24 stundir - 26.04.2008, Síða 53

24 stundir - 26.04.2008, Síða 53
24stundir LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 53 Alba mælir með Giroud Vins Ballerine 2004. Hreinn ilmur af ferskjum, hvítum blómum, gulum eplum og kanil. Suðrænir ávextir, lychee og gular perur eru í fullkomnu jafnvægi við áfengi með sæta fyllingu. Þrúga: Petit Arvine. Land: Sviss. Hérað: Valais. 2.990 kr. Botn: 300 g makkarónukökur 150 g bræddur smjörvi Fylling: 300 g rjómaostur 150 g flórsykur ½ lítri þeyttur rjómi Aðferð: Öllu blandað saman, rjómanum varlega síðast. Fyllingin sett ofan á botninn og fryst. Krem: 200 g brætt suðusúkkulaði 1 dós sýrður rjómi 18% Aðferð: Blandað saman og kremið sett of- an á frosna kökuna. Kakan er skreytt með berjum t.d. jarðarberjum áður en hún er borin fram. Gott er að setja hana í ísskáp fjórum klukkustundum áður en hún er borin fram. EFTIRRÉTTUR Rjómaostagums Hráefni: 400 g kjúklingur - bringur *1/2 dl þurrt sérrí *1/2 dl sojasósa *4 tsk. engiferrót (fersk rifin) *3 hvítlauksgeirar, saxaðir #1/2 dl hoisin-sósa #2 msk. púðursykur #2 msk. hvítvínsedik #1 msk. ólífuolía 1 tsk. sesamolía 4 litlir rauðlaukar 1 salatpoki Grænmeti/ávextir að eigin vali t.d. melóna, jarðarber, tómatar, ristaðar furuhnetur og ristuð sesamfræ. Aðferð: Öllu hráefni sem merkt er með * er blandað saman - 1/2 dl af leginum tekinn frá og geymdur. Kjötið er skorið niður og látið mar- inerast í leginum sem merktur er með stjörnu í að minnsta kosti eina klukkustund og síðan þerrað. Kjötið er steikt í um það bil 10-12 mínútur. 1/2 dl af marineringunni sem var geymd auk hráefnisins sem merkt er með # er hitað að suðu. Síðan er það tekið af hitanum og sesamolíu bætt út í. Ávextir/grænmeti er sett í skál eða fat. Kjötinu er raðað ásamt laukn- um ofan á. Sesamfræjum er stráð yfir ásamt sósu. Gott er að bera smá sósu fram sér. Hægt að bera fram með góðu brauði en mér finnst þetta nú bara gott eitt og sér! AÐALRÉTTUR Kjúklingasalat með sætri thai-sósu Elísabet Alba Valdimars- dóttir vínþjónn mælir með Léon Beyer Gewürztraminer 2005. Kryddað í nefi með áberandi sítrus, lime, rósa- blöðum og vott af mand- arínum í bakgrunninum. Milliþungt vín með gulum plómum, suðrænum ávöxt- um, greipaldin og krydd- legnum endi. Þrúga: Gew- ürztraminer. Land: Frakkland. Hérað: Alsace. 1.690 kr. Hráefni: hráskinka basilíka (fersk) mozzarellaostur Aðferð: Basilíkublað og mozzarellaostur er sett á hráskinkuna. Skinkunni rúll- lað upp og hún þrædd upp á pinna. Grillað í ofni eða á útigrilli. FORRÉTTUR Rúllur með hráskinku 24stundir/Eggert Elísabet Alba Valdimarsdóttir vínþjónn mælir með Vicaŕs Choice Riesling 2005. Ferskt, blómlegt og steinefnaríkt í nefi með áberandi sykurgljáð epli. Létt fylling með gulum eplum, lime og sítrónutónum. Vottur af hunangi og sætleika með ristaða tóna í lokin. Þrúga: Riesling. Land: Nýja-Sjáland. Hérað: Marlborough. 1.490 kr. VORTÓNLEIKAR MÁNAKÓRSINS LAUGARNESKIRKJU 4. maí 2008 kl. 16:00 Ásamt einsöngvurunum: Unni Sigmarsdóttur Sigurði Þengilssyni Þóri Georgssyni Stjórnandi: Violeta Smid Undirleikari: Krystyna Cortes Aðgangsmiðar seldir við innganginn. Verð kr. 1500,-

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.