24 stundir - 20.05.2008, Side 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 24stundir
lausa glugga Héraðsdómshússins.
„Eins og stendur hefur Héraðs-
dómur fælingarmátt. Hann laðar
engan að sér enda ekki tilgangur
hússins. Fólk hverfur inn í þetta
hús og sést síðan ekki næstu mán-
uði. Menn setjast ekki á tröppur
hússins, steinveggir þess Austur-
strætismegin taka upp sólarrými
Austurstrætis, rimlarnir fyrir ann-
ars fallegum gluggum gefa til
kynna að eitthvað sé að óttast. Ótt-
inn smitar viðstadda, fyllir þá
hörku og löngun til að sparka í
einhvern eða kasta flösku í vegg-
inn. Þannig myndast hringrás sem
viðheldur starfsemi Héraðsdóms
Reykjavíkur. Ég er ekki bitur. Ég er
ekki á skilorði en mér finnst þetta
heldur dapurlegt.
Þarna ættu að vera opnir
gluggar og fyrir innan eitthvað sem
menn ættu að vilja sjá eða kaupa
eða borga eða drekka. Þetta er ekki
bara hugmynd, þetta er þjóð-
þrifaverkefni, brýn nauðsyn, fú-
lasta alvara. Í þessum gardínum
kristallast vandi miðbæjarins. Þær
eru banatilræði við mannlíf á
Lækjartorgi.“
Flytjum burt Héraðsdóm
„Til þess að líf geti þrifist á
Lækjartorgi er alveg lífsnauðsyn-
legt að Héraðsdómi Reykjavíkur
verði fundin ný staðsetning á ódýr-
ari stað í bænum. Gardínurnar
verði rifnar niður og í staðinn
komi verslunargluggar eða starf-
semi sem má líta dagsins ljós.“
24 stundir/Valdís Thor
Það sem er gott fyrir Bæjarins bestu er gott fyrir miðbæinn
Gardínur – bana-
tilræði við mannlíf
Kjötvísitala Andra
Góð reikniregla fyrir
miðbæinn. Lesið nán-
ar: www.andrisnaer.is
Á Lækjartorgi er heldur
eyðilegt um að litast um
þessar mundir. Á miðju
torginu eru þrjú tóm leir-
ker með mold og leifum
af visnuðum gróðri og
bekkur sem er oftast
mannlaus. Svo virðist sem
torgið bíði betri tíma.
Andra Snæ Magnasyni er
umhugað um borgina og
hann vill meira mannlíf
og rýma dauðar stofnanir
fyrir fólk.
Reikniregla fyrir miðbæinn get-
ur verið þessi: Það sem er gott fyrir
Bæjarins bestu er gott fyrir miðbæ
Reykjavíkur. Það má búa til vísi-
tölu: Kjötvísitalan. Hvað er mikið
mannakjöt á hvern fermetra?
Skóli: Mjög há kjötvísitala.
Skrifstofa: Frekar há kjötvísitala.
Íbúðir: Fer lækkandi í hlutfalli
við meðalaldur og meðaltekjur
íbúa. Kjötvísitala er hæst hjá ungu
fólki, háskólanemum, fjöl-
skyldufólki. Lægst hjá ríku fólki
þar sem kjötvísitala fer niður í einn
mann á hverja 100 m2 og jafnvel
enn neðar, niður í núll á daginn.
Lúxusíbúð væri hörmuleg býtti
fyrir skrifstofurými. Ef menn vilja
hafa þarna íbúðir má ég þá mæla
með: STÚDENTAGÖRÐUM? En í
guðanna bænum: Ekki lúx-
usíbúðir. Íbúarnir væru vísir til að
vinna í Síðumúla, Garðabæ eða
Lindarhverfinu. Hvað er miðbær-
inn þá annað en: ÚTHVERFI,
Garðabæjar, SVEFNBÆR, svefn-
bæjar? Við viljum það ekki er það?
Menn geta reiknað, spáð og
spekúlerað, gert kannanir og línu-
rit en kannski er best að hugsa
þetta einfaldlega svona:
Það sem er gott fyrir Bæjarins
bestu er gott fyrir miðbæ Reykja-
víkur.
Það myndi enginn pylsuvagn
þrífast á því að selja 10 lúxuspylsur
á dag.
Gardínur – banatilræði
„Hver á þessar gardínur?“ spyr
Andri Snær í kaldhæðni um líf-
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
Andri Snær Magnason rithöf-
undur átti vinningstillögu í hug-
myndsamkeppni um miðbæ
Reykjavíkur sem haldin var á veg-
um Landsbanka Íslands fyrir
tveimur árum. Vinningstillaga
hans var róttæk og skemmtileg og
Andri lagði út frá því að mið-
borgin fengi sál og auðgaðist af
mannlífi. „Við ofmetum stundum
hvernig hús líta út, það er starf-
semin og mannlífið sem skiptir
máli, sjáið bara hvað Lækjartorg
lifnaði við með tilkomu kaffihúss-
ins Segafredo,“ segir hann.
Andri segir vinningstillögu
Stúdíó Granda innihalda margt
sem honum lítist á. „Mér leist
einnig vel á hugmyndir Krads-
hópsins sem setti líf í Héraðs-
dómshúsið, breytti því í stór-
magasín. Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur mikinn fælingarmátt,“
bætir Andri Snær við. „Ég vil
breytta starfsemi í því húsi.“
Hvað gerðist?
Andri Snær hafði séð gamla
mynd af höfninni og miðbænum
eins og hann leit út árið 1930 og í
kjölfarið spurt sig hvað hafi eig-
inlega gerst.
„Hvað varð um öll húsin og allt
lífið? Hvaða loftárásir urðu
hérna?,“ spyr hann og segir verk-
efnið sem bíði ekki ósvipað og að
reisa borgarhluta úr rústum eftir
loftrárásir eða stórbruna (skrifað
og sagt áður en stórbruni varð!).
Andri Snær veltir upp mögu-
leikum miðborgarinnar sem hann
kallar Einskismannslandið sökum
fátæklegs mannlífs og leggur til
reiknireglu fyrir miðbæinn sem
hann miðar út frá því hvað sé gott
fyrir Bæjarins bestu.
Reikniregla fyrir miðbæinn
„Eimskipafélagshúsið er nú orð-
ið hótel, á þessum tíma var það
ekki. Ég sá hugmyndir um að
breyta Eimskipafélagshúsinu í lúx-
usíbúðir,“ segir Andri Snær. Mörg-
um fannst það hljóma vel og sam-
rýmast vel mannlífi í bænum. En
þá velti ég fyrir mér: Er það gott
fyrir bæjarins bestu? Er það betra
en til dæmis skrifstofuhúsnæði?
Og þá bjó ég til kenningu um kjöt-
vísitölu. Atlantskaup ehf. Bæjarflöt 6,112 Reykjavík S: 533 3700
Upplýsingar á www.atlantskaup.is
STIGAR OG HANDRIÐ ÚR GLERI OG STÁLI
ÚTI SEM INNI
Auglýsingasíminn er 510 3744