24 stundir - 20.05.2008, Page 21
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 21
Góðgerðarsamtökin Architecture
for Humanity hafa sent frá sér
ákall um liðsinni vegna nátt-
úruhamfaranna í Mjanmar. Ákall-
ið hljóðar svo:
Ákall AFH:
„Á meðan fjölmiðlar einblína á
það mannfall sem orðið hefur í
Mjanmar viljum við benda á að
margar milljónir hafa misst heimili
sín og eins og svo oft þegar nátt-
úruhamfarir verða eru fyrstu við-
brögð að veita fyrstu hjálp. Stór
samtök eins og Oxfam og Care
eiga fyrir höndum gríðarlega
vinnu við að færa íbúum hjálp-
argögn. En hvernig ætlar landið að
taka á nauðsynlegri uppbyggingu
fyrir þá til langs tíma.
Við ætlum okkur að safna tæp-
lega tíu milljónum króna til að
byrja með til að styrkja vinnu við
uppbyggingu. Þetta sýnist mörgum
lítil upphæð en við trúum því að
þessi upphæð sem varið er til
hönnunar og skipulagningar á
uppbyggingu svæðisins muni
gagnast tugum þúsunda af þeim
sem hafa misst heimili sín.“
Skólar og sjúkrahús
Þess má geta að nú þegar hafa
safnast um 7 milljónir til verksins.
Samtökin ætla sér að einblína á að
byggja samfélagið upp með þeirri
grunnþjónustu sem íbúar þurfa á
að halda og að uppbyggingin verði
ekki neyðarúrræði heldur eigi að
virka til lengri tíma og sé raun-
veruleg uppbygging eða end-
urreisn.
Samtökin trúa enda á það að
uppbyggingin eigi að binda enda á
neyð en ekki að viðhalda henni til
lengri tíma. Markmið samtakanna
er því að skólar og sjúkrahús, hýs-
ing samfélagsþjónustu og stofnana
rísi um leið og íbúar fái mann-
heldar og vel gerðar íbúðir.
Um leið er lögð áhersla á það að
með hugviti og góðri skipulagn-
ingu geti slík uppbygging orðið á
jafnskjótum tíma og neyðarúrræði
sem virka til skamms tíma.
dista@24stundir.is
Arkitektar til
Mjanmar
Uppflettirit um góðverk
Bókin er í formi uppflettirits um
vel heppnuð verkefni hönnuða
sem hafa orðið manninum til góðs
og vekja áleitnar spurningar um
misskiptingu auðs í heiminum og
hvers hugvitssamir listamenn,
hönnuðir og arkitektar heimsins
eru megnugir hafi þeir viljann að
vopni og eitthvað af fjármagni.
Samtökin hafa verið í sviðsljósinu
undanfarið vegna ákalls þeirra um
liðsinni vegna náttúruhörmung-
anna í Mjanmar.
dista@24stundir.is
Ein af hverjum sjö manneskjum
heimsins býr í flóttamannabúðum
eða húsnæði sem telst ekki mann-
helt og meira en þrír milljarðar
hafa ekki aðgang að hreinu vatni
eða heilsugæslu.
Þrátt fyrir að heimurinn sé
svona byggður er mest áhersla lögð
á byggingu glæstra bygginga; safna,
opinberra bygginga, skýjakljúfa og
tónleikahalla í stað þess að byggja
mannsæmandi skýli og heimili
handa bágstöddum heimsbúum.
AFH-öðruvísi góðgerðasamtök
Cameron Sinclair og Kate Stohr
eru bæði arkitektar og stofnuðu
góðgerðarsamtökin Architecture
for Humanity árið 1999 vegna
þessarar misskiptingu á gæðum.
Samtökin hafa það að markmiði
að bjarga heiminum og það gera
þau með því að fá hönnuði og
arkitekta í lið með sér í að hanna
og byggja skýli og mannhelda bú-
staði fyrir fólk á skipulegan hátt.
Teymið hefur gefið frá sér hönn-
unarbókina: Design like you give a
damn sem hefur farið sigurför um
heiminn og orsakað hreina vitund-
arvakningu um hversu miklu máli
það skiptir að nýta rétta þekkingu
og hugvit þegar á þarf að halda til
góðs.
Arkitektar og hönnuðir bjarga heiminum
Hannað með hjartanu
Hugvitið fyrir heim-
inn „Design like you
give a damn“.
ar
gu
s
07
-0
75
0
bmvalla.is
Sími: 412 5000 :: bmvalla.is
Lindab
drekka allt sem rennur!
Lindab þakrennur og niðurföll eru stílhrein og sterk
og falla vel að öllum byggingum.
Lindab þakrennur fást í öllum helstu byggingavöruverslunum landsins
Helstu kostir Lindab eru:
Fallegt útlit :: Létt í uppsetningu :: Úrval lita :: Góð ending
Hágæðastál :: Fjöldi aukahluta :: Áratugareynsla á Íslandi