24 stundir - 20.05.2008, Síða 2

24 stundir - 20.05.2008, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 24stundir VÍÐA UM HEIM Algarve 19 Amsterdam 12 Alicante 19 Barcelona 19 Berlín 16 Las Palmas 23 Dublin 13 Frankfurt 16 Glasgow 12 Brussel 14 Hamborg 14 Helsinki 9 Kaupmannahöfn 11 London 13 Madrid 19 Mílanó 20 Montreal 8 Lúxemborg 15 New York 12 Nuuk 4 Orlando 24 Osló 9 Genf 18 París 16 Mallorca 18 Stokkhólmur 9 Þórshöfn 7 Austan 8-13 m/s syðst, en annars hægari vindur. Dálítil rigning eða súld. Styttir upp, en víða síðdegisskúrir. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast á V-landi. VEÐRIÐ Í DAG 6 7 6 6 6 Rigning eða súld Austan- og suðaustan 8-13 m/s og víða dálítil væta, en bjart með köflum NA-lands. Hiti 8 til 13 stig. VEÐRIÐ Á MORGUN 6 8 6 5 6 Dálítil væta Ólafur Þ. Stephensen hefur sleppt ritstjórnartaumunum af 24 stund- um og Gunnhildur Arna Gunnars- dóttir tekið við þeim. „Ég er stoltastur af að hafa komið lestri blaðsins úr 36% í yfir 50%. Það er mjög ánægjulegt til þess að vita að meira en helmingur þjóð- arinnar telur blaðið nógu gott til að gefa því gaum á hverjum degi,“ segir Ólafur sem er næsti ritstjóri Morg- unblaðsins og ritstjóri Árvakurs. Gunnhildur segir markmiðið að halda áfram að saxa á æ minnkandi forskot Fréttablaðsins með öflugri blaðamennsku. Hún hefur ráðið þriðja fréttastjórann og hóf hann störf í gær. „Magnús Halldórsson kemur af Fréttablaðinu og starfar við hlið þeirra Bjargar Evu Erlends- dóttur og Þrastar Emilssonar.“ Gunnhildur segir sóknarfærin meðal annars felast í öflugra helg- arblaði. „Við ætlum að efla laugar- dagsblaðið þannig að það verði blaðið sem kemur í stað bókar á náttborði lesenda. Heiðdís Lilja Magnúsdóttir, fyrrum ritstjóri Nýs Lífs, hefur verið ráðin til að efla það með okkur,“ segir hún og boðar breytt og enn betra blað frá 3. júní. Ólafur Þ. Stephensen hverfur til annarra starfa Gunnhildur Arna ritstýrir Forysta 24 stunda Gunnhildur Arna með þeim Þresti, Elínu, Björgu Evu og Magnúsi. Hæstiréttur stytti í gær gæslu- varðhald yfir karlmanni sem grun- aður er um kynferðisbrot gagnvart fjölda barna. Maðurinn var dæmd- ur í gæsluvarðhald til 13. ágúst í Héraðsdómi Reykjavíkur 14. mars síðastliðinn en Hæstiréttur stytti varðhaldið um rúman mánuð, til 7. júlí næstkomandi. Maðurinn hefur verið kærður fyrir brot gegn níu börnum. Fjögur þeirra eru hans eigin börn. Björgvin Björgvinsson yfirmað- ur kynferðisbrotadeildar lögreglu höfuðborgarsvæðisins segir að allar líkur séu á að rannsókn málanna verði lokið og komið til saksóknara fyrir 7. júlí næstkomandi. Talið er að brotin hafi verið framin á allt að tuttugu ára tímabili og sum þeirra verið afar gróf. fr Varðhald stytt yfir grunuðum barnaníðingi Gæsluvarðhald stytt um mánuð Þeim sem leita til Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna vegna neyslulána hefur fjölgað talsvert frá því í fyrra. „Maður verður var við að ungt fólk með börn hefur skuld- sett sig mikið á stuttum tíma,“ seg- ir Ásta S. Helgadóttir, forstöðu- maður ráðgjafarstofunnar. Hún bendir á að fólk hafi keypt fast- eignir á 100 prósenta lánum og láti afborgarnir af þeim ganga fyrir. „Auðvitað reynir fólk að greiða af þeim. Það er jafnvel með lánsveð hjá foreldrum sínum. Þetta leiðir til þess að fólkið þarf að taka yfirdrátt- arlán í banka fyrir rekstri heimilisins. Þetta eru mjög óhagstæð lán til lengri tíma því að þau eru með háum vöxtum. Þau eru hins þægileg að því leyti að ekki þarf veð fyrir þeim og það þarf heldur ekki að þinglýsa þeim. En fólk veltir vandanum á undan sér. Þegar það fær ekki lengur meiri yfirdrátt er það komið á endastöð. Þessi þróun hefur verið áber- andi að undanförnu,“ greinir Ásta frá. ibs Lifað á yfirdráttarlánum Undanfarna daga hafa umdeildar auglýsingar Svissneska þjóð- arflokksins, í íslenskri þýðingu, verið settar upp víðs vegar um landið. Auglýsingarnar voru mjög umdeildar í Sviss þegar þær voru birtar þar á sínum tíma, en þær þykja boða andúð í garð út- lendinga. Fyrst var einmitt talið að hópur manna sem hefðu andúð á út- lendingum bæri ábyrgð á upp- setningu auglýsinganna. Nú er hins vegar komið í ljós að um er að ræða innsetningu svissneska listamannsins Christoph Bucher og er liður í listahátíð í Reykjavík. Um helgina voru meðal annars veggspjöld með auglýsingunni hengd upp víðs vegar um mið- borg Reykjavíkur og kostaði það mikla vinnu fyrir starfsmenn Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar að hreinsa veggspjöldin úr miðbænum. „Þetta er það sama og með veggjakrotið að það er engin heimild fyrir því að líma vegg- spjöld á veggi og mannvirki,“ seg- ir sviðsstjóri hjá sviðinu sem bendir á að þessa dagana sé mikið átak í gangi til þess að hreinsa til í miðborginni. Hann segir það vera til skoðunar að krefja þá sem bera ábyrgð á veggspjöldunum að greiða fyrir þá vinnu sem fór í að hreinsa þau af veggjum borgar- innar. Á sunnudag var síðan sett upp stórt skilti með boðskap sviss- neska stjórnmálaflokksins skammt frá syðri enda Hvalfjarð- arganganna. elias@24stundir.is Áróður reyndist vera list Eftir Magnús Halldórsson magnush@24stundir.is „Það má segja að vegurinn hafi ver- ið færður upp að dyrum hjá sum- um íbúum hérna,“ segir Aðalsteinn Hallgrímsson, íbúi í fjölbýlishúsinu að Lundi 1 í Fossvogsdal í Kópa- vogi sem Byggingarfélag Gunnars og Gylfa (BYGG) reisti. Vegagerð ríkisins vinnur að breytingu á lagningu Nýbýlavegar sem felur það í sér að vegurinn liggur mun nær Lundi 1 heldur en áður. Ekki upplýst „Þegar við keyptum hérna höfð- um við ekki hugmynd um að þessi vegur kæmi svona nálægt húsinu. Þó þetta snerti mig ekki eins mikið og ýmsa aðra í húsinu, þar sem ég er á efstu hæð, þá finnst mér það ekki til fyrirmyndar að íbúar hafi ekki verið upplýstir um þetta, hverjum sem um er að kenna,“ seg- ir María Magnúsdóttir íbúi í hús- inu. Gylfi Óskar Héðinsson, annar tveggja eigenda BYGG, segir for- svarsmenn fyrirtækisins ekki hafa verið upplýsta um hvernig standa ætti að færslu vegarins. „Við viss- um að það ætti að setja nýja akrein þarna en við vorum ekki upplýstir um að hún ætti að vera svona ná- lægt byggðinni [...] Það er verið að vinna að þessu máli og hugsanlega finnst lausn sem allir geta sætt sig. Ég held að þetta hefði að minnsta kosti átt að fara í grenndarkynn- ingu.“ Samkvæmt upplýsingum á vef- síðu BYGG er áætlað að reisa 400 íbúða byggð í Lundi. Allar verða þær í fjölbýlis-, par- og raðhúsum. Íbúðirnar eru byggðar upp og seld- ar sem hágæðaíbúðir. Inn á skipulagi Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í Steingrím Hauksson, sviðsstjóra framkvæmdasviðs hjá Kópavogsbæ í gær. Þór Jónsson, al- mannatengslafulltrúi Kópavogs- bæjar, sagði færsluna á Nýbýlavegi vera inn á skipulagi. „Það hefði öll- um átt að vera ljóst að svona myndi vera,“ sagði Þór. ÞEKKIR ÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á frettir@24stundir.is Vegurinn færður upp að dyrum  Íbúðareigendur í Lundi 1 í Fossvogsdal voru ekki upplýstir um færslu Nýbýlavegar  Átti að vera öllum ljóst segir Þór Jónsson Lundur 1 Eins og sést er vegurinn kom- inn nálægt húsinu. ➤ Enginn íbúi að Lundi 1 hefurenn leitað réttar síns vegna málsins. Hugsanlegt er að til þessi komi, samkvæmt íbúum sem 24 stundir ræddi við. ➤ Breyting á lagningu Nýbýla-vegar er í höndum Vegagerð- arinnar. LUNDUR Í FOSSVOGSDAL STUTT ● Pólverji framseldur Hæstiréttur hefur staðfest úr- skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að 33 ára Pólverji, sem grunaður er um aðild að morði og fleiri glæpi í heimalandi sínu, verði framseldur til Pól- lands. Hann er grunaður um þátttöku í skipulagðri starfsemi sem tekur til dreifingar fíkni- efna, líkamsárása, manndrápa og fleira. ● Forstjóri varnarmála Utanríkisráðherra skipaði í gær Ellisif Tinnu Víðisdóttur forstjóra Varnarmálastofn- unar til fimm ára frá og með 1. júní nk. en þann dag tekur stofnunin formlega til starfa. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. flugfelag.is Skráðu þig í Netklúbbinn REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR VESTMANNAEYJAR ÍSAFJÖRÐUR VOPNAFJÖRÐUR ÞÓRSHÖFN GRÍMSEY Félagar í Netklúbbnum fá fyrstir upplýsingar um tilboð og nýjungar í tölvupósti. Alltaf ódýrast á netinu www.flugfelag.is ÍS L E N S K A S IA .I S F L U 4 16 84 0 4. 20 08

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.