24 stundir - 20.05.2008, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 24stundir
FÉOGFRAMI
vidskipti@24stundir.is a
Hins vegar er alveg ljóst að
vextirnir verða hærri eftir að
ríkisábyrgðin verður farin.
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
„Ég mun áfram standa vörð um
Íbúðalánasjóð og sjóðurinn verð-
ur áfram eitt heildstætt lánakerfi
fyrir alla landsmenn,“ segir Jó-
hanna um fyrirhugaðar breyting-
ar á Íbúðalánasjóði.
Breytingarnar fela í sér aðskiln-
að milli almennra lána sjóðsins og
félagslegra. Áfram verða veitt al-
menn lán en ríkisábyrgð af þeim
felld niður og aðeins veitt á fé-
lagslegum lánum.
Jóhanna segir yfirvöld neyðast
til að gera umræddar breytingar
vegna yfirvofandi kröfu eftirlits-
stofnunar EFTA (ESA), en hjá eft-
irlitsstofnuninni liggur kæra
vegna ríkisábyrgðar Íbúðalána-
sjóðs, sem er sögð skekkja sam-
keppnisstöðuna á íbúðalánamark-
aði.
Jóhanna segir ólíklegt að frum-
varp um breytingar á lögum um
Íbúðalánasjóð verði lagt fram fyrr
en næsta haust þar sem stutt lifir
eftir af þinginu. „Hvað þingið
þarf langan tíma til að fjalla um
það veit ég ekki.“
Óvissan slæm
Hallur Magnússon, ráðgjafi og
fyrrverandi sviðsstjóri hjá Íbúða-
lánasjóði, gagnrýnir ríkisstjórnina
fyrir að boða óljósar og ótímasett-
ar breytingar á Íbúðalánasjóði.
Öll óvissa í þessum efnum sé
slæm.
„Ég hefði kosið að ríkisstjórnin
hefði annað hvort lagt fram frum-
varpið í upphafi þessa þings eða
gert einfalda breytingu á lögum
um húsnæðismál sem heimilaði
Íbúðalánasjóði að stofna dóttur-
fyrirtæki sem sæi um fjármögnun
á lánum án ríkisábyrgðar strax í
sumar,“ segir Hallur.
Að öðrum kosti hefði átt að
bíða með yfirlýsingarnar þar til
frumvarp liggur fyrir.
Jóhanna bendir á að breyting-
arnar hafi verið yfirvofandi í heilt
ár eða frá því að kæran til ESA
var lögð fram. Fullyrðingar um að
boðaðar breytingar skapi óvissu á
markaði séu því alrangar. „Það er
hins vegar mjög slæmt ef það er
verið að skapa ótta og villa um
fyrir íbúðarkaupendum með slík-
um fullyrðingum.“
Félagslegi hlutinn styrktur
„Ríkisábyrgðin verður áfram á
félagslegu lánum Íbúðalánasjóðs
og það liggur ljóst fyrir að þetta
mun skapa mér tækifæri til að
styrkja verulega félagslega hluta
sjóðsins,“ segir Jóhanna.
Þá segir hún síður en svo
öruggt að vextir á almennum lán-
um muni hækka, þrátt fyrir að
ríkisábyrgð á þeim verði afnumin.
„Fullyrðingum um það er því til
að svara að það ræðst meira af
þróun hagkerfisins, og hvernig
vextir á verðtryggðum lánum al-
mennt þróast, heldur en af skipu-
lagsbreytingum í kerfinu.
Þessar breytingar á almenna
hlutanum gefa hins vegar ákveðin
tækifæri. Þar sem verið er að jafna
samkeppnisskilyrði Íbúðalána-
sjóðs við aðrar lánastofnanir gefst
færi á því að hafa samstarf um út-
boð. Stærri útboð með öðrum
lánastofnunum geta haft jákvæð
áhrif á vextina,“ segir Jóhanna.
Segir vexti munu hækka
Hallur Magnússon segir hins
vegar ljóst að vextir á almennum
lánum muni hækka þegar ríkis-
ábyrgð er afnumin af þeim. Með
útgáfu skuldabréfa til fjármögn-
unar á lánum Íbúðalánasjóðs og
annarra aðila verði mögulega
hægt að fá bestu vexti án rík-
isábyrðgar sem völ er á.
„Hins vegar er alveg ljóst að
vextirnir verða hærri eftir að rík-
isábyrgðin verður farin. Ef þeir
hækkuðu ekki við það gengi
gagnrýni þeirra sem segja að rík-
isábyrgð Íbúðalánasjóðs skekki
samkeppnisstöðuna ekki upp. Og
þá þyrfti ekki að afnema hana.“
Áfram veitt lán
til almennings
Vextir Íbúðalánasjóðs hækka, segir fyrrv. sviðsstjóri hjá sjóðnum
Félagsmálaráðherra Segist ætla að
standa vörð um Íbúðalánasjóð.
➤ Ríkisábyrgð verður felld niðurá almennum lánum Íbúða-
lánasjóðs.
➤ Áfram verður ríkisábyrgð áfélagslegum lánum.
➤ Frumvarp þess efnis verðurlíklega lagt fram í haust.
BREYTINGARNAR
MARKAÐURINN Í GÆR
● Mest viðskipti í kauphöll OMX
í gær voru með bréf Kaupþings,
fyrir um 947 milljónir króna.
● Mesta hækkunin var á bréfum
Exista, eða 5,71%. Bréf Bakkavar-
ar hækkuðu um 5,57%, bréf
SPRON um 4,12% og bréf Öss-
urar um 3,95%.
● Mesta lækkunin var á bréfum
FL Group, eða 2,40%. Bréf Teymis
lækkuðu um 0,29%.
● Úrvalsvísitalan hækkaði um
1,62% í gær og stóð í 4.941 stigi í
lok dags.
● Íslenska krónan styrktist um
0,80% í gær.
● Samnorræna OMX40-
vísitalan hækkaði um 2,02% í
gær. Breska FTSE-vísitalan hækk-
aði um 1,15% og þýska DAX-
vísitalan um 0,97%.
! "##$
!"#
$
%
&#
'()*+
'
,
-./.
0#1
2
345
#"
" 61
"(##
(7
81
!"# "
+9#/
'
01 - -
:
-
;#
1
-/
!
: -
0 -< =
$
'
>4??>@
A>53B>4?A
>CBAC??5B
B533@CC
3?5BC55DA
>B>@?B4
D?AD45@
DB?A?@3@@
34?A??D3C
>@>@>5@@
43D@BB5
C?@D?AC5
3BC@@@
A@CB>43CC
,
CC?C3B
A@553>4
5333DB>
,
,
5BC35>
,
,
>4?@B@C4?
,
,
BBD4555@
,
,
?EA@
3?EB@
A@ED>
4E5>
A?E?5
>@E5@
>@E?@
C@@E@@
>5ED5
D5EA@
BE?4
AAE?>
3EBC
DDE3@
AE>4
4E?5
>>@E@@
A?A@E@@
3>?E@@
,
ABCE@@
,
,
,
,
,
5CA5E@@
,
,
?EA>
3?ED@
AAE@@
4E4?
A?EC@
>@E?5
>@ED@
C@>E@@
>4EA@
D5E>@
BEC@
AAE?D
3E5A
A@@E@@
AE>C
4EC@
>>3E@@
A?35E@@
33@E@@
@ED5
A5@E@@
,
>@E@@
4E4B
,
,
5C?@E@@
,
5ED@
/
- A
>C
B@
4
BA
4
3
5C
34
4
D
>A
A
AB
,
A
B
4
,
,
A
,
,
A
,
,
B
,
,
F#
-#-
AD5>@@C
AD5>@@C
AD5>@@C
AD5>@@C
AD5>@@C
AD5>@@C
AD5>@@C
AD5>@@C
AD5>@@C
AD5>@@C
AD5>@@C
AD5>@@C
AD5>@@C
AD5>@@C
A45>@@C
AD5>@@C
AD5>@@C
AD5>@@C
A45>@@C
A35>@@C
AD5>@@C
A@3>@@C
C5>@@C
A45>@@C
4A>>@@?
>>C>@@?
AD5>@@C
?5>@@C
?3>@@C
"
Kaupþing hefur kært norska við-
skiptablaðið Dagens Næringsliv
til siðanefndar fjölmiðla í Noregi.
Ástæðan er að blaðið birti fyrir-
sögn á forsíðu sinni 10. maí um
að viðskiptavinir væru að flýja
Kaupþing. Nánari umfjöllun af
sama tagi var inni í blaðinu.
Í tilkynningu, sem Jónas Sig-
urgeirsson, upplýsingafulltrúi
Kaupþings, hefur sent út í Nor-
egi, segir að blaðinu hafi verið
fullkunnugt um að tölur sem
vitnað var til voru orðnar gamlar
og stöfuðu af röngum fréttum í
fjölmiðlum um að tryggingar
bankans í Noregi væru ekki næg-
ar. Segir Jónas að þessi frétta-
flutningur hafi skaðað bankann.
mbl.is
Kaupþing kærir
norskt blað
Rússneska matvælaeftirlitið hef-
ur enn ekki gefið grænt ljós á inn-
flutning á svínakjöti frá nokkrum
dönskum sláturhúsum. Innflutn-
ingsbannið hefur verið í gildi í
þrjár vikur eða frá því að rúss-
neska matvælaeftirlitið fullyrti að
fundist hefðu leifar af sýklalyfj-
um í útlendu kjöti, þar á meðal í
sendingum frá Danmörku. Danir
binda nú vonir við að neytendur
annars staðar í Evrópu skelli
svínakjöti á grillið. Útflutningur
á dönsku svínakjöti nam 27 millj-
örðum íslenskra króna í fyrra. ibs
Hafnar dönsku
svínakjöti
Vallý s. 510 3728
Böddi s. 510 3726
atvinna@24stundir.is
PANTIÐ GOTTPLÁSSÍ TÍMA
ATVINNUBLAÐIÐ
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafknúnir
hæginda-
stólar
• Auðvelda þér að
standa upp
• Einfaldar stillingar
og fjölbreytt úrval
Verð frá 98.000 krónum