24 stundir - 20.05.2008, Side 8

24 stundir - 20.05.2008, Side 8
aðstoðar en það var áður. „Svo virðist fólk með geðtrufl- anir leita frekar til okkar en heilsu- gæslustöðvanna, þó opnunartím- inn hafi verið lengdur hjá þeim,“ segir hún og minnir á að aðsóknin sveiflast milli ára. Aðspurð um hvort notendahóp- urinn hafi verið að einhverju leyti annar í fyrra en árið áður segist hún ekki merkja það. „Þó finnst mér eins og fjölgun hafi orðið í hópi ungs fólks sem leitar til okkar vegna fíkniefna,“ segir hún. Að meðaltali heimsóttu 25,2 Heimsóknum á bráðamóttöku- geðdeild Landspítalans fjölgaði um ríflega sjö prósent á árinu 2007 miðað við árið 2006, úr 8570 í rúmar 9190. Er þetta talsvert meiri aukning en var á mannfjölda þjóðarinnar, en hann jókst um 1,8% á sama tíma. Fara frekar á geðdeildina Halldóra Ólafsdóttir, yfirlæknir á bráðamóttöku á göngudeildsegist ekki vita hver skýringarnar séu á þessari auknu aðsókn. Þó geti verið að fólk sé ófeimnara við að leita sér einstaklingar bráðamóttökuna á dag í fyrra en þeir voru 23,6 árið áður. Þá fjölgaði innlögnum úr 786 upp í 915 og voru 10% allra heim- sókna í fyrra. Meiri notkun á geðsviðinu Heimsóknum á göngudeild geð- deildar fjölgaði í heild um 19 % á milli ára og fór úr rúmum 42 þús- und upp í rúm 50 þúsund. Á móti drógust heimsóknir á dagdeild geðsviðsins saman um tæp 11%. Séu deildirnar teknar saman jókst notkun þeirra um 1,6%. thorakristin@24stundir.is Geðdeild Halldóra Ólafsdóttir Heimsóknum fjölgar á bráðamóttökudeild geðsviðs Landspítala Fleiri á geðdeild í góðærinu Baðvörðurinn hótaði börnum Eftir Ægi Þór Eysteinsson aegir@24stundir.is Karlmaður sem starfar hjá íþrótta- og tómstundaráði Kópa- vogsbæjar sem baðvörður í Kópa- vogsskóla hefur verið áminntur fyrir að hafa hótað ungum drengjum að mynda þá í bún- ingsklefa íþróttahúss skólans í október. Tilkynning um að maðurinn hefði myndað drengina í bún- ingsklefa skólans barst skólayfir- völdum frá foreldrum drengjanna en þar sem umræddur maður var ekki starfsmaður skólans var mál- inu vísað til umfjöllunar hjá ÍTK. Málið var til umræðu hjá for- eldraráði skólans en það var ekki tilkynnt foreldrafélagi skólans með formlegum hætti. Myndir af börnum í símanum ÍTK boðaði manninn á fund í kjölfarið þar sem hann viður- kenndi að hafa tekið myndir af skólabörnum á símann sinn en neitaði hins vegar því að hafa tek- ið myndir af drengjum í búnings- klefa skólans. Hann hefði einung- is mundað símann og hótað að mynda unga drengi sem voru í klefanum og jafnvel þóst taka af þeim myndir. Við nánari skoðun á síma mannsins fundust myndir af börnum og starfsfólki skólans en engar sem teknar voru í bún- ingsklefanum. „Á grundvelli þess sem hann sagði fékk hann áminninguna enda á hann ekkert með það að vera að þykjast taka myndir inni í búningsklefanum en það er ekk- ert sem liggur fyrir í málinu um að hann hafi raunverulega tekið þar myndir,“ segir Þór Jónsson, upplýsingafulltrúi hjá Kópa- vogsbæ. „Þetta er fyrst og fremst dóm- greindarskortur og smekkleysi af hæstu gráðu hjá fullorðnum manni, en honum var gert ljóst að ef eitthvað viðlíka kæmi upp í hans starfi þá yrðu það endalokin á hans starfsferli hjá okkur.“ Málinu hugsanlega ekki lokið Sem fyrr segir var foreldra- félagi skólans ekki tilkynnt um atvikið með formlegum hætti en að sögn Guðrúnar Atladóttur, formanns foreldrafélagsins, mun félagið fjalla nánar um málið á næstunni. „Við eigum eftir að ræða þetta nánar í okkar hópi en það er ekk- ert víst að þetta séu lyktir þessa máls enda voru uppi óánægju- raddir um hvernig skólinn höndl- aði þetta mál,“ segir Guðrún og útilokar ekki að krafist verði að manninum verði sagt upp störf- um í framhaldinu. Skömmu eftir atvikið fór um- ræddur starfsmaður í veikinda- leyfi og hefur verið frá störfum síðan. Hann er hins vegar vænt- anlegur til starfa á næstu dögum.  Starfsmaður Kópavogsbæjar áminntur fyrir að hóta ungum drengjum að mynda þá í búningsklefa  „Dómgreindarskortur“ Á leið úr skólanum Foreldrafélag barna í Kópavogsskóla á eftir að ræða um baðvörð sem hótaði að mynda drengi í sundi. ➤ Á skólaárinu 2007–2008 hafaum 350 nemendur verið í Kópavogsskóla í 19 bekkj- ardeildum 1.–10. bekkjar. ➤ Skólastjóri er Guðmundur Ó.Ásmundsson og aðstoðar- skólastjóri Jóna Möller. KÓPAVOGSSKÓLI 8 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 24stundir RV U N IQ U E 03 08 04 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Glerfínar gluggafilmur - aukin vellíðan á vinnustað 3M gluggafilmur fyrir skóla, sjúkrahús, skrifstofur, verslanir og aðra vinnustaðiFagmenn frá RV sjá um uppsetningu 10 tíma lúxusnámskeið í tennis Innifalið: • Öll undirstöðuatriði tennisíþróttarinnar kennd • Skemmtilegir tennisleikir og reglur kenndar • Fjórir á hverjum velli með einum tennisþjálfara • Hádegisverðarhlaðborð á veitingastaðnum Nítjándu Árangursrík og skemmtileg leið til að læra tennis Verð kr. 24.900 á mann. Verð með sumarkorti í tennis kr. 37.900. Verð með gistingu á Hótel Smára kr. 39.900 Í boði allar helgar í sumar Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 og á tennishollin.is LÆRÐU TENNIS Á EINNI HELGI Tennis_2x10_april08.ai 5/5/08 11:26:31 AM www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Rafskutlur -umhverfisvænn ferðamáti

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.