24 stundir - 26.04.2008, Side 62
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
í dag
Laugardagur 26. apríl 2008
Tónleikaferð Mugisons
með QOTSA hefst í Kan-
ada eftir helgi. Fær 40 þús-
und krónur fyrir giggið.
» Meira í Morgunblaðinu
Mugison í Kanada
Bókastaflar á strætum
og torgum, rauðar rósir og
fólk svo langt sem augað
eygir á degi bókarinnar.
» Meira í Morgunblaðinu
Skáld í Barcelona
Nýr skattur á laun er-
lendra listamanna setur
strik í reikninginn hjá ís-
lenskum tónleikahöldurum.
»Meira í Morgunblaðinu
Dylan dýr allur
reykjavíkreykjavík
62 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Ekkert annað sérsamband hefur
unnið jafn ötullega að útbreiðslu-
starfi sínu en engu að síður eru svæði
þar sem handbolti er lítið leikinn.
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Nokkuð hvassir vindar hafa blásið
um stefni Handknattleikssam-
bands Íslands þennan veturinn.
Þrátt fyrir ýmsa tilburði fækkar
áhorfendum á íslenskan handbolta
jafnt og þétt, íþróttafélögum sem
leggja áherslu á handbolta fækkar
einnig og ekki má gleyma vand-
ræðunum í vetur við ráðningu nýs
landsliðsþjálfara en þar voru marg-
ir kallaðir áður en niðurstaða náð-
ist. Mestu vindarnir vegna þessa
blása jafnan um Einar Þorvarðar-
son sem stendur enn nokkuð keik-
ur í brúnni eftir átta ár á bak við
borð framkvæmdastjóra.
Handboltinn á niðurleið?
Hver sem sótt hefur deildarleiki í
handboltanum, hvort sem um er að
ræða deildir karla eða kvenna, veit
að aðsókn að langflestum leikjanna
er dræm með afbrigðum og í stöku
leik þarf varla tíu putta til að telja
fjölda áhorfenda. Margir vilja
meina að hluti vandamálsins sé að
engin úrslitakeppni sé lengur við
lýði eins og áður var en sú skapi
spennu og stemningu í það
minnsta í seinni hluta keppninnar
og Einar er þessu að hluta sammála.
„Það er í rauninni ekki málið að við
hjá HSÍ séum svo ánægðir með nú-
verandi mótakerfi heldur vorum
við þvert á móti við neyddir til þess
á sínum tíma að taka það upp.
Besta mótakerfið sem notað hefur
verið síðustu tuttugu árin er vafalít-
ið tólf liða mót með átta liða úr-
slitakeppni. Slíkt gekk afar vel lengi
og er til dæmis svipað kerfi og not-
að er í körfuboltanum í dag. Það
sem svo gerðist kringum aldamótin
var að félögum fækkaði nokkuð ört
og svo var komið að aðeins voru
tvö til þrjú lið tiltæk í aðra deild
sem þá hét þannig að við færðum
þau upp og höfum síðan reglulega
prófað hinar og þessar breytingar á
kerfinu. HSÍ tók síðan þá ákvörðun
fyrir tveimur árum að hafa tvær
deildir og hugmyndin þá að það
væri hægt að falla niður um deild.
Það er líka á tæru að það voru fleiri
áhorfendur á leikjum handboltans í
haust en mættu að meðaltali árið
þar áður. Hins vegar ætlum við að
ræða þessi mál á komandi ársþingi
og ekki útilokað að útslitakeppni
verði aftur hluti af handboltavertíð-
inni strax á næstu leiktíð.
Allt upptalið
En Einar lendir í vandræðum
þegar hann er beðinn um tölfræði
máli sínu til stuðnings vegna þess
að tölfræði yfir fjölda áhorfenda í
handboltanum hefur aldrei legið
fyrir. „Það er alfarið félögunum að
kenna. Þau eiga að afla og afhenda
slíkar upplýsingar og er ráð fyrir
því gert á leikskýrslum. En við höf-
um engin ráð til að fá úr þessu bætt
með öðru móti en sífelldri pressu
og áminningum en vissulega er
þetta bagalegt ástand.“
Enginn skuggi yfir HSÍ
Aðspurður um þann vandræða-
gang sem einkenndi ráðningu nýs
landsliðsþjálfara í vetur þegar þrír
frambærilegir kandidatar gáfu
starfið frá sér segir Einar að ekkert
óeðlilegt hafi verið við þau kaupin
annað en að fjölmiðlar hafi búið
þar til storm í vatnsglasi. „Ég vil
ekki meina að það hafi verið vand-
ræðalegt á neinn hátt. Við leituð-
um bara hófanna hjá þeim er við
töldum hvað besta og fengum af-
bragðsþjálfara á endanum. Ég gef
svo lítið fyrir ummæli eins þeirra
að umgjörð landsliðsins hafi ekki
verið nægilega fagleg. Ég veit ekki
betur en Alfreð Gíslason sem lifir
og hrærist í efstu hæðum hand-
boltaheimsins hafi aldrei sett neitt
út á skort á fagmennsku í einu né
neinu.“
Illgresi í grasrótinni
Stærsta vandamál handboltans
að mati Einars er stöðugur skortur
á leiðbeinendur hjá yngstu og yngri
flokkum barna og unglinga og það
er helsta ástæða þess að handbolti
mætir afgangi á mörgum stöðum á
landinu og hefur gert það um
margra ára skeið. „Það er stóri
akkilesarhællinn okkar hversu illa
gengur að efla starfið í grasrótinni.
Það sárvantar leiðbeinendur og
þjálfara auk þess sem fleiri og fleiri
íþrótthús eru reist þar sem ekki er
gert ráð fyrir löglegum handbolta-
velli. Ekkert annað sérsamband
hefur verið eins ötult að kynna
starfið úti á landi en engu að síður
eru svæði þar sem handbolti er vart
leikinn. Þetta er stóra viðfangsefnið
og skiptir gríðarlegu máli.“
Mörg járn í eldi
Framundan er annasamur tími.
Íslenska karlalandsliðið á mjög á
brattann að sækja í næsta mánuði
þegar keppt verður um lokasætin á
Ólympíuleikunum gegn Svíþjóð,
Argentínu og Póllandi. Strax í kjöl-
farið mætir Ísland liði Makedóníu í
umspilsleikjum um keppnisrétt á
heimsmeistaramótinu í Króatíu á
næsta ári. „Að auki eru kvenna-
landsliðið og yngri landslið okkar á
ferð og flugi þannig að sumarfríið
verður stutt í báða enda.“
Úrslitakeppni
ekki útilokuð
Úrslitakeppni mögulega tekin upp á ný í handboltanum
Stóra vandamálið tengist barna- og unglingastarfinu
Upp í mót Mjög verður
á brattann að sækja fyrir
karlalandsliðið í hand-
bolta í umspilsleikjum
fyrir Ólympíuleikana.
24stundir/Frikki
a
Það er alfarið félög-
unum að kenna. Þau
eiga að afla og afhenda
slíkar upplýsingar og er
ráð fyrir því gert á leik-
skýrslum. En við höfum
engin ráð til að fá úr
þessu bætt með öðru
móti en sífelldri pressu.
24stundir/Frikki