24 stundir - 26.04.2008, Síða 22

24 stundir - 26.04.2008, Síða 22
Skýrsla um aðra úttekt GRECO á Íslandi var gerð opinber í ágúst 2004. Í henni var sex tilmælum beint til íslenskra stjórnvalda og þeim gefinn frestur til ársloka 2005 til að leggja fram skýrslu um inn- leiðingu þeirra. Í fyrsta lagi var lagt til að eign- arupptökuheimildir stjórnvalda yrðu víkkaðar og lagt til að sönn- unarbyrði ákæruvalds í slíkum málum yrði endurskoðuð. Þegar svör höfðu borist taldi GRECO að tilmælin hefðu ekki verið innleidd. Þá var lagt til að komið yrði á siðareglum sem byggðust á al- mennri stefnumörkun gegn spill- ingu innan opinbera geirans. Talið var að tilmælin hefðu verið inn- leidd að hluta. GRECO mælti einnig með því að viðeigandi reglur yrðu settar varðandi hagsmunaárekstra, til dæmis varðandi gjafir til opinberra aðila, og varðandi það þegar op- inberir starfsmenn færðu sig yfir í einkageirann. Tilmælin voru talin hafa verið innleidd að hluta. Fjórðu tilmælin mæltu með því að innleiddar yrðu reglur og boðið upp á þjálfun fyrir opinbera starfs- menn til að gera þeim auðveldara með að tilkynna ólöglegar, ósæmi- legar eða ósiðlegar gjörðir sem þeir yrðu varir við í sínu starfi. GRECO taldi að þessi tilmæli hefðu verið innleidd með fullnægjandi hætti. Þá var lagt til að fyrirtækjaskrá fengi frekari úrræði til að nálgast viðeigandi upplýsingar um lögaðila í skráningarferli fyrirtækja. GRECO taldi að ekki hefði verið farið að þessum tilmælum. Að lokum var lagt til að sá möguleiki yrði skoðaður að banni yrði komið á viðskiptaþátttöku einstaklinga sem hefðu verið dæmdir fyrir alvarleg brot, svo sem spillingu. GRECO taldi að Íslend- ingar hefðu tekist á við þetta atriði á fullnægjandi hátt. Því telur GRECO að íslensk yf- irvöld hafi tekist á við þriðjung til- mælanna með fullnægjandi hætti. Önnur úttekt GRECO á Íslandi Einungis þriðjungur umbóta fullnægjandi 22 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 24stundir Sumardekk – hjólbarðaþjónusta Sumar- og heilsársdekk fyrir allar gerðir fólksbíla og jeppa. Hagstætt verð og traust þjónusta. Reykjavík Akureyri Tangarhöfða 15 : 587 5810 Réttarhvammi 1 : 464 7900 Vagnhöfða 6 : 577 3080 www.alorka.is P IP A R • S ÍA • 8 07 53 Við tökum vel á móti þér á þjónustustöðvum okkar! Umboðsaðili fyrir Bridgestone hjólbarða GRECO, samtök ríkja í Evrópu- ráðinu gegn spillingu, hafa fram- kvæmt úttektir á vörnum Íslands gegn spillingu frá árinu 2001. Tvær skýrslur um þriðju úttekt stofnun- arinnar á íslenskum aðstæðum var kynnt fyrir skemmstu. Í henni er varað við því að sú almenna skoð- un íslenskra stjórnvalda að hér þrífist lítil spilling geti haft þau nei- kvæðu áhrif að ekki verði nægilega gætt að spillingarhættunni. Þar var sérstaklega tekið fram að í ljósi þess mikla hagvaxtar sem ríkt hefur á Íslandi undanfarin ár, þeirra stóru fjárfestinga sem Íslendingar hafi ráðist í bæði heima fyrir og erlendis og einkavæðingar ríkisfyrirtækja sé afar mikilvægt að vera vakandi fyrir spillingarhættunni. Alls hefur 24 tilmælum verið beint til íslenskra stjórnvalda í þessum þremur úttektum. Of víð- tækt er að fjalla um þau öll og því verða ein tilmæli úr hverri úttekt tekin hér til nánari skoðunar. Styrking efnahagsbrotadeildar GRECO benti á það í fyrstu út- tekt sinni á Íslandi að efnahags- brotadeild ríkislögreglustjóra þyrfti að vera séð fyrir aukinni þjálfun þannig að hún gæti sýnt meira frumkvæði í að fyrirbyggja, rann- saka og sækja til saka í spillingar- málum. Í svari íslenskra stjórn- valda var tekið fram að framlög til embættisins hefðu tvöfaldast á tímabilinu 2001 til 2005 og farið úr 58 milljónum króna á ári í um 113 milljónir króna. Starfsmönnum hefði að sama skapi fjölgað úr 10 í 15 á sama tíma. GRECO komst því að þeirri niðurstöðu að tilmælun- um hefði verið fullnægt. 24 stundir sögðu hins vegar frá því 12. apríl síðastliðinn að starfs- mönnum efnahagsbrotadeildar hefði fækkað úr 17 í 15 milli áranna 2007 og 2008 og framlög til hennar hlutfallslega staðið í stað. Þau eru raunar enn mjög sambærileg við það sem þau voru árið 2005. Helgi Magnús Gunnarsson, sak- sóknari efnahagsbrotadeildar, sagði í viðtali hér í blaðinu síðastliðið sumar að deild sín væri ekki sam- keppnishæf við það umhverfi sem hún starfar í. Orðrétt sagði hann að „við þurfum að hefja frekari rann- sóknir að eigin frumkvæði og ég tel ekki óraunhæft að miða við tvö- földun á starfsmannafjölda á ekki mjög löngum tíma. Þá þurfum við að sækja þekkingu og menntun fyrir fólk en slík þekking er sérhæfð og bara að finna erlendis.“ Af þess- um orðum virðist ljóst að yfirmað- ur deildarinnar er ekki sammála því mati íslenskra stjórnvalda og GRECO að aðstæður og úrræði hennar til að sýna meira frum- kvæði í að fyrirbyggja, rannsaka og sækja til saka í spillingarmálum hefði aukist með viðunandi hætti. Eignarupptökuákvæði Í annarri skýrslu GRECO var bent á að Íslendingar þyrftu að víkka eignarupptökuheimildir sín- ar og lagt til að sönnurbyrði ákæru- valdsins yrði endurskoðuð, en hún þótti of mikil. Við þessu var brugð- ist í nóvember síðastliðnum þegar dómsmálaráðherra lagði fram frumvarp til breytinga á almennum hegningarlögum sem gerir ráð fyrir því að nýr kafli sem nefnist „Upp- taka“ komi í stað 69. greinar gömlu laganna. Með því verður sönnun- arbyrðin öfug við það sem verið hefur og færist yfir á brotamennina verði þeir fundnir sekir. Það þýðir í raun að í stað þess að ákæruvaldið þurfi að sanna að menn hafi eign- ast hluti með ólögmætum hætti þurfa dæmdir brotamenn að sanna að þeir hafi eignast þá á löglegan hátt. Gert er ráð fyrir að beita megi þessu ákvæði í fíkniefna-, skatt- svika- og fjársvikamálum. Slíkar heimildir hafa verið í dönskum og norskum lögum í meira en áratug. Framlög í stjórnmálastarfsemi Í skýrslu GRECO um gagnsæi fjármögnunar stjórnmálastarfsemi á Íslandi (þriðja úttekt) er því sér- staklega fagnað að sett hafi verið lög hérlendis um fjármál stjórn- málasamtaka og frambjóðenda. Þó er alls níu tilmælum beint til ís- lenskra stjórnvalda til að lög þeirra uppfylli betur kröfur um varnir gegn spillingu. Ef orðið yrði við til- mælunum þyrftu íslenskir stjórn- málaflokkar meðal annars að upp- lýsa hvaða einstaklingar styðja þá með fjárframlögum yfir ákveðnu marki, en í gildandi lögum er ein- ungis skylt að upplýsa hvaða lög- aðilar hafa innt slík framlög af hendi. Þá er líka kallað eftir því að reglur verði settar sem tryggðu gagnsæi fjármögnunar framboða til forsetakosninga. Athyglisvert er að í upphaflegu frumvarpi til laga um fjármögnun stjórnmálastarf- semi var gert ráð fyrir að þau næðu einnig til forsetaframbjóðenda. Í lokaútgáfu laganna, sem gengu í gildi 1. janúar 2007, var það ákvæði þó hvergi að finna. Ónógar varnir gegn spillingu  Ísland þykir ekki hafa nægar varnir gegn spillingu  Úr ýmsu hefur verið bætt en mikilvægar varnir hafa setið á hakanum ➤ Alls hafa þrjár úttektir veriðgerðar á vegum GRECO á spillingarvörnum á Íslandi. ➤ 24 tilmælum til úrbóta hefurverið beint til íslenskra stjórnvalda. ➤ Varnirnar þykja ekki styrkjastí samræmi við umhverfið. GRECO Bessastaðir Í þriðju úttekt GRECO er lagt til að lög um fjárframlög til stjórnmála- starfsemi nái til forsetaframbjóðenda. 24stundir/Ómar Þórður Snær Júlíusson thordur@24stundir.is FRÉTTASKÝRING Fyrsta úttekt var framkvæmd hérlendis árið 2001 og skýrslu skil- að í desember það ár. Alls var þrennum tilmælum beint til ís- lenskra stjórnvalda. Í fyrsta lagi var lagt til að lögð yrðu drög að virkri stefnu gegn spillingu og varið til þess nægu fé. Íslensk yfirvöld sendu frá sér svar- skýrslu í apríl 2003 og eftir að hafa kynnt sér svörin komst GRECO að þeirri niðurstöðu að þessum til- mælum hefði verið sinnt með full- nægjandi hætti. Önnur tilmælin voru á þann veg að rannsóknardeild efnahags-brota hjá embætti ríkislögreglustjóra yrði séð fyr- ir nauðsynlegri þjálfun til að unnt yrði að sækja meira á í að fyrirbyggja, rann- saka og sækja til saka í spillingarmálum. GRECO komst að þeirri niðurstöðu að Íslendingar hefðu sinnt þessu með full- nægjandi hætti. Þriðju tilmælin voru þau að leidd yrðu í lög ákvæði sem tryggja að upplýsingar sem opinberir starfsmenn fá í starfi sínu um spill- ingarmál, eða grunur um slíkt, verði tilkynntar þeim stjórnvöldum sem annast rannsóknir á slíkum brotum. GRECO komst að þeirri niðurstöðu að þessum tilmælum hefði verið sinnt að hluta til. Fyrsta úttekt GRECO á Íslandi Ísland varð við flestum tilmælunum Þriðja úttekt GRECO var tví- þætt. Önnur skýrslan fjallaði um innleiðingu á mútuákvæðum Evr- ópuráðssamnings gegn spillingu á sviði refsiréttar en hin skýrslan um gagnsæi fjármögnunar stjórnmála- starfsemi hérlendis. Í fyrri skýrslu GRECO segir að íslenska löggjöfin sé í meginatrið- um í samræmi við þær skuldbind- ingar sem finnast í Evrópuráðs- samningum. Í skýrslunni er samt varað við andvaraleysi gagnvart spillingu. Sex tilmælum er beint til íslenskra stjórnvalda. Meðal þeirra er að ákvæði um mútubrot í al- mennum hegningarlögum skuli einnig ná til alþingismanna og meðlima erlendra fulltrúaþinga sem hafa með stjórnsýslu að gera, svo sem gerðardómara og kvið- dómenda. Svo er ekki í dag. Í síðari skýrslunni er því fagnað að loks hafi verið sett lög um fjár- mál stjórnmálasamstaka og fram- bjóðenda hérlendis en alls er níu tilmælum beint til stjórnvalda til að lög uppfylli betur kröfur Evr- ópuráðsins um varnir gegn spill- ingu. Íslensk stjórnvöld hafa frest til októberloka 2009 til að skila skýrslu um hvernig til hafi tekist að hrinda tilmælunum í framkvæmd. Þriðja úttekt GRECO á Íslandi Fimmtán tilmælum beint til stjórnvalda

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.