24 stundir - 20.05.2008, Page 10

24 stundir - 20.05.2008, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 24stundir Herforingjastjórnin í Búrma hefur samþykkt að erlendum hjálparstarfsmönnum verði veittur aðgangur að hamfarasvæðunum í suðurhluta landsins í kjölfar felli- bylsins Nargis sem gekk yfir landið í byrjun mánaðarins. Stjórnin setur þó það skilyrði að aðstoðin sé skipulögð af fulltrúum nágranna- ríkja Búrma. Þriggja daga þjóðar- sorg var lýst yfir í landinu í gær. George Yeo, utanríkisráðherra Singapore greindi frá samkomu- laginu á blaðamannafundi eftir neyðarfund þjóða í Sambandi Suð- austur-Asíuríkja (ASEAN). Lækna- liði frá ASEAN-ríkjum verður hleypt inn í landið þegar í stað, en fram að þessu hefur herforingja- stjórnin verið mjög treg til að hleypa hjálparliði inn í landið. Sameinuðu þjóðirnar áætla að rúmlega 100 þúsund manns hafi látist af völdum fellibylsins og að 2,4 milljónir manna hafi misst heimili sín. Þá segist herforingja- stjórnin gera ráð fyrir að fjárhags- legt tjón vegna fellibylsins nemi meira en 10 milljörðum Banda- ríkjadala. atlii@24stundir.is Stjórnin í Búrma lýsir yfir þjóðarsorg Samþykkja aðstoð Eftir Atla Ísleifsson atlii@24stundir.is Hjálparsamtök í Suður-Afríku segja að sex þúsund manns hið minnsta hafi flúið landið vegna árása ofbeld- ismanna síðustu daga. Árásirnar hafa kostað að minnsta kosti 22 útlend- inga lífið og fleiri tugir hafa særst. Margir þeirra sem hafa leitað skjóls vegna árásanna á lögreglustöðvum, í kirkjum og samkomuhúsum eru Simbabvemenn sem hafa flúið fá- tæktina og óöldina í heimalandinu. Á vef BBC segir að innflytjendur í Suður-Afríku séu oft gerðir að blórabögglum vegna félagslegra vandamála í landinu, svo sem hús- næðisskorts, atvinnuleysis og hárr- ar glæpatíðni. Kveikt í mönnum Suðurafrísk dagblöð birtu í gær óhugnanlegar myndir á forsíðum af látnum manni sem kveikt hafði verið í á götu í Jóhannesarborg. Glæpahópar hafa að undan- förnu gengið um úthverfi borgar- innar í leit að útlendingum og rænt verslanir þeirra. Að sögn líktust sumar götur Jóhannesarborgar stríðsátakasvæði, þar sem lögregla beitti táragasi og gúmmikúlum til að dreifa reiðum mannfjöldanum. Flóttamannaástand Eric Goemaere, talsmaður Lækna án landamæra, segir stöð- una í landinu minna sig á dæmi- gert flóttamannaástand. „Ég hef hlúð að fólki með skotsár, fórnar- lömbum nauðgana, fólki sem hefur orðið fyrir barsmíðum og fólki sem er skelfingu lostið.“ Árásirnar hófust fyrir um viku síðan í Alexöndru, úthverfi Jó- hannesarborgar, og breiddust svo út til fleiri hverfa áður en þær náðu til miðborgarinnar. Var gerð árás á kirkju um helgina þar sem um þús- und Simbabvemenn höfðu leitað skjóls frá árásum ofbeldismann- anna. Um 250 manns hafa verið hand- teknir síðustu daga, vegna gruns um morð, nauðgun og rán. Opinber rannsókn Thabo Mbeki, forseti Suður- Afríku, segir að opinber rannsókn verði gerð á árásunum. Jacob Zuma, leiðtogi Afríska þjóðarráðs- ins, hefur fordæmt árásirnar og segir að Suður-Afríka megi ekki verða þekkt fyrir úlendingahatur. Mannréttindasamtök hafa hins vegar harðlega gagnrýnt suðurafr- ísk stjórnvöld vegna ástandsins, segja þau hafa verið sofandi á verð- inum og að það sé að koma í bakið á þeim núna. Flýja ofbeldi  Á þriðja tug útlendinga hefur verið drepinn í Jóhannesarborg síð- ustu daga  Útlendingum kennt um félagsleg vandamál í landinu ➤ Tæplega 50 milljónir mannabúa í Suður-Afríku. ➤ Útlendingar eru milli 3 og 5milljónir, flestir frá Simbabve, Mósambík og Nígeríu. ➤ Atvinnuleysi mælist nú 30% íSuður-Afríku. SUÐUR-AFRÍKA Vígvöllur Jóhann- esarborg var eins og stríðsátakasvæði. NordicPhotos/AFP Alþjóðleg ráðstefna með það að markmiði að fá samþykkt bann við klasasprengjum hófst í Du- blin á Írlandi í gær. Fulltrúar um hundrað landa taka þátt í ráð- stefnunni. Helstu notendur klasasprengja sendu þó ekki fulltrúa á ráðstefn- una, en meðal þeirra eru Banda- ríkin, Kína, Rússland og Ísrael. aí Vilja bann við klasasprengjum Slökkviliðsmenn þurftu að slökkva í fleiri tugum ruslahrúga á götum Napolíborgar á Ítalíu að- faranótt gærdagsins. Reiðir íbúar borgarinnar kveiktu í ruslinu, en áætlað er að um 3.500 tonn af rusli sé nú á götum borgarinnar. Silvio Berlusconi forsætisráð- herra hefur gefið í skyn að hann muni neyða sveitarstjórnir í Campania-héraði til að sam- þykkja nýjar lóðir undir sorp- vinnslustöðvar. aí Íbúar Napoli í rusli Kveiktu í tugum ruslahrúga STUTT ● Handtaka Lögregla í Írak handtók Abdul-Khaliq al- Sabawi, einn helsta leiðtoga al- Qaeda í Mosul, í gær. ● Samsæri Háttsettur maður innan stjórnarandstöðunnar í Simbabve hefur sakað leyni- þjónustu stjórnarhersins um að skipuleggja morð á Morgan Tsvangirai, leiðtoga MDC. ● Fundur Dalai Lama, and- legur leiðtogi Tíbeta, átti fund með Heidemarie Wieczorek- Zeul, þróunarmálaráðherra Þýskalands, í Berlín í gær. Dalai Lama hefur verið á ferð um Þýskaland síðustu daga. ● Mannfall Um 80 hafa látið lífið í átökum á milli stjórn- arhers Sri Lanka og Tamíltígra síðustu daga. Samfylkingarfélagið í Reykjavík býður til fundar um siðferði í stjórnmálum, miðvikudaginn 21. maí kl. 20.30 að Hallveigarstíg 1. Gestir fundarins eru: Bryndís Hlöðversdóttir, forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst og fyrrverandi alþingis- maður og Jón Ólafsson, prófessor og forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst. Fundarstjóri er Helga Vala Helgadóttir, stjórnarmaður í SffR. Siðferði í stjórnmálum Allir velkomnir LAGADEILD HR NÝJAR ÁHERSLUR – MARKVISST NÁM – MEIRI MÖGULEIKAR Umsóknarfrestur er til 30. maí Kynntu þér námið á www.hr.is Við lagadeild HR er í boði metnaðarfullt og nútímalegt laganám, sem miðar að því að útskrifaðir nemendur verði framúrskarandi lögfræðingar og í fremstu röð á sínu sviði. Hlutverk lagadeildar HR er að skapa og miðla þekkingu í umhverfi sem hvetur til frum- kvæðis, gagnrýninnar hugsunar og vísindalegra vinnubragða og auka þannig lífsgæði og samkeppnishæfni í samfélaginu. Lagadeild HR er brautryðjandi í nútímavæðingu laganáms hér á landi, hvort sem litið er til skipulags námsins, kennsluaðferða eða þeirra miklu krafna sem gerðar eru til nemenda á öllum námsstigum. Grunnnámið tekur 3 ár og að því loknu gefst nemendum kostur á 2ja ára framhaldsnámi til meistaraprófs í lögfræði. AÐEINS SÝND Í MAÍ TRYGGIÐ YKKUR MIÐA! HAFNAFJARÐARLEIKHÚSINU Fær hugann til að fljúga og kemur tilfinningum á rót” M.K MBL Falleg, fyndin,sönn og kvenleg” V.G Bylgjunni “Ég hvet fólk til að drífa sig á leikinn og njóta” Jón Viðar DV FÖS 23. MAÍ ÖRFÁ SÆTI LAUS SUN 24. MAÍ ÖRFÁ SÆTI LAUS FIM 29. MAÍ NÆST SÍÐASTA SÝNING SUN 1. JÚN SÍÐASTA SÝNING

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.