24 stundir - 20.05.2008, Page 22

24 stundir - 20.05.2008, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 24stundir Eftir Hauk Harðarson haukurh@24stundir.is Garðlýsing er eitthvað sem Íslend- ingar eru farnir að huga að í aukn- um mæli. Það er fátt sem lýsir upp skammdegið betur en fallega lýst- ur garður eða upplýst tré. En margir sem huga ekki að því að þótt fólk njóti garðlýsinga best yfir vetrartímann, þegar dimmast er, eru kjöraðstæður til að koma þeim upp yfir sumarið. „Yfir sumarið eru miklu betri aðstæður til að koma lýsingunni upp, auk þess er líka afar ánægjulegt horfa á fallega lýstan gróður í ágúst og september því þá er gróðurinn upp á sitt besta en jafnframt tekið að skyggja,“ segir Mikael R. Ólafsson rafvirki. Einstök tré lýst upp Hann segir litlar breytingar hafa orðið í garðlýsingum á und- anförnum árum en tekur þó eftir því að fólk er í auknum mæli farið að lýsa upp einstök falleg tré. „Það þarf ekki nema einn að byrja, þá sjá hinir hvað þetta er skemmtilegt og fylgja á eftir. Möguleikinn hefur svo sem alltaf verið fyrir hendi tæknilega séð, en perurnar hérna áður fyrr voru afar dýrar. Nú hefur tækninni fleygt fram og perurnar sem eru notaðar til að lýsa upp tré eru orðnar mun ódýrari,“ segir Mikael. Mikilvægt að undirbúa allt vel Mikael leggur höfuðáherslu á að áður en haldið er út í að lýsa upp garðinn er gríðarlega mikilvægt að skipuleggja allt vel. Þar á hann við allar leiðslur og tengi en það getur verið talsvert flókið að lagfæra hluti eftir að ljósunum hefur verið komið upp. Því er tilvalið að ráðast í lýsingu um leið og garðurinn er endurskipulagður. Mikael segir að nú til dags sé gert ráð fyrir lýsingu í öllum teikningum og tilboðum sem fólk fær þegar það tekur garð- inn í gegn. Gleyma „vöfflutenglinum“ Það verður sífellt algengara að fólk noti hitalampa úti í garði. Þeir lengja tímann sem fólk getur setið úti og gera borðhald úti í garði ánægjulegra og þægilegra. Hingað til hafa flestir notað gashitalampa. „Orkuveitan er hins vegar farin að beina því til fólks að hita svæðið upp með rafmagni. Slíkt þarfnast mikillar skipulagningar. Annars eru margir sem gleyma því að setja upp vöfflutengið við hliðina á grill- inu,“ en þar á Mikael við að gera ráð fyrir rafmagnsinnstungu hjá grillaðstöðunni. „Það er nefnilega tilvalið að fara með vöffujárnið út í garð á sólríkum degi og baka vöffl- ur meðan maturinn er grillaður.“ Fallegar garðlýsingar sífellt vinsælli í íslenskum görðum Sumarið rétti tíminn fyrir garðlýsingar Garðlýsingar hjálpa til við að lýsa upp skamm- degið yfir vetrartímann og bæta heildarútlit lóð- arinnar. Mikilvægt er að hafa í huga að rétti tím- inn til að setja þær upp er einmitt núna þegar sum- arið fer í hönd. Mikael R. Ólafsson fer yfir grund- vallaratriði góðrar lýs- ingar í görðum. Falleg garðlýsing Nýtur sín einstaklega vel á góðum síðsumarskvöldum. ➤ Mikilvægt er að skipuleggjagarðlýsingu vel. Talsvert flók- ið getur verið að lagfæra hluti eftir að ljósum hefur verið komið upp. ➤ Því er tilvalið að ráðast í lýs-ingu um leið og garðurinn er endurskipulagður. ➤ Orkuveita Reykjavíkur leggurtil að garðar séu hitaðir upp með rafmagni. Slíkt þarfnast einnig skiplagningar. GARÐUR SKIPULAGÐUR Það er alls ekki sjálfgefið að allt gangi fullkomlega upp þegar verið er að byggja hús og þá skiptir miklu máli að geta verið dálítið sveigjanlegur. Vertu viðbúin/n því að vandamál geti komið upp og þá getur þurft að finna aðra sem gengur upp hönnunarlega séð. Skoðaðu alla möguleika og reyndu að vega og meta hvað er mikilvæg- ast þar sem ekki verður bæði sleppt og haldið. Haltu fast um budduna Smiðirnir sem ráðnir hafa verið til verksins ættu að geta gert flest sem þú vilt eða fengið til sín aðra í sérhæfðari verk. Hafðu þó í huga að allar framkvæmdir safnast sam- an og þá sérstaklega þær sem snúa að einstökum eða óhóflegum ósk- um svo og nýrri tækni og efnivið og áhöldum sem ekki er mikil reynsla fyrir. Slíkt getur kostað mikið og því best að fara varlega svo fjárhagurinn fari ekki al- gjörlega úr skorðum. Náttúran spilar inn í Ýmis vandamál geta komið upp við byggingu húsa og þar getur náttúran og veðrið t.d. spilað inn í. Mikil rigning, kuldi eða rok get- ur tafið framkvæmdir og við því er oftast lítið að gera. Hafðu í huga að algjörri fullkomnun er erfitt að ná fram þó svo að vitaskuld eigi að lagfæra meirháttar galla, á slíku áttu rétt sem verðandi húseigandi. maria@24stundir.is Sumt fer einfaldlega úrskeiðis við byggingu húsa Sveigjanleiki mikilvægur Húsbygging Vandaverk. Ármúla 36 • 108 Rvk S. 581 4070 • www.jabohus.is SUMARHÚS HEILSÁRSHÚS GESTAHÚS Finnsk og sænsk gæðahús Koma tilbúin til uppsetningar Góð reynsla og hagstætt verð HÚS Í BORG – HÚS Í SVEIT Vönduð heilsárs hús á góðu verði. Margar út- færslur. Framleiðum einnig eftir sérteikningum. Gerum tilboð í glugga og hurðir úr furu, mahogany, ál/tré, áli og plasti. Erum einnig með hvíttaðan innipanel, lerki í pallinn og fleira. Kverkus ehf. Síðumúla 31 símar 581 2220, 858 0200 eða 840 0470. kverkus@kverkus.is www.kverkus.is

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.