24 stundir - 26.04.2008, Side 72
24stundir
? Þegar bíómyndin Rocky var frumsýnd íBandaríkjunum var það víst mikið hóp-efli fyrir ítalsk-ættaða Ameríkana. Þeirurðu svo montnir af að horfa á þessasjálfstrausts-uppbyggjandi hetjumynd aðþeir beinlínis svifu út úr bíósölunum meðögrandi orð á vörum og tilbúnir í gildis-hlaðin slagsmál.
Nú veit ég ekki hvernig félagsskap
vörubílstjóra er háttað en þeir hittast lík-
lega öðru hvoru og ræða málin eins og
aðrar starfsstéttir. Mín kenning er sú að
fyrir nokkru hafi einhver þeirra mætt á
fund með bandarísku bíómyndina
„Convoy“ á DVD og hent henni í tækið.
Myndin, sem er frá 1978 og naut tals-
verðra vinsælda á sínum tíma, fjallar í
stuttu máli um hóp vörubílstjóra sem aka
þétt saman í stórri bílalest til að gefa lögg-
unni langt nef. Myndin er stútfull af alls
konar vörubílstjóra-gúmmilaði. Vörubíl-
stjórarnir tala saman með sérstöku dul-
máli í gegnum leynilega talstöð. Þá tekst
lögreglunni að fangelsa einn félagann en
hinir bjarga honum úr steininum með
aðstoð vörubílanna. Myndin endar á því
að vörubílstjórinn sem kom uppþotunum
af stað verður alþýðuhetja eftir að vörubíll
hans er skotinn í tætlur af illgjarnri lög-
reglusveit í svakalegu hasaratriði og
bandaríska alríkið veitir honum píslar-
vættisstimpil með því að splæsa í opin-
bera útför í Washington og viðurkenna
auk þess óréttlæti lögregluyfirvalda og
lúta öllum kröfum vörubílstjóranna. En
passið ykkur bara íslensku vörubílstjórar.
Löggur horfa líka á bíómyndir og þær
geta valið úr miklu fleiri titlum. Gas!
Bíómyndir og hópefli
Bergur Ebbi
Benediksson
skrifar um lögguhasar.
YFIR STRIKIÐ
Lifum
við í
bíómynd?
24 LÍFIÐ
Transformer-leikkonan Megan Fox
er kynþokkafyllsta kona heims að
mati lesenda karla-
tímaritsins FHM.
Megan Fox kyn-
þokkafyllst í heimi
»66
Haukur Holm, sem þekktur er fyr-
ir skeleggan fréttaflutning, skartar
um þessar mundir for-
láta hliðarbörtum.
Fréttamaður skartar
alvöru kótilettum
»70
Hönnunarneminn Róbert Gísla-
son á kaffivél á einni stærstu sjálf-
sala- og kaffivélasýn-
ingu Evrópu.
Með kaffivél á
ítalskri risasýningu
»70
● Nýtt trúfélag
„Markmið sam-
takanna er annars
vegar að skapa
vettvang fyrir
ástundun búdd-
isma og fræða fólk
um mann-
úðarheimspeki
búddismans, og hins vegar að
vinna að ýmsum mannúðarverk-
efnum á sviðum þar sem við teljum
þess þörf,“ segir Eygló Jónsdóttir,
formaður Búddasamtakanna SGI á
Íslandi. Samtökin hafa nýverið
hlotið skráningu sem löggilt trú-
félag hér á landi. „Við erum yf-
irleitt með vikulega fundi, en í fé-
lagið eru skráðir um 180 manns.“
● Óvitað „Ég er í
raun engu nær
um hvað ég tek
mér fyrir hendur
eða hvort ég tek
mér eitthvað nýtt
fyrir hendur,“
segir Guðríður
Guðjónsdóttir,
þjálfari og handboltakempa, en
hún hættir þjálfun kvennaliðs og
yngri liða Fylkis í handbolta á
næstunni. Hún hefur reyndar
samt sem áður fullt af járnum í
eldinum áfram og hyggst ekki
endilega eyða meiri tíma innan
veggja heimilisins. „Ég sá nú
reyndar fyrir mér að hægja aðeins
á keyrslunni allri en ætli ég geti
staðið við það.“
● Eyja-Disney
„Sigmund er okk-
ar Walt Disney,“
segir Kristín Jó-
hannsdóttir,
menningar- og
markaðsfulltrúi
Vestmannaeyja-
bæjar en Vest-
mannaeyjabær fékk nýverið styrk
úr Menningarsjóði Suðurlands til
að setja myndir listamannsins og
skopmyndateiknarans Sigmunds á
netið. „Það eru náttúrulega sögu-
leg verðmæti í þessum myndum og
það verður gaman þegar fólk getur
flett í gegnum þetta og skoðað
þetta.“
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við
T
UG
OPIÐ ALLA DAGA KL. 11 - 19