24 stundir - 26.04.2008, Side 4
4 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 24stundir
Ódýrasta
eldsneytið í dag
Umhverfið í framsætið
Matti Vanhanen, forsætisráð-
herra Finnlands, kemur í tveggja
daga opinbera heimsókn til Ís-
lands á mánudaginn.
Vanhanen mun eiga fund með
Geir H. Haarde forsætisráðherra
og munu þeir ræða tvíhliða sam-
skipti ríkjanna, efnahagsmál,
málefni ESB og samskiptin við
Rússland. Vanhanen mun einnig
funda með fulltrúum íslenskra
fyrirtækja sem eru með starfsemi
í Finnlandi. aí
Vanhanen sækir
Ísland heim
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Nemendur í Réttarholtsskóla sem
sækja valfrjálst heimspekinámskeið
hjá Jóhanni Björnssyni, heimspek-
ingi og kennara, eru ekki þjakaðir af
prófkvíða vegna námsins eins og
svo margir aðrir nemendur á þess-
um árstíma. Jóhann hætti nefnilega
að prófa nemendurna fyrir nokkr-
um árum.
„Mér blöskraði þegar ég hóf störf
hér fyrir 6 árum yfir því hversu
gríðarlega uppteknir nemendur
voru af einkunnum. Mér fannst það
há kennslunni. Nemendur spurðu
mig á göngunum um hvers vegna
þeir hefðu fengið þessa tölu í ein-
kunn en ekki einhverja aðra. Núna
eiga þeir hins vegar til að velta upp
einhverjum spurningum varðandi
námsefnið þegar þeir mæta mér á
göngunum,“ greinir Jóhann frá.
Hlustun einnig þátttaka
Hann gerir heldur ekki kröfu um
að nemendur tjái sig í heimspeki-
tímunum. „Í sumum skólum er
ætlast til að allir taki til máls og tjái
sig og svo eru nemendur metnir í
framhaldi af því. Ég hef aldrei kraf-
ist þess. Hlustun og umhugsun er
einnig þátttaka. Ég sannfærðist enn
betur um þetta eftir að hafa verið
með nemanda sem var málhaltur.
Það hefði verið óréttlátt gagnvart
honum að meta hann með tilliti til
þátttöku í umræðu. Ég sá hins vegar
á látbragði hans að hann var virk-
ur.“
Jóhann kveðst reyna að halda
prófafjölda í öðrum greinum sem
hann kennir, landafræði og
frönsku, í lágmarki. Og hann lætur
nemendur taka þátt í gerð próf-
anna. „Í landafræði hef ég stundum
látið nemendur búa til eins margar
spurningar og þeir geta úr náms-
efninu. Þeir læra um leið og þeir
semja spurningarnar sem þeir skila
undir nafni. Ég vel síðan hluta af
spurningum þeirra og nota sem
grunn í prófinu.“
Próf sem agastýring
Það er mat Jóhanns að kennarar
noti í mörgum tilfellum próf sem
agastýringu og hann kveðst sakna
vitrænnar umræðu um námsmat.
„Þegar fjöldi prófa er mikill hætta
sumir nemendur að taka þau alvar-
lega en aðrir fyllast af streitu. Þegar
lestur fyrir mörg skyndipróf í sömu
viku bætist ofan á fullan vinnudag
nemenda verður þessu ekki öllu
sinnt. Kennarar þurfa að spyrja sig
hvers vegna þeir prófa og hversu oft
þeir eigi að prófa.“
Jóhann saknar þess einnig að
skólastarf skuli ekki miða að því að
stuðla að hamingju nemenda. „Það
má leggja meiri rækt við það á með-
vitaðri hátt. Þetta markmið vantar í
námskrána. Með því að fækka próf-
um reyni ég að leggja mitt af mörk-
um.“
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Hversu oft þarf að prófa? Jóhann
Björnsson, heimspekingur og kenn-
ari, segir kennara þurfa að spyrja
sig hversu oft eigi að prófa og hvers
vegna þeir prófi.
Hætti að prófa
nemendurna
Jóhann Björnsson kennari saknar vitrænnar umræðu um náms-
mat og vill fækka prófum Áhugi á einkunnum háir kennslunni
➤ Fjöldi nemenda leitar sér að-stoðar vegna prófkvíða á
hverju ári.
➤ Kvíðastjórnunarnámskeið erureglulega haldin í skólum.
PRÓFKVÍÐI
24stundir/Árni Sæberg
Borgarráð samþykkti í gær að
selja Fríkirkjuveg 11. Fyrirtæki
Björgólfs Thors Björgólfssonar,
Novator, kaupir húsið á 650 milj-
ónir króna.
Fram kemur í bókun Þorleifs
Gunnlaugssonar, fulltrúa VG í
borgarráði, að fráleitt sé að und-
irrita samning þar sem Reykja-
víkurborg afsali sér í raun for-
ræði yfir Hallargarðinum öllum
og afhendi þar að auki einkaað-
ilum lóð sem börn og ungmenni
hafi nýtt sér til leikja um áratugi.
Í tilkynningu frá Novator segir
hins vegar að uppbygging hússins
muni laða almenning á nýjan leik
að þessum fallega stað í mið-
bænum.
aí
Borgin selur
Fríkirkjuveg 11
Brot 120 ökumanna voru mynd-
uð í Suðurhólum og Norðurfelli í
vikubyrjun. Meðalhraði þeirra
var 43 til 46 kílómetrar en á báð-
um stöðum er 30 kílómetra há-
markshraði. Eftirlit lögreglu í
Breiðholti er hluti af sérstöku eft-
irliti í og við íbúðargötur.
Ómerkt lögreglubifreið með
myndavélarbúnaði var notuð en
lögregla segir reynsluna hafa sýnt
að notkun slíks búnaðar gefi
gagnlegar upplýsingar um ástand
umferðarmála og auðveldi leit að
lausnum þar sem þeirra er þörf.
120 teknir fyrir
hraðakstur
Fíkniefni fundust við húsleit í
miðborginni í fyrrinótt. Talið er
að um sé að ræða tæplega 50
grömm af kókaíni og lítilræði af
marijúana.
Einnig var lagt hald á 150 þúsund
krónur í peningum sem grunur
leikur á að séu tilkomnir vegna
fíkniefnasölu. Karl um þrítugt
var handtekinn vegna rann-
sóknar málsins.
Fíkniefni og
fjármunir
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Neytendasamtökin könnuðu að þessu sinni verð á St.
Dalffour sykurskertri bláberjasultu, 284 g. Mikill
verðmunur er á þessari vöru og var hæsta verð 57,3%
hærra en það lægsta eða 137 króna munur.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum.
57% verðmunur á sultu
Sonja
McManus
NEYTENDAVAKTIN
St. Dalffour sykurskert bláberjasulta 284 g.
Verslun Verð Verðmunur
Bónus 239
Krónan 240 0,4 %
Kaskó 249 4,2 %
Þín verslun, Seljabraut 319 33,5 %
Samkaup-Úrval 339 41,8 %
Nóatún 376 57,3 %