24 stundir - 20.05.2008, Síða 12

24 stundir - 20.05.2008, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 24stundir Lyf skipta sköpum! „Lyf eru nauðsyn í nútímasamfélagi!” „Í starfi mínu er ég daglega minntur á hve lífið er mikið kraftaverk og að það eru forréttindi að fá að vinna við að lækna og líkna. Vönduð og vel rannsökuð lyf skipta þar oft sköpum, bæði þau lyf sem byggja á gömlum og traustum þekkingargrunni og hin sem eru þróuð á grunni nútímaþekkingar í lyfjafræði og vísindalegri læknisfræði. Án lyfja hefði framþróun heilbrigðismála orðið með öðrum hætti. Mannkynið stæði verr. Að baki lyfjaframleiðslu liggur gífurleg vísinda- vinna til að tryggja að lyfin skili sem bestri verkun með fyrirsjáanlegum hætti. Lyf eru nauðsyn í nútíma þjóðfélögum og ein meginstoð öflugs heilbrigðiskerfis.“ Reynir Tómas Geirsson, prófessor/yfirlæknir, forstöðumaður fræðasviðs, Kvennasviði LSH. E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@24stundir.is „Það er niðurstaða Skipulags- stofnunar að bygging Bitruvirkj- unar sé ekki ásættanleg vegna verulegra neikvæðra og óaftur- kræfra áhrifa á landslag, útivist og ferðaþjónustu,“ segir í áliti Skipu- lagsstofnunar á mati á umhverfis- áhrifum vegna Bitruvirkjunar sem gefið var út í gær. Hvergerðingar ánægðir Virkjunin hefur verið nokkuð umdeild og hefur bæjarstjórn Hveragerðis lagst alfarið gegn henni. „Við fögnum þessu áliti Skipulagsstofnunar því hún ein- faldlega leggst gegn þessari virkj- un með mjög haldbærum og góð- um rökum sem eru í samræmi við það sem við höfum sett fram,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði. Eins og við var að búast Ásta Þorleifsdóttir, varafor- maður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur (OR), segir niður- stöðuna vera þá sem við var að búast. „Nú kemur á daginn að sú skoðun sem ég hef haft og skoðun Skipulagsstofnunar fara saman,“ segir hún. „Ég tel ekki ástæðu til þess að halda áfram undirbúningi vegna Bitruvirkjunar á þessum tímapunkti,“ bætir hún við. Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn OR, segir álit Skipulagsstofnunar fagnaðar- efni enda sé þar tekið undir helstu rök andstæðinga virkjun- arinnar. „Mér finnst þetta benda til þess að Skipulagsstofnun vinni í takt við tímann.“ Niðurstaðan vonbrigði Hjöleifur Kvaran, forstjóri OR, segir niðurstöðuna vera vonbrigði og hún komi á óvart. „Við höfum unnið þetta í góðu samráði við menn og náttúru,“ segir hann. „Þarna kynntum nýja kynslóð af rafgufuvirkjunum sem við töld- um að gæti fallið að landslaginu og sátt gæti orðið um,“ bætir Hjörleifur við. Hann segir nið- urstöðuna setja stórt spurningar- merki við jarðgufuvirkjanir al- mennt. „Þarna kynntum við alveg nýja leið, og ef hún er ekki fær held ég að jarðgufuvirkjanir muni mæta töluverðri andstöðu í fram- tíðinni.“ Skipulagsstofnun kynnir álit sitt á mati á umhverfisáhrifum vegna Bitruvirkjunar og Hverahlíðarvirkjunar Segir byggingu Bitruvirkjunar ekki ásættanlega ➤ Skipulagsstofnun leggst ekkigegn byggingu Hverahlíð- arvirkjunar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. ➤ Áætlað er að Hverahlíð-arvirkjun skili 90 MW og Bitruvirkjun 135 MW. VIRKJANIRNAR Innflytjendur í Danmörku eru ekki þeir einu sem eiga erfitt með að læra dönsku. Dönsk ungbörn eiga erfiðara með að læra sitt eigið tungumál heldur en ungbörn í öðr- um löndum, að því er greint er frá í dönskum fjölmiðlum. Samkvæmt rannsókn á vegum Syddansk Uni- versitet kunna 15 mánaða börn í Danmörku 80 orð en orðaforði jafngamalla barna í Svíþjóð nær yf- ir 150 orð. Í Króatíu nota 15 mán- aða gömul börn 200 orð. Ástæðan fyrir erfiðleikum dönsku barnanna er sú að orðin renna saman í framburði Dana. Börnin eiga þess vegna erfiðara með að skynja hvenær eitt orð hættir og annað tekur við. Rannsóknin var gerð í 18 lönd- um og byggðist á skráningu for- eldra á orðaforða barnanna. Sigríður Sigurjónsdóttir, dósent í íslenskri málfræði við Háskóla Ís- lands, segir slíka rannsókn ekki hafa verið gerða hér. „Hins vegar hefur nemandi minn rannsakað orðaforða eins 15 mánaða barns sem var fljótt til máls. Í þremur hálfrar klukkustundar upptökum komu fyrir 125 orðstofnar og 157 orðmyndir. Þetta var bara ein lítil rannsókn á einu barni.“ Danskan erfið fyrir börn eins og útlendinga Orðaforðinn lítill Breiðavíkursamtökin eru nú opin öllu áhugafólki um barnaverndarmál, en þau hafa tekið sér hlutverk sem málsvari fólks sem hið opinbera hefur vistað á heimilum og stofn- unum á öllum tímum. Bárður R. Jónsson var kjörinn formaður Breiðavíkursamtak- anna á aðalfundi um helgina. Hann telur mikilvægasta málið fram undan að fylgja eftir væntanlegu frumvarpi ríkisstjórnarinnar um bætur til Breiðvíkurdrengja. Það væri miður ef þessir menn, sem allir eru nú komnir á miðjan aldur, sætu eftir með þá tilfinningu að samfélagið hafi brugðist þeim öðru sinni. Samtökin þurfi líka að horfa til framtíðar, minna á barnaverndarmál og fá til liðs við sig sem flesta er vilja vinna með þeim. Nokkrar umræður urðu á aðalfundinum um að breyta nafni samtakanna í því skyni að höfða til breiðari hóps. Ekki varð af því að slík tillaga yrði borin upp. bee Bætur Breiðavíkurdrengja Barnaverndarstofa hefur undir- ritað samning við MST-stofnunina í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum um þjálfun og símenntun starfs- manna vegna 3 til 5 mánaða fjöl- þáttameðferðar á Íslandi fyrir fjöl- skyldur unglinga á aldrinum 12 til 18 ára sem hafa verið í fíkniefna- neyslu og gerst brotleg við lög. Mið- að er að því að barn geti búið heima, stundi skóla eða vinnu, hætti vímu- efnaneyslu og afbrotum. Fjölskyld- an hefur aðgengi að þerapistum all- an sólarhringinn í síma og þerapisti hittir fjölskylduna á heimili hennar eftir samkomulagi. Um 350 fjölskyldur hafa verið í þessari meðferð í Danmörku og nú hefur velferðarráðherra Danmerkur lagt til að foreldar barna sem koma fyrir unglingadómstól verði skyld- aðir til slíkrar meðferðar. Halldór Hauksson sálfræðingur, sem hefur umsjón með innleiðingu meðferð- arinnar hér, segir það orka tvímælis að þvinga fólk. „Framkvæmdin felst í samvinnu við fjölskylduna,“ segir hann. ibs Fjölskyldur barna í vímuefnavanda Meðferð inni á sjálfu heimilinu

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.