24 stundir - 26.04.2008, Síða 2

24 stundir - 26.04.2008, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 24stundir Opið virka daga 10-20 Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18 © In te r I KE A Sy st em s B .V . 2 00 8 www.IKEA.is 195,-/stk. SOMMAR íspinnabakkar ýmsir litir, H10 cm. úti á túni með ... VÍÐA UM HEIM Algarve 25 Amsterdam 13 Alicante 23 Barcelona 20 Berlín 13 Las Palmas 32 Dublin 13 Frankfurt 14 Glasgow 13 Brussel 14 Hamborg 14 Helsinki 13 Kaupmannahöfn 12 London 16 Madrid 24 Mílanó 21 Montreal 11 Lúxemborg 11 New York 14 Nuuk 4 Orlando 19 Osló 11 Genf 18 París 16 Mallorca 22 Stokkhólmur 17 Þórshöfn 10 Vaxandi norðanátt, 8-15 m/s. Él norðantil og sums staðar þokubakkar norðaustantil, en bjartviðri sunnan- og suðvestanlands. Kólnar talsvert í veðri. VEÐRIÐ Í DAG 7 6 4 1 3 Kólnar í veðri Norðanátt, víða 5-10 m/s og él austantil á landinu, annars bjart veður. Frost 0 til 7 stig, en 0 til 5 stiga hiti sunnanlands. VEÐRIÐ Á MORGUN 3 4 0 0 0 Norðanátt Manni á sextugsaldri voru í gær dæmdar 65 milljónir króna í skaðabætur að meðtöldum vöxtum og dráttarvöxtum í Héraðsdómi Reykjaness. Maðurinn féll niður stiga á skemmtistaðnum Strikinu í Reykjanesbæ fyrir fjórum árum og taldi dómurinn að dyravörður og rekstrarfélag staðarins bæru ábyrgð á fallinu. Hann hafði verið mjög ölvaður og dyravörðurinn ætlaði að færa hann með valdi út af staðn- um. Maðurinn hlaut sprungu í höfuðkúpu, mar og blæðingu í heilavef, er lamaður í andliti og í vinstri líkamshelmingi, heyrnar- skertur á vinstra eyra, þvoglumælt- ur, þjáist af minnisleysi, einbeiting- arskorti og úthaldsleysi. Þá er máltjáningu og málskilningi veru- lega áfátt. Sönnunargögnum eytt Öryggismyndavél á staðnum náði hluta af atburðarásinni á myndband. Þeim sönnunargögn- um hafði hins vegar verið eytt áður en þau komust í hendur lögreglu. Því byggðist málið á framburði vitna. Bæturnar eru með þeim hæstu sem hafa verið dæmdar hérlendis. Grímur Sigurðsson, lögmaður mannsins, segir að sök skemmti- staðarins hafi legið í því að stiginn uppfyllti ekki byggingarreglugerð. „Sök dyravarðarins felst í því að hann hélt manninum ekki nógu traustum tökum þegar hann var að bera hann út af staðnum.“ þsj Dyravörður og skemmtistaður bera ábyrgð á falli manns niður stiga Gert að greiða 65 milljónir Reykjanesbær Maðurinn féll niður stiga og hlaut meðal annars heilaskaða. Vigdís Árnadóttir, trúnaðar- maður skurðhjúkrunarfræðinga á Landspítalanum, segir meginþorra þeirra ætla að hætta störfum um næstu mánaðamót. Anna Stefáns- dóttir, starfandi forstjóri spítalans, er hins vegar bjartsýn á að meiri- hlutinn dragi uppsagnir sínar til baka, skv. fréttum RÚV í gær. 96 svæfinga- og skurðhjúkrun- arfræðingar hafa sagt upp störfum á LSH vegna óánægju með nýtt vaktafyrirkomulag. Forráðamenn spítalans munu eiga einstaklings- viðtöl við þá starfsmenn og lýkur þeim á mánudag. Eftir það hafa hjúkrunarfræðingar tvo sólar- hringa til að tilkynna hvort þeir standi við uppsögn sína eða ekki. Því kemur í ljós á miðvikudag hve margir hætta um mánaðamót. þkþ Lítið miðar í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga Meirihlutinn hættir um mánaðamót Lára Ómarsdóttir fréttamaður hefur ákveðið að láta af störfum hjá fréttastofu Stöðvar 2. Lára segir ástæðuna vera ummæli sín í netútsendingu, sem henni var ekki kunnugt um, vegna mót- mæla við Rauðavatn síðastliðinn miðvikudag. „Ég gerði mér ekki grein fyrir að símtal mitt við samstarfsmann heyrðist á Vísi.is en í því sagði ég í hálfkæringi að ég gæti fengið einhvern til að kasta eggi meðan við værum í beinni útsendingu. Enginn sem þekkir mig lætur sér detta í hug að mér hafi verið al- vara,“ segir í yfirlýsingu frá Láru. Lára segist virða siðareglur blaða- og fréttamanna og að hún taki starf sitt alvarlega. „Þess vegna fellur mér þungt að hafa orðið þetta á og þar með orðið völd að því að trúverðugleiki minn og fréttastofunnar sem ég vinn hjá hafi að ósekju verið dreginn í efa í þjóðmálaumræð- unni. Fréttaflutningur verður að vera hafinn yfir allan vafa. Sé ekki svo, getur orðspor fréttastof- unnar og starfsmanna hennar beðið hnekki.“ Hún þakkar samstarfsmönnum sínum stuðninginn sem þeir hafa sýnt henni undanfarna daga, en telur það vera fyrir bestu að hún axli með þessum hætti ábyrgð, þó orð hennar hafi verið ætluð sem glettni og bara einum manni sem vissi sem var að engin alvara lá að baki þeim. aí Lára hættir hjá Stöð 2 Miklar tafir urðu á um- ferð um Miklubraut í Reykjavík á fjórða tím- anum í gær þegar um eitt hundrað ungmenni höfðu komið sér fyrir á götunni, að sögn til að mótmæla meðal annars háu miða- verði í kvikmyndahús. Á þriðja tug lögreglu- manna tók þátt í að ryðja Miklubrautina við gatna- mót Kringlumýr- arbrautar, en öll umferð um Miklubrautina í vestur stöðvaðist vegna aðgerða ungmennanna. Meðan á aðgerðunum stóð bað lögregla ökumenn að fara Háaleit- isbraut til að komast suður í Kópavog og í Hafnarfjörð. Lögregla fyr- irskipaði ungmennunum að yfirgefa svæðið þegar í stað eða vera handtekin að öðrum kosti og komst umferðin í samt lag nokkru síðar. aí Ungmenni trufluðu umferð Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@24stundir.is Alengt er að flutt sé inn í fjölbýlis- hús án þess að þeim fylgi frágengið leiksvæði barna, þrátt fyrir að það stangist á við byggingarreglugerð. „Þetta er oft stórkostlegt vanda- mál,“ segir Herdís Storgaard hjá Forvarnahúsi Sjóvár. Hún segir ófrágengin leiksvæði geta skapað mikla hættu og mál hafi ratað inn á sitt borð þar sem ófrágengin leik- svæði hafi stuðlað að slysum á börnum. „Oft er búið að flytja leiktækin á lóðina, en eftir er að festa þau nið- ur. Ég man eftir atvikum þar sem krakkar fóru sjálfir í að reisa við tæki sem átti að grafa niður, en þau féllu síðan yfir börn sem slösuðust mjög alvarlega.“ Það síðasta sem gengið er frá „Leiksvæði barna er yfirleitt það síðasta sem gengið er frá á lóðun- um, og oft löngu eftir að fólk er flutt inn í húsin,“ segir Þórður Árnason smiður. „Leiksvæðið er þá jafnvel bara gröfur og stórir bílar, sem skapar augljósa hættu.“ Í 65. grein byggingarreglugerðar segir að hverju húsi á íbúðasvæði eigi að fylgja leiksvæði fyrir börn á lóð, sem skuli vera frágengið áður en íbúðarhús er tekið í notkun. Þá segir í reglugerð um öryggi leik- svæða og leiktækja að lokaúttekt byggingafulltrúa skuli fara fram áður en leiksvæði er tekið í notkun. Magnús Sædal, byggingafulltrúi Reykjavíkur, segir reglurnar skýrar. „Leiksvæði barna á að vera frá- gengið áður en flutt er inn, það er alveg klárt. Þetta er mál sem við skoðum í lokaúttekt mannvirkis. Ef leiksvæði vantar þegar við komum í lokaúttekt gerum við kröfur um að það sé gert.“ Frágangur háður veðri Jón Sigurðsson hjá bygginga- sviði Hafnarfjarðarbæjar tekur undir með Magnúsi. „En fólk getur náttúrulega flutt inn áður en loka- úttekt fer fram.“ Þá bendir Magnús á að lóðafrá- gangur sé oft háður veðurfari. „Menn ganga ekki frá leiksvæði um vetur, en fresta oft ekki að flytja inn í desember þrátt fyrir að leiksvæði sé ógert.“ Leiksvæðin eru slysagildrur  Flutt er inn í ný fjölbýlishús þótt leiksvæði séu ófrágengin  Ókláruð leiksvæði skapa hættu  Flutt inn í trássi við reglugerð Uppbygging Leiksvæðin eru gjarnan það síðasta sem gengið er frá, segir smiður. ➤ Í 65.1. grein bygginga-reglugerðar segir: „Hverju íbúðarhúsi [innan íbúð- arsvæðis] skal fylgja leik- svæði barna á lóð.“ ➤ Í 65.2. grein segir: „Ljúka skalfrágangi leiksvæða á lóðum áður en íbúðarhús eru tekin í notkun.“ SKÝRAR REGLUR 24stundir/Júlíus STUTT ● Fjármálamisferli Framkvæmdastjóra og rekstr- arstjóra Byggingafélags náms- manna hefur verið vikið frá störfum af stjórn félagsins sem hefur kært meint fjár- málamisferli til lögreglu. Fréttastofa RÚV skýrði frá þessu. ● 75 ára gamall karlmaður úr Kópavogi hefur verið kærður til lögreglu fyrir kynferðisof- beldi gegn stúlku á átta ára tímabili, frá því því hún var tólf ára til tvítugs. Húsleit var gerð heima hjá manninum og þar fundust að sögn lögreglu gögn sem eru nú til rann- sóknar. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.