kenna fólki hvernig skuli
spila tölvuleiki. Þar er
einnig leitað að tilvon-
andi atvinnumönnum.
➤ Vefsíðu skólans er að finna áwww.gamingschool.dk.
➤ Skólinn hefur vakið mikla at-hygli víða um heim og berast
skólanum um tuttugu tölvu-
skeyti og fimm símtöl á degi
hverjum.
GAMINGSCHOOL
Tölvuleikir frikki@mbl.is
The Club er að mörgu leyti nokk-
uð athygliverður leikur, sem minn-
ir í rauninni nokkuð mikið á
blöndu af þriðju persónu skotleik
og gömlum spilakassa þar sem
maður þurfti að komast yfir borð-
ið og fékk stig fyrir hvern óvin sem
drepinn var.
The Club er sem sagt klúbbur
nokkurra ríkra pappakassa, sem
láta sér ekki nægja að horfa á
Rambó, heldur ráða þeir þig til að
hlaupa í gegnum hin ýmsu völ-
undarhús og drepa þó nokkuð
margt fólk, þetta þarftu að gera á
sem skemmstum tíma. Til að fá
sem flest stig þá þarftu að tvinna
drápin saman í röð „combo-a“.
Eftir fyrsta drápið hefurðu u.þ.b. 5
sekúndur til að drepa þann næsta
til að missa ekki niður combo.
Til allrar hamingju ertu nokkuð
ódrepandi og allir óvinir þínir
gætu þess vegna verið úr pappír og
það er bókstaflega engin gervi-
greind í leiknum. Þar að auki eru
líka bara tvær týpur af óvinum,
þeir sem hlaupa að þér og skjóta
eða bíða þess að þú hlaupir að
þeim og þeir sem fela sig á bak við
kassa og skjóta í áttina að þér, eins
og gefur að skilja þá býður það
ekki upp á mikla dýpt eða her-
kænsku af hálfu spilarans. The
Club er ágætis leikur til að grípa í
við og við, en hann skortir fjöl-
breytileika og dýpt.
Skotleikja-Pac Man
fyrir 21. öldina
Við öllu búinn Keppandi
í The Club býr sig undir
blóðbaðið.
FERMING 2008
SKYRTA 3490
SVÖRT JAKKAFÖT 12890
LEGGINGS 1990
PILS 2590
TOPPUR 3990
HÁRSPÖNG 3990
Kringlan 1.hæð
Grafík: 70% Ending: 50%
Spilun: 50% Hljóð: 60%
The Club PS3 og Xbox360
NIÐURSTAÐA: 60%
BANNAÐUR INNAN 16