24 stundir - 20.05.2008, Page 1

24 stundir - 20.05.2008, Page 1
24stundirþriðjudagur20. maí 200893. tölublað 4. árgangur UMM er glænýr heilsubiti úr spennandi hráefni Mikið úrval notaðra bíla á góðum kjörum! Sigurður Helgi Guðjónsson segir að kynlífið hafi komið Kópavogi á kortið en þó þurfi grannakynlíf að vera hóflegt til að vera löglegt. Hömlulaust kynlíf getur orðið til vandræða. Löglegt kynlíf Þrír ánægðir skiptinemar eru nú á heimleið eftir ánægjulegan tíma á Íslandi. Þeir hafa lært mál- ið og eru ákveðnir í að koma hing- að aftur. Tveir eru frá Bandaríkj- unum og einn frá Belgíu. Ánægð á Íslandi FERÐIR»32 87% munur á blautþurrkum NEYTENDAVAKTIN »4 Rússneskur dómstóll hefur dæmt karlmann í tíu daga fangelsi fyrir að hafa nýlega vakið athygli á bágum að- stæðum fyrir hjólafólk í St. Pétursborg með því að hjóla nakinn um götur borgarinnar. Roman Lutoshkin hjólaði nakinn ásamt 40 fullklæddum hjólamönnum um borgina, en ferðinni lauk á torginu fyrir framan Vetrarhöllina þar sem Lutoshkin lét mynda sig með kröfuspjöld. Ekki er ljóst hvort borgaryfirvöld hyggist bregðast við kröfunum. aí Hjólreiðamað- ur í steininn GENGI GJALDMIÐLA SALA % USD 74,17 -0,66  GBP 144,48 -1,11  DKK 15,43 -1,14  JPY 0,70 -1,52  EUR 115,14 -1,14  GENGISVÍSITALA 148,43 -1,01  ÚRVALSVÍSITALA 4.941,31 1,62  »14 6 8 6 5 6 VEÐRIÐ Í DAG »2 Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is Valsmenn hf. fengu í síðustu viku greiddar 100 milljónir króna í tafabætur frá Reykjavík- urborg þar sem borgin hefur enn ekki gefið út lóðaleigusamninga fyrir landið. Félagið á byggingarlandið við Hlíðarenda sem ekki fór undir íþróttamannvirki Vals. Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður seg- ir greiðslurnar vera í samræmi við samning sem gerður var við Valsmenn hf. í apríl 2006. „Það er ákvæði í samningnum um það að ef lóðaleigusamningar eru ekki útgefnir 15. júlí 2007 muni Valsmenn hf. fá greiddar sem nemur tíu milljónum króna á mánuði sem líður frá þeim tíma.“ Á sér margra ára aðdraganda Brynjar Harðarsson, stjórnarformaður Valsmanna hf., segir félagið ekki geta hafið uppbyggingu á byggingarlandi sínu fyrr en búið sé að gefa lóðaleigusamningana út. „Fyrstu samningarnir milli Vals og Reykjavík- urborgar voru gerðir árið 2001 þegar menn fóru í það að reyna að breyta notkun á Hlíð- arenda. Allt skipulag á svæðinu gekk í gegn árið 2004 og þá keyptu Valsmenn hf. landið á tæpar 800 milljónir króna. Í kjölfarið fórum við á fulla ferð við að hanna og nýta landið. Síðan kom borgin til okkar og bað okkur um að fresta framkvæmdum vegna skipulags- breytinga sem voru aðallega út af Háskól- anum í Reykjavík, veglagningu og öðru slíku. Það var því gerður nýr samningur í október 2006 milli Valsmanna og borgarinnar þar sem framkvæmdum var frestað til 1. júlí 2007. Svo kláruðust málin ekki fyrir þann tíma og hafa ekki klárast enn.“ Greiðslur duga ekki fyrir vaxtagreiðslum Brynjar segir tafabæturnar þó ekki einu sinni duga fyrir vaxtagreiðslum vegna skulda félagsins. „Þessar greiðslur duga ekki fyrir vöxtunum á skuldum okkar sem nema orðið 800 milljónum króna, á íslenskum vöxtum. Það er því ekki eins og það sé einhver gróði í þessum greiðslum fyrir okkur.“ Hanna Birna Kristjánsdóttir, formaður skipulagsráðs, segir mikla vinnu vera í gangi á vettvangi borgarinnar í tengslum við þetta svæði. „Við vonumst til þess að þeirri vinnu ljúki á næstu vikum og þá vonumst við til þess að menn geti séð skýrara heildarskipulag á svæðinu.“ 100 milljónir í bætur ➤ Tafabæturnar eru greiddar samkvæmtsamkomulagi milli borgarinnar og Vals- manna hf. frá 4. apríl 2006. ➤ Valsmenn hf. munu einnig fá tíu milljónirkróna greiddar í tafabætur fyrir hvern mánuð sem málið tefst til viðbótar. TAFABÆTUR VALSMANNA  Reykjavíkurborg greiddi 100 milljónir króna til Valsmanna hf. í tafabætur  Upphæðin dugar ekki fyrir vaxtagreiðslum  Vonast til að skipulagsmál klárist á næstu vikum „Þegar við keyptum hérna höfðum við ekki hugmynd um að þessi vegur kæmi svona nálægt húsinu. Þó að þetta snerti mig ekki eins mikið og ýmsa aðra í húsinu, þar sem ég er á efstu hæð, þá finnst mér það ekki til fyr- irmyndar að íbúar hafi ekki verið upplýstir um þetta, hverjum sem um er að kenna,“ segir María Magnúsdóttir, íbúi í fjölbýlishúsi við Lund 1 í Fossvogsdal. Á myndinni sést hvernig nýtt vegastæði Nýbýlavegs ligg- ur. Vegurinn er mun nær íbúðabyggðinni í Lundi en áður. Nýbýlavegur að lúxusblokkinni »2 Íbúar ekki upplýstir um færslu vegarins 24stundir/RAX Karlmaður sem starfar sem bað- vörður í Kópavogsskóla hefur verið áminntur fyrir að hafa hótað ung- um drengjum að mynda þá í bún- ingsklefa íþróttahúss skólans í október. Baðvörður hótaði að mynda börnin »8 Tillaga um sölu á verkefnum Reykjavík Energy Invest (REI) verður að hljóta samþykki á eig- endafundi Orkuveitu Reykjavíkur (OR) til að hún geti orðið að veru- leika. Þetta er álit borg- arlögmanns. Mega ekki selja verkefni REI »4 HÚSBYGGJANDINN»24

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.