24 stundir - 26.04.2008, Side 47
24stundir LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 47
Álfheimar 74
Sími: 414 4000
hreyfing@hreyfing.is
www.hreyfing.is
NÝTT OFURNÁMSKEIÐ FYRIR SUMARIÐ
árangur
dekur &
P
L
Á
N
E
T
A
N
∆ Mataræði tekið í gegn
∆ Einfaldar æfingar sem miða að því
að tryggja hámarks fitubruna
∆ Hjólatími 2x í viku
∆ Styrktartími 1x í viku
∆ Byrjað rólega
Innifalið:
Ótakmarkaður aðgangur að heilsurækt
Aðgangur að glæsilegri útiaðstöðu með
jarðsjávarpotti og gufuböðum
Aðgangur að Blue Lagoon spa
Blue Lagoon orkumeðferð
(60 mín. nudd)
4-vikna ofurnámskeið fyrir þær sem vilja
„hrista af sér“ veturinn og hefja vorið af
krafti. Komdu í hóp með konum sem hafa
það að markmiði að losa sig við þessi
síðustu „föstu“ 3-5 kíló.
Forgangsraðaðu og settu sjálfa þig
í fyrsta sæti!
Hefst 6. maí.
Tímarnir eru kl. 20.30 á þriðjud. og fimmtud.
og á laugard. kl. 10.15.
Verð: 29.900 kr.
Hringdu núna í 414 4000 eða sendu okkur
tölvupóst á hreyfing@hreyfing.is
Námskeiðið er undir
stjórn Ágústu Johnson
og Önnu Eiríksdóttur
íþróttakennara.
af auðvelt þar sem ég á ennþá í
basli með tungumálið. Í hvert
skipti sem ég næ að þræla mér í
gegnum blaðagreinarnar og skilja
nokkurn veginn um hvað þær fjalla
verð ég ánægð.“
Hún vill ekki meina að hún
myndi sér almennt sterkar skoð-
anir á þjóðfélagsmálum en annað
kemur þó á daginn þegar talið
berst aftur að Perú. „Perú er fallegt
land sem býður upp á ótrúlega
marga möguleika og íbúar landsins
eru harðduglegt og vinnusamt fólk.
Hins vegar þarf margt að breytast
þar og ég held ég hafi ekki síst lært
það eftir að ég flutti til Íslands. Hér
er töluverður jöfnuður meðal íbú-
anna og ég vildi óska þess að hið
sama væri uppi á teningnum
heima í Perú. Þar er mikill fjöldi
fólks sem býr við fátækt og hefur
litla sem enga möguleika á að
vinna sig upp úr henni. Til að
mynda eru engar atvinnuleysisbæt-
ur og svo hafa þeir fátæku minna
aðgengi að menntun og heilbrigð-
isþjónustu en þeir efnaðri. Ríka
fólkið sendir börn sín í rándýra
einkaskóla þar sem þau fá fyrsta
flokks menntun en þeir sem hafa
ekki efni á háum skólagjöldum
verða að sætta sig við lakari mennt-
un, ef þá einhverja. Mikil fátækt
veldur líka hárri tíðni þjófnaða og
annarra glæpa og skapar þannig
ótryggt ástand. Ekki bætir úr skák
að mikil spilling þrífst innan
stjórnkerfisins,“ segir hún og hrist-
ir höfuðið. Hún segist þó hafa fulla
trú á að ástandið eigi eftir að batna.
„Hér áður bjó fólk í stöðugum ótta
við hryðjuverk byltingarsinna en
nú hefur blessunarlega dregið stór-
lega úr ofbeldi. Þar með koma fleiri
ferðamenn til landsins og um leið
meira fjármagn og fleiri störf. Ég
held að ferðamönnum til Perú eigi
eftir að fjölga enn meira á komandi
árum, enda býður landið í raun-
inni upp á allt; þar er hægt að
heimsækja regnskóga, snævi þakin
fjöll, baðstrendur og iðandi mann-
líf í borgum og bæjum.“
Breyttir tímar
Þegar Fanny ákvað að vera um
kyrrt eftir ársdvöl á Íslandi fyrir
þremur árum gat hún farið á
vinnumarkaðinn án þess að þurfa
að fara heim til Perú í millitíðinni.
Vinnuveitandi hennar sér til þess
að hún fái atvinnuleyfið endurnýj-
að einu sinni á ári. Nú eru hins
vegar breyttir tímar og ljóst þykir
að systir hennar þurfi að snúa aftur
til Perú eftir ársdvöl sem au-pair
stúlka og vilji hún fá atvinnuleyfi
eftirleiðis verður alls ekki hlaupið
að því. „Við erum strax farnar að
hafa áhyggjur af því hvort hún á
eftir að geta verið hérna áfram, en
hún er þegar búin að vera hér í
fjóra mánuði af þeim tólf sem hún
hefur leyfi til. Því miður er það
orðið mun erfiðara núna en það
var fyrir mig á sínum tíma. Reynd-
ar er almennt séð erfitt fyrir Perú-
búa að flytja úr landi þótt margir
reyni eins og þeir geta. Þegar fátækt
er svona mikil reynir fólk auðvitað
að leita annað til þess að geta unnið
og séð fyrir fjölskyldum sínum en
fæstum verður nokkuð ágengt og
allra síst þeim fátækustu. Flestir
reyna að fara til Evrópu og Norð-
ur-Ameríku en löndin þar eru okk-
ur nánast lokuð. Ég vildi óska þess
að þetta væri ekki svona, því að ef
fleiri gætu starfað erlendis og sent
peninga heim myndi auðvitað
draga úr fátækt. Konan sem ég bý
hjá núna heitir Hanna og hún er
móðir Matthildar sem ég vann fyr-
ir áður. Hún hefur farið til Perú og
hún sagði mér að þar hefðu margir
innfæddir spurt hana hvernig þeir
ættu að fara að ef þeir vildu flytja til
Íslands. Þetta er bara sjálfsbjargar-
viðleitni hjá fólki sem reynir eins
og það getur að afla sér upplýsinga
í hvert skipti sem tækifæri gefst,“
segir hún að lokum.
ndi a
Ég tók fljótlega eftir
því þegar ég kom
að Íslendingar virðast
mun lokaðri en Perúbúar
og eru lítið fyrir að bera
tilfinningar sínar á torg.
Ég get sagt sem dæmi að
nú eftir fjögurra ára dvöl
á Íslandi hef ég aldrei séð
Íslending gráta.
24stundir/hag