24 stundir - 16.04.2008, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir
Apple IMC
Apple IMC | Humac ehf.
Sími 534 3400
www.apple.is
Laugavegi 182
105 Reykjavík
Kringlunni
103 Reykjavík
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Heimilt er nú að skipta skattlagn-
ingarréttinum milli greiðsluríkis
og búseturíkis lífeyrisþega sam-
kvæmt breytingum sem gerðar
voru á norræna tvísköttunar-
samningnum fyrr í þessum mán-
uði. Þetta getur mögulega leitt til
viðbótarskatts fyrir lífeyrisþega,
að því er Maríanna Jónasdóttir,
skrifstofustjóri í fjármálaráðu-
neytinu, greinir frá.
,,Áður greiddi íslenskur lífeyr-
isþegi, sem fékk lífeyri úr íslensk-
um sjóði en eyddi til dæmis ell-
inni í Danmörku, einungis
tekjuskatt og útsvar á Íslandi. Það
hefur verið mikil umræða um það
á undanförnum árum að það sé
ekki sanngjarnt að greiðsluríkið
fái allan skattinn en búseturíkið,
sem veitir þjónustuna, fái engan
skatt. Þess vegna var ákveðið að
heimila að skipta skattlagningar-
réttinum,“ segir Maríanna.
Hún tekur það fram að nið-
urstaðan ráðist alfarið af því hvort
mismunur sé á þeirri skattlagn-
ingu sem er í greiðsluríkinu og í
búseturíkinu. ,,Ef skattlagningin
er hærri hér en til dæmis í Dan-
mörku þá greiðir viðkomandi
skatt á Íslandi en engan í Dan-
mörku. Ef skattlagningin er jöfn
kemur þetta út á sléttu en ef Dan-
mörk innheimtir hærri skatt en
sem nemur þeim skatti sem þegar
hefur verið greiddur á Íslandi þá
gæti komið til viðbótarskatts í
Danmörku hjá viðkomandi lífeyr-
isþega. Allt ræðst þetta þó af því
um hvaða fjárhæðir er að ræða hjá
hverjum og einum,“ segir Marí-
anna sem bætir því við að það sé
engin skylda að nota heimildina.
Íslenskir lífeyrisþegar, sem fá
greiðslur frá Íslandi og eru búsett-
ir á Spáni, greiða bara skatt á
Spáni samkvæmt tvísköttunar-
samningi milli landanna. Dvelji
menn hins vegar jafnlengi í báð-
um löndum er kannað hvar mið-
stöð persónulegra hagsmuna er,
að því er Guðrún Jenný Jónsdótt-
ir, forstöðumaður stjórnsýslusviðs
ríkisskattstjóra, segir. „Vegi öll at-
riði jafnt þá ræður ríkisborgara-
rétturinn heimilisfesturíki.“
Getur mögulega leitt til
viðbótarskattlagningar
Breytingar hafa verið gerðar á norræna tvísköttunarsamningnum Nú er heimilt að
skipta skattlagningu einstaklinga milli greiðsluríkis og búseturíkis lífeyrisþega
Í Kaupmannahöfn Ekki þykir
sanngjarnt að greiðsluríkið fái allan
skattinn en búseturíkið engan.
➤ Breytingar hafa meðal annarsverið gerðar á þeim ákvæð-
um norræna tvískött-
unarsamningsins sem gilda
um skattlagningu arðs, sölu-
hagnaðar af hlutabréfum,
endurgjalds af vinnu um
borð í flugvélum og lífeyr-
isgreiðslna.
TVÍSKÖTTUN
24stundir/Brynjar Gauti
Ferðamenn og aðrir sem
dvelja tímabundið í Bretlandi
þurfa að framvísa evrópska
sjúkratryggingakortinu, eða
svokölluðu bráðabirgðavott-
orði, frá og með 1. apríl 2008
vegna þjónustu hjá opinbera
heilbrigðiskerfinu í Bretlandi.
Geti ferðamaður ekki fram-
vísað skjölunum má hann bú-
ast við að fá meðhöndlun sem
einkasjúklingur og þurfa að
greiða fyrir þjónustuna. ibs
Til læknis í Bretlandi
Ferðamenn
hafi sjúkrakort
Boðið verður upp á fjarnám
frá Háskólanum á Akureyri til
Grindavíkur frá og með næsta
hausti, að því er segir á frétta-
vef Víkurfrétta. Fram að þessu
hefur eingöngu verið hægt að
sitja fjarfundi í Reykjanesbæ.
Miðstöð símenntunar á Suð-
urnesjum hefur haft umsjón
með aðstöðunni. ibs
HA kennir Grindvíkingum
Fjarnám í boði