24 stundir - 26.04.2008, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Bandarísk stjórnvöld hafa birt
myndir af því sem þau segja vera
rústir kjarnakljúfs í Sýrlandi. Segja
þau kjarnakljúfinn ekki hafa verið
reistan í friðsamlegum tilgangi og
að allt bendi til þess að Sýrlend-
ingar hafi notið aðstoðar Norður-
Kóreu við framkvæmdirnar.
Stjórnvöld í Sýrlandi bera ásakanir
Bandaríkjamannanna af sér.
Sprengdu fyrst, tilkynntu svo
Ísraelsher gerði árás á bygging-
arnar í september á síðasta ári. Í
framhaldinu sýna gervitungla-
myndir að Sýrlendingar beittu
stórvirkum vinnuvélum til að
hreinsa til á svæðinu.
„Alþjóðakjarnorkumálastofnun-
in mun taka þessar upplýsingar til
jafnalvarlegrar skoðunar og ástæða
er til,“ segir Mohamed ElBaradei,
forstjóri stofnunarinnar.
ElBaradei gagnrýnir að upplýs-
ingarnar hafi ekki verið gerðar op-
inberar fyrr. Hann segir að Ísraelar
hefðu átt að gefa eftirlitsmönnum
stofnunarinnar tækifæri til að
skoða aðstæður áður en loftárás
var gerð.
Neitun frá Sýrlandi
Stjórnvöld í Sýrlandi segja af og
frá að um vopnaþróunarverkefni
hafi verið að ræða. „Væri eðlilegt
að velja stað á berangri, þar sem
gervitungl sjá auðveldlega til,“ segir
Bashar Assad Sýrlandsforseti.
Bandaríkin saka Norður-Kóreu um að hafa breitt út kjarnorkutækni
Segja Sýrlandi hafa verið hjálpað við kjarnakljúf
➤ Bandaríkjamenn segjast hafakomist á snoðir um samstarf
Norður-Kóreu og Sýrlands ár-
ið 2003.
➤ Ísraelsher varpaði sprengjum6. september 2007.
KJARNORKA Í LAUMI
Kjarnorka? Ein af mynd-
unum sem bandarískir
embættismenn segja sýna
sýrlenskan kjarnakljúf.
Nordic-Photo/AFP
Alþjóðlegur þrýstingur virðist
hafa haft áhrif á kínversk stjórn-
völd, sem tilkynntu í gær að þau
myndu setjast niður til viðræðna
við erindreka Dalai Lama.
Undanfarið hefur fjöldi þjóðar-
leiðtoga hvatt Kína til að taka aftur
upp viðræður sem slitnaði upp úr
síðasta sumar. Sagði í tilkynningu
Kínverja að viðræðurnar muni eiga
sér stað á næstu dögum.
Tenzin Taklha, talsmaður Dalai
Lama, segist ekki búast við öðru en
að vel verði tekið í umleitanir Kín-
verja. Hann bætti við að enn hefði
ekki borist formlegt boð til við-
ræðna. „Við þurfum að taka af-
stöðu til þess þegar boðið berst,“
segir Taklha. „Við verðum að sjá
hvaða skilyrði þeir setja.“ aij
Stjórnvöld í Kína láta undan þrýstingi
Rætt við Tíbeta
Þýskir sagnfræðingar hafa
hvatt þarlend stjórnvöld
til að létta banni af útgáfu
á Mein Kampf, áróð-
ursriti nasistaforingjans
Adolfs Hitlers. Óttast þeir
að ella sé hætt við að öfga-
menn eigi auðvelt með að
nýta sér bókina í áróð-
ursskyni.
Vilja sagnfræðingarnir
við Samtímasögusetrið í
München gefa bókina út með ýtarlegum útskýringum sem fletti ofan
af og hreki málflutning Hitlers. Til þess segjast þeir þurfa að koma
bókinni í hendur lesenda fyrir árið 2015, þegar höfundarréttur bók-
arinnar verður frjáls og hver sem er getur gefið hana út. Vilja þeir hafa
útbreiðslu sinnar útgáfu sem mesta og gefa hana því út á netinu. aij
Vilja gefa Mein Kampf út
Rannsókn lögreglu á sér-
trúarsöfnuðinum í Texas vindur
sífellt upp á sig. Á fimmtudag var
gefið upp að 25 stúlkur til við-
bótar hefðu orðið barnshafandi
áður en þær náðu 18 ára lögaldri.
Stúlkurnar sögðust í byrjun
rannsóknar vera lögráða, en ann-
að kom í ljós við frekari rann-
sókn.
Þar með nær málið til um 460
ólögráða einstaklinga sem grunað
er að hafi verið misnotaðir.
Rannsóknaraðilar hafa und-
anfarið unnið að því að komast
að því með DNA-prófum hvernig
þeir sem til rannsóknar eru séu
skyldir hver öðrum. aij
Fleiri tánings-
mæður finnast
Samtök íslamskra fræðimanna í
Alsír mótmæla lögum sem banna
konum að vera með slæðu á ljós-
myndum í vegabréfum. Sömu lög
taka til skeggvaxtar karlmanna á
ljósmyndum. Segja samtökin að
sér hafi borist hundruð kvartana
vegna þessa og að lögin stangist á
við trúarsetningar íslams. aij
Mótmæla
slæðubanni
Stjórnvöld í Slóvakíu munu á
næstunni verja nærri hálfum
milljarði íslenskra króna til að
telja brúnbirni landsins. Dýra-
verndunarsinnar áætla að 400-
600 birnir séu í landinu, en veiði-
menn segja að þeir séu 1.200-
1.400 og krefjast aukinna veiði-
kvóta. aij
Bangsar taldir
Verð frá:
39.900kr.
Netverð á mann miðað við
2, 3 eða 4 í stúdíó, íbúð eð
a hótelherbergi.
Enginn barnaafsláttur. Inni
falið er flug, gisting í 7 næ
tur, flugvallarskattar
og íslensk fararstjórn.
Sjóðheitt
sólarlottó!
Spilaðu með og láttu
sólina leika við þig.
Í boði eru 200 sæti til Krítar, Marmaris, Mallorca og Costa Del Sol.
Þú velur áfangastaðinn og brottfarardaginn. Viku fyrir brottför
staðfestum við á hvaða gististað þú dvelur í sumarfríinu.
Gildir fyrir maí, júní og júlí. Ein vika eða tvær.
Fyrstur kemur, fyrstur fær.
Nánari upplýsingar og bókanir
á www.plusferdir.is