24 stundir - 16.04.2008, Blaðsíða 57
24stundir MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 57
Ofurskutlan Katherine Heigl, úr Grey’s
Anatomy og Knocked Up, og hjartaknús-
arinn Gerard Butler, úr 300, hafa þótt
heldur náin við tökur á kvikmyndinni
The Ugly Truth. Heigl er með tónlistar-
manninum Josh Kelley og bandarískir
slúðurmiðlar tala um að hann ætti að vera
órólegur. Butler þykir einn mesti feng-
urinn í Hollywood. Hann var nýlega orð-
aður við Cameron Diaz, en vísaði því til
föðurhúsana í síðustu viku. The Ugly
Truth er rómantísk gamanmynd og verð-
ur að öllum líkindum frumsýnd 9. apríl á
næsta ári.
Heigl og Butler náin
Pete Wentz, unnusti Ashlee Simp-
son, neitaði sögusögnunum um
meinta þungun hennar í viðtali
við MTV-fréttastofuna í gær.
Fréttir um meinta þungun Simp-
son, sem er litla systir Jessicu
Simpson, hafa farið eins og eldur
í sinu um netheima. Bandarískir
miðlar sögðu fréttirnar og töldu
sig hafa þær eftir áreiðanlegum
heimildum. Wentz sagði að hann
hefði ekki heyrt af meintum
frumburði sínum og sagði í kald-
hæðni að hann biði eftir fréttum
af meintri samkynhneigð sinni.
Ashlee Simpson
ekki ólétt?
Heather Mills, fyrrverandi eig-
inkona Bítilsins Pauls McCart-
neys, fékk óblíðar móttökur á
fegurðarsamkeppni Bandaríkj-
anna fyrir skömmu. Áhorfendur
bauluðu á hana þegar hún gekk
inn í salinn, en stærsti vandinn
var baksviðs. Skipuleggjendurnir
gleymdu að segja Mills að keppn-
in yrði endursýnd í sjónvarpi og
það ætlaði hún ekki að sætta sig
við – nema gegn hárri greiðslu.
Svo fór að samningurinn var end-
urskrifaður á staðnum eftir
hennar egói.
Mills óvinsæl
á Ungfrú BNA
Söngdívan Mariah Carey er komin með
nýjan kærasta. Sá heppni er leikarinn Nick
Cannon og er 11 árum yngri en Carey.
Hann hefur látið lítið fyrir sér fara í kvik-
myndabransanum og er hálfgerð B-stjarna,
en einhver man eftir honum úr Men in
Black 2 og Bobby. Carey flaug með Cannon
í einkaþotu til Las Vegas á mánudagskvöld
þar sem þau fögnuðu afmæli rapparans Da
Brat, sem er einn af hennar bestu vinum.
Carey ku, samkvæmt heimildum slúð-
urbloggarans Perez Hiltons, hafa verið með
sólgleraugun á sér inni í partíinu, enda kýs
hún að horfa ekki í augun á almúganum.
Carey með nýjan kærasta
Viking: The Battle for Asgard er
samsuða af Hringadróttinssögu,
norrænni goðafræði og God of
War. Í leiknum fer leikmaðurinn í
hlutverk Skarins sem er ungur tað-
skegglingur sem er reistur upp frá
dauðum af gyðjunni Freyju til þess
að berjast gegn illum öflum sem
herja á lönd manna.
Skarin tekur því upp sverð sitt og
öxi og tekur til við að höggva í
sundur skrímsli sem eru skugga-
lega lík orkunum í Hringadrótt-
inssögu.
Leikurinn býður upp á ágætis bar-
dagakerfi sem auðveldar mönnum
til muna að afhöfða skrímslin og
fær maður seint leiða á því að berja
á herjum þess illa. Það sem maður
fær hins vegar fljótt leiða á er nánast
allt annað. Leikurinn er gríðarlega
einhæfur og eftir að hafa spilað
hann í um klukkutíma hafa menn
séð allt sem hægt er að sjá í leikn-
um. Grafíkvélin hikstar allsvakalega
í stórum bardögum en það er svo
sem eðlilegt þar sem fjöldi her-
manna á skjánum í stærstu bardög-
unum er gífurlega mikill.
Viking er ágætis leikur en því mið-
ur er fátt sem gerir hann virkilega
minnisstæðan.
Tolkien grætur
líklega í gröfinni
Refsivöndur Freyju
Skarin hikar ekki við að
slátra skrímslunum.
Grafík: 73% Ending: 43%
Spilun: 65% Hljóð: 51%
Viking: Battle for Asgard
NIÐURSTAÐA: 58%