24 stundir - 26.04.2008, Side 54
54 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 24stundir
SÝNING Í KVÖLD
Opið út í samstarfi
við Hafnarfjarðarleikhúsið
ATH. AÐEINS SÝNT Í MAÍ
TRYGGIÐ YKKUR MIÐA
26.04.08 - Laugardagur 20:00
02.05.08 - Föstudagur 20:00
03.05.08 - Laugardagur 20:00
08.05.08 - Fimmtudagur 20:00 *
11.05.08 - Sunnudagur 20:00
*Örfá sæti laus
Jón Viðar Jónsson
DV
“ Tímamóta verk í
íslensku leikhúsi ”
María Kristjáns
Morgunblaðið
Frábær stund fyrir
mæður og dætur.
www.midi.is Sími : 555 2222 www.mammamamma.net
Eftir Lízellu
lizella@hotmail.com
Maríus hefur starfað áður með
höfundi söngleiksins, en hann lék
aðalhlutverkið í verkinu Space
Dream eftir hann en Space Dream
er einn vinsælasti söngleikur sem
settur hefur verið upp í Sviss.
24 stundir hittu Maríus á hinu
glæsilega hóteli Adlon í hjarta Berl-
ínar.
Það sópar að honum þegar hann
kemur inn í anddyrið þar sem við
höfum mælt okkur mót. Hann ber
sig vel; gengur beinn í baki og tígu-
lega og hægt er að sjá fólk stara á
hann. Hann er í góðu formi og líð-
ur vel í Berlín þar sem hann býr nú.
Hann flutti til Vínarborgar tvítug-
ur að aldri og hefur búið í Aust-
urríki, Þýskalandi og Sviss í 14 ár. Í
haust flyst hann til Zürich til að
leika í söngleiknum sem verið er að
leggja lokahöndina á. Hlutverkið í
Alapilio er að vissu leyti skrifað
með Maríus í huga sem aðalleikara,
nokkuð sem hann segir vera
spennandi áskorun.
„Það er alltaf skemmtilegt að fá
að taka þátt í frumflutningi á nýj-
um verkum en ég hef verið hepp-
inn hvað þetta varðar, bæði með
þetta hlutverk, og einnig með nýtt
lag sem var samið sérstaklega fyrir
mig og meðleikkonu mína af
Maury Yeston, höfundi Titanic –
Das Musikal.“ Maríus hefur einnig
frumflutt leikrit á Íslandi, þegar
hann lék Hans í Skilaboðaskjóð-
unni í Þjóðleikhúsinu fyrir fimm-
tán árum en þá steig hann sín
fyrstu skref á sviði og heldur því
upp á fimmtán ára sviðsafmæli
núna. „Ég var að taka þetta saman
um daginn og held að ég sé kom-
inn með yfir 2000 kvöld á sviði. Ég
reyndi að reikna hvað þetta væru
margar klukkustundir en gafst
upp,“ segir hann og hlær.
Nú kemur þjónninn, uppá-
klæddur og glæsilegur og Maríus
pantar fyrir okkur á lýtalausri
þýsku. Hann segir að þýskukunn-
áttuna megi m.a. rekja til þess að
hann er að hluta til alinn upp í
Vínarborg þar sem móðir hans,
Margrét J. Pálmadóttir, söngkona
og kórstjóri, var í námi.
„Þegar ég byrjaði að læra í Tón-
listarháskólanum í Vín hafði ég
gleymt allri þýskunni en hún var
fljót að koma aftur.“
Eftir að hafa lokið náminu með
hæstu einkunn fékk Maríus strax
hlutverk í Þjóðleikhúsinu í Inns-
bruck í söngleiknum Sound of
Music.
Áður en Maríus fer til æfinga í
Sviss kemur hann við á Íslandi og
mun kenna söng og söngtúlkun í
Domus Vox. Námskeiðin eru undir
nafninu Vor í Domus Vox.
Yfir 2.000
kvöld á sviði
➤ 2008 Friedrichstadtpalast:Nacht der Musicals
➤ 2005-2006 Sviss: Í hlutverkiSahon í Space Dream: The
Saga
➤ 2004 Íslenska óperan: Ant-hony í Sweeny Todd
➤ 2004 Háskólabíó: Einsöngvarivið opnunartónleika Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands
➤ 2002-2003 Neue Flora, Ham-borg: Jim Farrell í Titanic: Das
Musikal (söng einnig inn á
CD)
➤ 2000-2001 Düsseldorf og Vín-arborg: Ernst Ludwig í Cab-
aret (söng einnig inn á CD)
➤ 1999 West End, London: Aar-on í Moses
➤ 1998 Potsdamer Platz í Berl-ín: Söng við opnun torgsins
➤ 1998 Klagenfurt og Vín: LaCage Aux Folles og Kiss me
Kate (dansari)
➤ 1997 Landestheater, Inns-bruck: Rolf í Sound of Music
➤ 1993-1994 Þjóðleikhúsið:Hans í Skilaboðaskjóðunni
(söng einnig inn á CD)
AFREKASKRÁ MARÍUSAR
Mynd/Michael Ashton
Maríus Sverrisson, leikari
og söngvari, hefur átt
mikilli velgengni að
fagna. Hann frumsýnir í
haust nýjan söngleik í Zu-
rich í Sviss. Söngleikurinn
heitir Alapilio sem þýðir
fiðrildavængir. Lízella
hitti Maríus í Sviss á dög-
unum.
Space Dream Maríus í hlutverki sínu
sem Sahon.
Titanic Maríus í hlutverki unga Írans í
söngleiknum Titanic ásamt mótleiklonu
og höfundi söngleiksins Maury Yeston.
Að lokinni sýningu Maríus er tíður gestur í leikhúsum Hamborgar og kíkir oftar en
ekki baksviðs.