24 stundir - 26.04.2008, Síða 66

24 stundir - 26.04.2008, Síða 66
66 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 24stundir Rýmingarsala! Verslunin flytur í nýtt og enn glæsilegra húsnæði 25-40% afsláttur af öllum vörum Allt á að seljast Arctic Spas Faxafeni 9 (ATH: aðkoma í kjallara bakhús) Sími 554 7755 www.arcticspas.is & www.heitirpottar.is Eftir Viggó I. Jónasson viggo@24stundir.is Hinn 22 ára gamla Megan Fox er kynþokkafyllsta kona heims að mati lesenda breska tímaritsins tímaritsins FHM. Fox vakti heimsathygli í kvikmyndinni Transformers og voru margir ungir drengir dolfallnir yfir þeim kynþokka sem stúlkan sýndi í þeirri mynd. „Megan Fox er mjög verðugur handhafi titilsins þetta árið,“ sagði Anthony Noguera, ritstjóri FHM, þegar úrslit kosningarinnar voru kunngjörð. „Hún birtist óvænt og fangaði hjörtu og hug- aróra breskra karlmanna og hreppti fyrsta sætið.“ Athygli vakti að Jennifer Lopez sem hampaði þessum sama titli árin 2001 og 2002, komst ekki inn á topp 100 og sömu sögu er að segja af ofurmódelinu Kate Moss. Bretar heillaðir af leikkonunni Megan Fox Mesta kynbomban Samkvæmt vefkönnun breska tímaritsins FHM er Megan Fox kynþokka- fyllsta kona heims. Feg- urðardísir á borð við Kate Moss og Jennifer Lopez komust ekki inn á topp 100. Verðugur sig- urvegari Megan Fox þykir bera af hvað varðar kyn- þokka og fegurð. Í öðru sæti Jessica Alba var kynþokka- fyllst í fyrra en hafnaði nú í 2. sæti. Sú þriðja Glamúrmódelið Keeley Hazell varð að sætta sig við 3. sætið. Í gær kom út ný plata frá hinum geðþekka tónlistarmanni Sverri Bergmann. Platan hefur fengið nafnið Bergmann og þykir hún hafa eitthvað fyrir alla, hvort sem menn aðhyllast væmna tóna eða aðeins harðari tónlist. „Það eru þarna ballöður í bland við hress lög og svo alveg upp í pínu rokk í restina,“ sagði hinn önnum kafni Sverrir þegar 24 stundir náðu tali af honum á útgáfudaginn. Öll lögin á plötunni eru frum- samin, að einu undanskildu, og hefur Sverrir farið víða um heim til að verða sér úti um innblástur og samstarfsmenn fyrir tónsmíðarnar. „Þetta er plata sem ég er búinn að vera að vinna að í fjögur ár. Ég er búinn að ferðast hingað og þangað um heiminn að semja lög fyrir plötuna.“ Aðspurður um hvert framhaldið sé segir Sverrir að tónleikahald sé aðalmálið á dagskránni. „Það er bara heilmikið spilerí í maí og eitt- hvað fram eftir sumri til að gera plötunni sem best skil.“ Það þótti fréttnæmt á sínum tíma þegar greint var frá því að Eiður Smári Guðjohnsen væri að fjármagna gerð plötunnar hans Sverris. Sverrir segir að Eiður sé þegar kominn með eintak af plöt- unni en hann veit ekkert hvernig velgjörðarmanni hans lést á grip- inn. „Ég hef ekki heyrt í honum ennþá, það á eftir að koma í ljós. Hann er náttúrlega að hugsa um Meistaradeildina. viggo@24stundir.is Bergmann bæði harður og hugljúfur Spilaður á bæði X-inu og FM Sverrir nær að höfða til misjafnra hópa á nýju plötunni sinni. 24stundir/Kristinn Kvikmyndir traustis@24stundir.is Street Kings fjallar um löggæslu- manninn Tom Ludlow sem út- deilir réttlætinu eftir eigin siða- reglum, en ekki lögum og reglum, því hans siðareglur eru skilvirkari og réttlátari. Þegar fyrrverandi félagi hans, sem hefur átt vingott við innra eftirlit lög- reglunnar, er drepinn fer í gang flétta sem fær Tom til að efast um sína nánustu samstarfsmenn. Ágætis hasarmynd Keanu Reeves fer með hlutverk Tom Ludlows og ferst það prýð- isvel úr hendi. Yfirleitt fer Reeves létt með það að fara í taugarnar á gagnrýnendum, en látlaus og til- þrifalítill leikur hans fleytir hon- um langt í þessari löggu- og bófa- mynd, þar sem löggurnar gegna báðum hlutverkum. Handritið er nokkuð skothelt, en kemur þó lítið á óvart. Ekki þarf annað en að horfa á plakatið til að sjá hver vondi karlinn er og uppbygging spennu því frekar fyrirsjáanleg. Hasaratriðin eru þó nokkuð góð og raunsæ, sem og útlit myndarinnar í heild. Allar löggur eru spilltar Samkvæmt heimildum Fox News hefur grínistinn Jimmy Fallon verið fenginn til að taka við spjallþætti Conans O’Brien en Conan mun sem kunnugt er taka við spjallþætti Jay Leno í maí á næsta ári. Fallon sló í gegn í hin- um víðfrægu Saturday Night Live-þáttum en yfirgaf þá þátta- röð árið 2004. Samkvæmt heim- ildum Fox News er Fallon spennt- ur en hræddur vegna nýja starfsins. Fallon tekur við af Conan Loksins eftir marga vikna sögusagnir hafa framleiðendur kvikmyndanna um Hobbitann tekið af skarið og staðfest að leik- stjórinn Guill- ermo del Toro muni leikstýra bíómyndunum tveimur sem verða gerðar eftir bók J.R.R. Tol- kien, Hobbitinn. Guillermo mun flytja til Nýja Sjálands og vera þar næstu fjögur árin til að vinna að gerð myndanna tveggja en mynd- irnar segja frá því sem gerðist áð- ur en atburðir Hringadróttins- sögu áttu sér stað en báðar myndirnar verða teknar upp samtímis. Toro leikstýrir Hobbitanum 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Hún birtist að óvörum og fangaði hjörtu og hugaróra breskra karlmanna og hreppti fyrsta sætið. Leikstjóri: David Ayer Leikarar: Keanu Reeves, Forest Whitaker Street Kings

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.