24 stundir - 26.04.2008, Side 48

24 stundir - 26.04.2008, Side 48
48 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 24stundir Ein ferð er mér alltaf ofarlega í huga en það er sólarferð til Majorka sem ég fór með Gunna vini mínum sem nú er látinn. Við vorum tveir eldhressir strákar um tvítugt sem gerðum allt sem tvítugir strákar gera á sólarströnd. Við fórum í tívolí, go-cart, sundlaugargarð og allt annað sem var í boði. Ferðin er mér sérstaklega minnisstæð vegna þess að Gunni er ekki lengur á meðal okkar. Önnur minnisstæð ferð er ökuferðin mín um Norðurlandið sumarið 2006. Þá tók ég mig til og keyrði á Ástjörn þar sem ég var mikið í sumarbúðum á yngri árum. Ég dvaldi þar í smá tíma og rifjaði upp gamla góða tíma. Því næst fór ég til Akureyrar og heimsótti góða vini þar og tók svo ferjuna út í Hrísey en þar vann ég í fiski þegar ég var yngri. Ég fékk vinnuna í Hrís- ey í gegnum ættingja og það er óhætt að segja að um mjög sérstakan tíma hafi verið að ræða. Ég man til dæmis eftir mikilli vetrarhörku þegar ég vann í eynni og við þurftum að vaða snjóinn til að komast í frystihúsið. Það var mjög skemmtilegt að sjá hvað allt hefur breyst frá því að ég varði sumrinu þar. Verbúðinni sem ég bjó í hefur til dæmis verið breytt í gistiheim- ili. Ég skemmti mér mjög vel í Hrísey enda stóð þá Hríseyjarhátíðin yfir og mikið fjör á eynni. Ég fór til Hríseyjar til þess að sjá hvort hún væri eins og hún er í minningunni og hvort mikið hefði breyst og það er óhætt að segja að eyjan sé ekki eins og hún var. Heiðar Austmann útvarpsmaður. Rifjaði upp minningar á Norðurlandi 24stundir/Brynjar Gauti Skemmtilegasta sumarfríið sem ég hef upplifað er tvímælalaust þegar ég og maðurinn minn fórum saman til Taílands árið 2006. Við ferðuðumst um fallegar eyjar og strendur og lærðum meðal ann- ars að kafa saman. Taíland er alger para- dís og þetta var ótrúlega skemmtilegt sumarfrí. Svona innanlands held ég að síðasta sum- ar standi upp úr en þá fórum við í stór- skemmtilega útilegu í Landmannalaugum sem endaði með því að við flúðum sand- storm sem þar geisaði alla leið yfir í Skaftafell en þar er alltaf gott veður. Það var skítakuldi í Landmannalaugum enda varla komið fram í miðjan júní. Ég get aldrei beðið lengi með að fara í útilegu þegar sumarið er á annað borð komið að mínu mati. Mér líður alltaf mjög vel úti í náttúrunni, sérstaklega á fjöllum og ég elska að sofa í tjaldi. Ég verð þó örugglega að fækka fjallgöngunum eitthvað í sumar enda verð ég þá orðin kasólétt. Ég get þá allavega strokið bumbunni í sólbaði meðan spúsinn hleypur um fjöll og firnindi. Brynja Björk blaðamaður. Lærði að kafa í Taílandi Eftirminnilegasta sumarfríið er tvímælalaust frí með vinkonum mínum til Thaílands í september síðastliðnum. Við vorum tvær sem flugum til Krabi og keyrðum niður til Ko lanta. Þar gistum við á dásamlegu hóteli sem heitir Layana. Húsin, þjónustan, maturinn og heilsulindin, allt al- gjörlega fyrsta flokks. Þarna fékk ég meðal annars besta nudd sem ég hef nokkurn tíma fengið. Umhverfið er ólýsanlega fallegt og staðurinn er frábær fyrir þá sem hafa gaman af köfun. Við leigðum okkur hraðbát í heilan dag og sigldum meðal annars út í Phi phi eyju þar sem myndin The Beach var tekin upp. Eftir viku bættist önnur vinkona við en þá tókum við ferju yfir til Koh samui. Þar gistum við á Kamalaya resort and spa, sem er paradís á jörðu. Þar var ákveðið að taka mataræðið og heilsuna í gegn og hittum við meðal annars næringafræðing og fórum í mjög sérstaka mælingu þar sem athugað var hvað betur mætti fara. Dagskráin þar er þéttskipuð alls kyns áhugarverðum tímum. Boðið er upp á jóga, hugleiðslu, pílates og margt fleira. Frá Kamalaya kemur maður gjörsamlega endurnýjaður á líkama og sál. Nadia Banine dagskrárgerðarkona. Fór í vinkonuferð á heilsulind Ég hef alltaf haft mjög gaman af tjald- útilegum og þegar ég og maðurinn minn ræddum um hvað ég vildi gera á fertugs- afmælinu mínu sagðist ég vilja verja deg- inum úti í náttúrunni. Stuttu fyrir afmælið mitt tilkynnti maðurinn minn mér að hann ætlaði að gefa mér hring í afmælisgjöf. Hringurinn reyndist ekki passa á puttann enda var um hring í kringum landið að ræða. Ég var að sjálfsögðu mjög ánægð og við héldum af stað í tíu daga ferð um landið. Á sjálfan afmælisdaginn vorum við í tjaldi í Hljóðklettum en þar var ekkert gsm-símasamband. Yfirleitt myndi ég telja það kost en foreldrar mínir eru vanir að hringja í mig á afmælisdaginn og syngja á meðan pabbi spilar á harmonikku. Ég vildi alls ekki missa af því og keyrði því langa leið til þess að fá símasamband. Það fyndnasta við afmælisdaginn var að ég beið allan daginn eftir að eiginmaðurinn drægi pakka upp úr töskunni en hann hafði þá skipulagt fríið í staðinn fyrir að gefa mér gjöf. Ég var auðvitað skúffuð yfir því og ákvað því að kaupa mér sjálf dýrindis afmæl- isgjöf þegar við komum aftur heim. Hann hefur ekki sleppt pakkanum síðan. Linda Björk Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri. Afmælisveisla úti í náttúrunni Fyrir utan brúðkaupsferðina mína kemur eitt frí upp í hugann. Fyrir mörgum árum fórum við þrír félagar í mánaðarlangt bak- pokaferðalag til Austur- og Suður-Evrópu; ekkert athugavert við það, nema hvað mennirnir tveir sem voru með mér í för eru um og yfir 190 cm á hæð og við fengum þá stórkostlegu hugmynd að vera mikið í tjaldi til að spara. Við fórum sem leið lá í Rúm- fatalagerinn og keyptum þriggja manna tjald á slikk og héldum af stað. Framan af ferðinni reyndi lítið á tjaldið enda prýðisgistiheimili víða í Austur-Evrópu en eftir jökulkalda næturferjuferð frá Ítalíu til Grikklands dróg- um við fram tjaldið og þá áttuðum við okk- ur á því að þriggja manna tjald er einmitt bara það, en við vorum þrír (og rúmlega það) og með farangur að auki sem tók a.m.k. jafnmikið pláss og lítill hestur! Þarna kúldruðumst við á grískri eyju í vikutíma í steikjandi hita í pínulitlu tjaldi og sökum hitans var ekki annað hægt en að sofa mjög fáklæddur. Við erum enn góðir vinir í dag, en við höfum ekki rætt þetta ferðalag í háa herrans tíð. Ég vona bara að þið fyrirgefið mér strákar fyrir að rifja upp gömul sár. Orri Huginn leikari. Fáklæddur í tjaldi með vinunum Hvert er eftirminnilegasta sumarfríið þitt? Sumarið er komið og sumarfríin eru á næsta leiti. Öll höfum við farið í eitthvert ógleymanlegt sumarfrí þar sem við annað hvort hegðuðum okkur sérstaklega illa eða áttum góða stund með vin- um og vandamönnum. Hvort sem það er innanlands eða utan er víst að sumarfríin eru uppspretta ógleymanlegra minninga. Hér segja fimm þekktar manneskjur okkur frá eftirminnilegasta sumarfríinu sínu. LÍFSSTÍLLSPJALLIÐ lifsstill@24stundir.is a Ég fór til Hríseyjar til þess að sjá hvort hún væri eins og hún er í minningunni og hvort mikið hefði breyst.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.