24 stundir - 26.04.2008, Blaðsíða 1

24 stundir - 26.04.2008, Blaðsíða 1
„Ég hef fengið gríðarleg viðbrögð við þessari litlu grein og mér skilst að heilbrigðisráðherra vilji bregðast við. Það er gott ef greinin skilar ein- hverju, ég skrifaði hana vegna þess að mér ofbuðu aðstæður,“ segir Árni Tryggvason leikari sem á dögunum skrifaði blaðagrein þar sem hann gagnrýndi aðbúnað á geðdeild Landspítalans en þar dvaldi hann í nokkra daga vegna þunglyndis. Barátta við þunglyndi 24stundir/RAX „Mér ofbuðu aðstæðurnar á geðdeildinni“ »42 24stundirlaugardagur26. apríl 200879. tölublað 4. árgangur Nadia Banine fór í eftirminnilega ferð til Taílands sl. haust þar sem hún kynntist heilsulind á heims- mælikvarða. Nadia deilir reynslu sinni af sumarfríi með fjórum öðrum viðmælendum. Taíland heillaði SPJALLIл48 Fanny Merino Calle, starfsstúlka í Fjarðarkaupum, ólst upp í kofa í Perú. Nú býr hún á Íslandi og þökk sé henni flytur fjöl- skylda hennar senn í rúm- betra húsnæði í Lima. Launin duga vel VIÐTAL»46 57% verðmunur á bláberjasultu NEYTENDAVAKTIN »4 Mike Hammond þurfti að fara í gegnum fjölda umsókna þeg- ar hann lýsti eftir manni til að vera öldruðum föður sínum til samlætis á hverfiskránni í suðurhluta Englands. Í boði voru 1000 krónur á tímann, auk kostnaðar. Tveir menn munu deila stöðunni með sér. „Pabbi getur núna farið nokkrum sinnum í viku á pöbbinn. Þrisvar með nýju vinunum sínum og tvisvar með mér,“ segir Hammond. aij Á launum við sumblið GENGI GJALDMIÐLA SALA % USD 73,65 -0,44  GBP 146,11 -0,20  DKK 15,45 -1,93  JPY 0,70 -0,88  EUR 115,35 -1,94  GENGISVÍSITALA 148,28 -1,37  ÚRVALSVÍSITALA 5.266,38 1,22  »18 7 6 4 1 3 VEÐRIÐ Í DAG »2 Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur thorakristin@24stundir.is Nýleg prófun á bóluefninu Neu- Vax, sem á að verka gegn ákveð- inni tegund brjóstakrabbameins, lofar mjög góðu að sögn rannsak- enda. Það gæti lengt líf mjög margra því áætlað er að um 10% kvenna fái brjóstakrabbamein, skv. upplýsingum á vef Krabbameins- félagsins. „Niðurstöðurnar eru mjög spennandi og gefa tilefni til meiri bjartsýni en prófanir með önnur bóluefni við krabbameini hafa gert,“ segir Linda Benavides, einn rannsakenda, við 24 stundir. Hentar í 75% tilfella „Markmiðin með bóluefninu eru að draga úr líkum á endur- komu meinsins í þeim einstakling- um sem þegar hafa fengið meðferð við brjóstakrabbameini og að auka lífslíkur þeirra,“ segir Benavides. Verkunin er sú að það kennir hvítu blóðkornunum að þekkja prótínið Her2neu sem er í frumu- himnu krabbameinsfrumna í 75% tilfella brjóstakrabbameins. Þann- ig ræðst það aðeins á krabba- meinsfrumur en ekki aðrar. Ekki hafa fundist aðrar auka- verkanir en væg flensueinkenni daginn sem sprautað er, að sögn George Peoples, stjórnanda rann- sóknarvinnunnar á Krabbameins- stofnun bandaríska hersins. Þarf eina prófun enn Áður en lyfið kemst á markað þarf að prófa það í þriðja sinn. Sú prófun hefst í haust og verða um 800 þátttakendur í henni um allan heim. Verði lyfið sett í sölu þurfa Ís- lendingar ekki að bíða lengur en aðrir Evrópubúar því Lyfjastofnun Evrópu gefur út leyfi fyrir öll EES- ríki að sögn Rannveigar Gunnars- dóttur, forstjóra Lyfjastofnunar. Bóluefni við brjósta- krabba?  Nýleg prófun á bóluefninu NeuVax lofar mjög góðu að sögn rannsakenda  Lyfið gæti komið á markað innan fárra ára DREGUR ÚR DAUÐSFÖLLUM»8 ➤ Í prófun lyfsins voru þátttak-endur 163 konur sem allar höfðu fengið meðferð við krabbameini og voru ein- kennalausar þegar prófun hófst. ➤ 92 konur fengu bóluefnið enhinar 71 voru viðmiðunar- hópur. ➤ Efnið var gefið einu sinni ímánuði í hálft ár og svo einu sinni á hálfs árs fresti. Próf- unin tók í heild 30 mánuði. PRÓFUNIN „Þetta er oft stórkostlegt vandamál og hefur valdið slysum,“ segir Her- dís Storgaard hjá Forvarnahúsi Sjó- vár. Algengt er að flutt sé inn í ný fjölbýlishús án þess að þeim fylgi frágengið leiksvæði, líkt og reglugerð segir til um. Leiksvæðin eru slysagildrur »2 Reykjavíkurráð ungmenna 13 til 18 ára þykir hafa gefið góða raun. Ungmennin sjálf vilja formlegri af- greiðslu á þeim tillögum sem frá þeim koma og hefur verið ákveðið að þau taki sæti í ráð- um borgarinnar. Ungmennin í ráð borgarinnar »28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.