24 stundir


24 stundir - 26.04.2008, Qupperneq 52

24 stundir - 26.04.2008, Qupperneq 52
52 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 24stundir Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • www.heimsferdir.is Frá kr. 24.990 – báðar leiðir Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum. Takmarkaður sætafjöldi. Verð getur breyst án fyrirvara. E N N E M M / S IA / N M 3 3 3 0 8 Verðdæm i – lægstu verð* 9. maí frá kr. 24. 990 21. maí frá kr. 24. 990 28. maí frá kr. 29. 990 4. og 11. júní fr á kr. 39.9 90 18. júní frá kr. 34. 990 25. júní frá kr. 29. 990 2. og 9. jú lí frá kr. 29.99 0 16. júlí frá kr. 34. 990 * Lægstu verð sem í boði eru á viðkoman di brottfö r. Verð er netverð á mann. T akmarkað sætafram boð á þessu v erði. Verð getur bre yst án fyrirvara. N ánar á ww w.heimsfe rdir.is. Alicante Bókaðu strax á www.heimsferdir.is og tryggðu þér lægsta verðið! Heimsferðir bjóða þér beint flug til Alicante í vor, sumar og haust eins og undanfarin 16 ár. Við bjóðum frábær kjör og þjónustu á íslensku alla leið – fyrir þig! Enn er tækifæri til að tryggja sér flugsæti til Alicante með Heimsferðum á frábærum kjörum. Nánar á www.heimsferdir.is. á frábærum kjörum Eftir Einar Jónsson einarj@24stundir.is Helena Guðrún Bjarnadóttir hefur haft brennandi áhuga á mat og matargerð frá því að hún flutti að heiman sextán ára til að sækja skóla. „Ég er að norðan en vildi að- eins fara í MR og ekkert annað þannig að ég varð bara að gera svo vel að fara að sjá fyrir mér sjálf, byrja að elda og annað slíkt,“ segir hún. Þó að Helena styðjist við upp- skriftir í matargerð sinni fylgir hún þeim ekki endilega frá a til ö. „Ég er mikið fyrir að þróa sjálf upp- skriftirnar í stað þess að taka þær beint upp úr blöðum. Yfirleitt styðst ég við grunn úr einhverri uppskrift en svo breyti ég og bæti eftir því sem mér finnst henta þannig að réttirnir eru ekki alltaf eins,“ segir hún. Suðrænn innblástur Innblástur í matargerðina sækir Helena aðallega til Suður-Evrópu, ekki síst Ítalíu eins og sjá má á þeim réttum sem hún deilir með lesendum 24 stunda. Sjálf bjó hún í Hollandi í hálft annað ár en segist ekki hafa orðið fyrir miklum áhrif- um af matargerðarlist innfæddra. „Hollendingar vilja hafa allt djúp- steikt. Þeim finnst fiskur ekki vera fiskur nema hann sé djúpsteiktur og borða rosalega mikið af frönsk- um sem er ekki alveg minn stíll. Maður pikkar samt út það sem manni finnst hæfa sér best úr mat- argerð þeirra,“ segir Helena. Hollustan í fyrirrúmi Nú þegar Helena er komin með fjölskyldu segist hún hugsa meira um hollustu matarins en áður. „Maður hefur líka farið meira inn á þá línu að velja lífrænan mat og gæta þess að vera með nóg af græn- meti og að allt sé í réttum hlut- föllum,“ segir Helena sem reynir að kenna börnunum að borða góð- an og hollan mat. „Börnum finnst alltaf best það sem er einfaldast. Ef maður sker niður gúrkur í eina skál og gulrætur í aðra skál finnst þeim það mjög flott salat en ef öllu er blandað saman er það ekki eins flott,“ segir hún. Upp á síðkastið hefur matargerð á heimilinu reyndar lent að miklu leyti á herðum eiginmanns Helen- ar þar sem hún hefur verið önnum kafin. Á dögunum opnaði hún ásamt fleirum Stubbasmiðjuna sem er verslun sem sérhæfir sig í húsgögnum og munum fyrir barnaherbergi og öðrum vörum fyrir börn og foreldra þeirra. Jafn- framt hyggst Stubbasmiðjan standa fyrir ýmsum viðburðum svo sem þemahelgum og fræðslu fyrir verðandi mæður. „Við feng- um Eymundsson og Te og kaffi í lið með okkur. Kaffihúsið tekur mið af börnum og í Eymundsson hefur verið sett upp sérstakt leik- svæði með leikföngum og litaað- stöðu. Það er mjög notalegt að setjast á kaffihúsið og leyfa börn- unum að leika sér í ró og næði á meðan,“ segir Helena Guðrún Bjarnadóttir að lokum. Hollt og gott Helena Guðrún Bjarnadóttir legg- ur meiri áherslu á hollustu matarins með árunum. Helena Guðrún Bjarnadóttir spinnur út frá uppskriftum Undir ítölskum áhrifum Helena Guðrún Bjarna- dóttir, framkvæmdastjóri Stubbasmiðjunnar, sækir innblástur í matargerð til Suður-Evrópu en er óhrædd við að breyta uppskriftum og bæta eft- ir eigin höfði. ➤ Helena er eigandi og fram-kvæmdastjóri Stubbasmiðj- unnar ásamt Nönnu Kristínu Magnúsdóttur leikkonu. ➤ Jafnframt er hún að ljúkanámi í viðskipafræði við Há- skólann á Akureyri. HELENA GUÐRÚN 24stundir/Eggert Málþing undir yfirskriftinni Matur og menning á suðursvæði Vestfjarðakjálkans verður haldið í Félagsheimilinu á Patreksfirði laugardaginn 24. maí. Þar verður meðal annars fjallað um verkun og meðferð matvæla sem landið og sjórinn gefa (svo sem egg, fugl, fisk og jarðargróða), hlunnindi við Breiðafjörð, mataræði sjósóknara á fyrri tíð og margt fleira. Málþinginu lýkur með veislu þar sem gjafir náttúrunnar verða mat- reiddar og framreiddar á fjöl- breyttan hátt þar sem meðal annars verður litið til fyrri tíma. Aðgangur að þinginu er ókeypis og getur fólk komið og farið að vild. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu félagsins Beint frá býli www.beintfrabyli.is. Matur og menning Þemadagarnir Fiskiveisla standa yfir í vínbúðunum um þessar mundir. Í tilefni af þeim hefur verið gefin út bæklingur um vín með fiski. Í honum er að finna nokkrar einfaldar aðferðir sem hafa reynst vel við að velja vín með fiskréttum. Fiskiveisla stendur yfir í apríl. Fiskiveisla í vínbúðunum Nú þegar hafa fyrstu túnfíflar vorsins stungið upp sólgulum kollinum. Fíflar eru ekki aðeins mikið augnayndi heldur má nýta þá til mat- argerðar. Blöðin eru góð í salöt og súpur, sérstaklega blöð af ung- um plöntum sem ekki hafa blómstrað. Sumir nýta einnig blóm plöntunnar og rætur. Túnfíflar góðir í vorsalatið LÍFSSTÍLLMATUR matur@24stundir.is a Yfirleitt styðst ég við grunn úr einhverri uppskrift en svo breyti ég og bæti eftir því sem mér finnst henta þannig að réttirnir eru ekki alltaf eins. Côte Rôtie-svæðið („ristuð hæð“ ef lauslega þýtt) liggur nyrst í Rhône- dalnum. Michel Chapoutier leggur mikla áherslu á lífeflda (biodynamic) vín- ræktun og að vínin hans séu hvorki síuð né grugghreinsuð. Uppskeran er handtínd og gerjun stendur yfir í 15-18 daga í opnum viðartunnum. Þroskunin fer fram í litlum frönskum eikartunnum þar sem þriðjungur þeirra eru úr nýrri eik í allt að 18 mánuði. Hindber, fjólur, rósmarín og vottur af ólífum ásamt jarðtónum í nefi opna fyrir þurrkuð krydd, svört ber, steinefni og tóbak í munni. Flauelsmjúk þroskuð tannín og þéttur karakter gefa langa endingu. Þetta þungavigtarrauðvín fer sérstaklega vel með nautakjöti, villigæs, villiönd og veigameiri kjötréttum með þungum soðsósum. Best að geyma í 2 ár í viðbót fyrir opnun en fínt að umhella ef það er til neyslu strax. Vínið er tilvalið til geymslu næstu 10- 12 ár. Þrúga: Syrah. Land: Frakkland. Hérað: Rhône. 4.890 kr. Vín vikunnar Elísabet Alba Valdi- marsdóttir vínþjónn M. Chapoutier Côte Rôtie Les Bécasses 2005 M. Chapoutier Côte Rôtie Les Bécasses 2005
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.