24 stundir - 20.05.2008, Side 26

24 stundir - 20.05.2008, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 24stundir Starinn er mjög duglegur fugl í kringum varptímann og kemst inn um 2,5 – 3.0 cm göt og glufur á ótrúlegan hátt. Helstu varpstaðir eru undir þakskeggjum, í ófrá- gengnum húsum og sum- arbústöðum, í námunda við mat- vælafyrirtæki, verslanir og ruslagáma. Hann er alæta og vin- sælustu matstaðir hans eru þar sem sorp og rusl er urðað og staðir þar sem matur fellur til eins og fóð- urstöðvar, hafnarsvæði, matvæla- fyrirtæki og þar sem fólk kastar frá sér rusli á göturnar. Talið er að fuglinn beri með sér kamfýlóbakter, salmonellu, E-Coli og fleiri bakteríur sökum þess hvað hann kemur víða. Fjöldi stara hefur vetursetu hér á landi og er hann því orðinn staðfugl að hluta. Fuglaflóin Ef fólk kemst að því að stari sé búinn að koma sér upp hreiðri og verpa í húsakynnum þess er best að bíða þar til ungarnir eru farnir úr hreiðrinu en eitra þá strax fyrir flónni og loka aðgangi fyrir fuglinn inn í húsið. Ef hreiður er lokað af og ekki eitrað í það má búast við að fuglaflóin fari af stað í leit að fórn- arlambi. Það getur gerst næsta vor eða jafnvel eftir tvö ár. Sumir hafa ofnæmi fyrir stung- um fuglaflóarinnar og fá ígerð í stungusárin. Ef fólk er stungið inni á heimilum þarf að úða til að drepa flóna. Maðurinn er ekki hýsill fyrir fuglaflóna Fólk með gæludýr, s.s. hunda og ketti, ætti að fá sér flóarólar á dýrin og skoða hvort flær séu á dýrunum. Ef fuglafló finnst í búrum fugla ætti að fara með þá til skoðunar hjá dýralækni. Hundar og kettir geta borið fuglaflær í hús, t.d. úr garð- inum. Flóin nærist á blóði og stekkur á milli fórnarlamba hvort heldur það eru dýr eða menn. Þó er það merkilegt að hún gerir mannamun og stingur suma og aðra ekki innan sömu fjölskyldu. Ég hef oft sagt við fólk sem er stungið og er miður sín vegna þess: Já, það er ekki amalegt að vera með kóngablóð. Oft kemur þá lítið bros. Úðunarferlið í heimahúsum vegna eitrunar fyrir starafló: Úða skal í hreiðurstæðið og á allt þakskeggið, hringinn í kringum húsið. Inni í híbýlum þarf að strjúka ryk í burtu frá öllum veggjum og þurrka úr gluggum. Breiða yfir fiskabúr. Setja leik- föng lítilla barna í plastpoka og binda fyrir. Eftir að búið er að úða, er best að taka af öllum rúmum, þvo sængurver og lök og setja í hreins- un það sem ekki má þvo. Eftir að búið er að úða skal ekki fara inn í húsið í 4 tíma. Ófrískar konur, kornabörn, gæludýr og fólk með asma og öndunarerfiðleika eftir 7-8 tíma. Búnaður. Hægt er að fá margs konar tæki til varnar staranum eins og glit- borða, fuglaklístur og gadda sem settir eru á hús og ljóskastara svo að fuglinn geti ekki sest. Gaddarnir eru langhentugasta varnartækið fyrir fugla og svo fuglaklístrið. Önnur tegund af stara er svo kölluð „rósastari“ sem lifir á heitari stöðum í Evrópu. Hann hefur oft komið hingað en ekki sest að hér á landi. Starinn er alfriðaður fugl og ekki er heimilt að drepa hann né steypa undan honum ef hann er kominn með egg eða unga í hreiður, sbr. lög um dýravernd nr. 15/1994 og lög um vernd, friðun og veiðar á villt- um fugum og spendýrum nr. 64/ 1994. Varnaðarorð: Þegar fólk þarf að fá til sín mein- dýraeyði eða garðúðara þá skal allt- af óska eftir að fá að sjá starfs- skírteini útgefið af Umhverfisstofnun og eiturefnaleyfi gefið út af lögreglustjóra/sýslu- manni og það mikilvægasta er að viðkomandi hafi starfsleyfi frá við- komandi sveitarfélagi. Athugaðu hvort öll skírteini séu í gildi. Félagar í Félagi meindýraeyða eru með öll réttindi í lagi. Fáðu alltaf nótu vegna við- skiptanna. Réttindi meindýraeyða og gað- úðara frá erlendum ríkjum og fé- lagasamtökum gilda ekki á Íslandi. Lesendum 24 stunda er velkom- ið að að senda fyrirspurn á net- fangið: gudmunduroli@simnet.is Heimildir: Upplýsingar og fróð- leikur um meindýr og varnir 2004 24stundir/Ómar Upplýsingar og fróðleikur um meindýr og varnir  Hæð: 12-15 cm, fullvaxinn fugl.  Lengd: 21 cm, fullvaxinn fugl.  Þyngd: 58 – 118 gr, fullvaxinn fugl.  Hljóð: Hermir eftir nær öllum hljóðum, hefur ekkert sérstakt hljóð sjálfur. (Blísturshljóð).  Eggjafjöldi: 4-6 egg.  Ætt: Staraætt.  Sníkjudýr: Starinn ber með sér fuglafló sem nærist á blóði.  Vængjahaf: 30-40 cm. Líftími: 5-7 ár. Varptími: Apríl-júlí Ungar í hreiðri: 10- 15 dagar. Fæða: Allt matarkyns sem til fellur. Litur eggja: Fölblá, hvít, græn- hvít. Stærð eggja: 3x3/3x4 cm. Útungun: 11-13 dagar. UPPLÝSINGAR UM STARATalið er að stari hafi fyrst orpið á Hornafirði árið 1940. Tveir stofnar voru á landinu í nokkurn tíma upp frá 1960, einn á Hornafirði og annar í Reykjavík. Stofninn á Hornafirði var lítill, 20-25 pör, og hefur nær horfið þaðan. Upp úr 1970 tók fuglinn að dreifa sér frá Reykjavík til Suðurnesja, Suður- og Vesturlands og hefur verið að færa sig vestur og norður og verð- ur sennilega farinn að sjást reglulega á Austur- landi á næstu árum. Varast þarf Ef hreiður er lokað af og ekki eitrað í það má búast við að fuglaflóin fari að stað í leit að fórnarlambi. Saga starans á Íslandi Guðmundur Óli Scheving skrifar MEINDÝR OG VARNIR Í upplýsingum frá Bruna- málastofnun ríkisins segir að eld- stæði og reykháfar verði að upp- fylla þær reglur og staðla sem í gildi eru á hverjum tíma. Hægt verði að kynda búnaðinn á örugg- an og hagkvæman hátt og að notk- un hans, hreinsun og viðhald hafi ekki í för með sér eldhættu, sprengihættu, eitrunarhættu, óþægindi af völdum reyks eða önnur heilsuspillandi áhrif. Uppfylli staðla og reglur Það eru ekki allar byggingar ein- göngu úr timbri, múrsteinum eða steypu. Í Legolandi er fjöldi bygg- inga úr Legokubbum og skemmti- legt fyrir jafnt unga sem aldna að heimsækja skemmtigarðinn sem staðsettur er á Jótlandi. Hér hefur Taj Mahal verið byggt úr Lego- kubbum og tekist vel til enda hefur verkið sjálfsagt tekið nokkuð lang- an tíma. Ýmsar frægar byggingar sem þessar má finna í Legolandi. Taj Mahal úr Legokubbum Fyrsta janúar á næsta ári er áætlað að þessi glæsti útsýn- ispallur í Miklagljúfri verði opn- aður almenningi. Eins og sjá má skagar pallurinn fram í mitt gljúfrið og gestir horfa niður um 1200 metra ofan í Colorado-ána. Bókstafstrúarmenn í Banda- ríkjunum staðhæfa að gljúfrið sé tiltölulega ungt og hafi orðið til í „stórkostlegum hamförum“ og vísa í „Nóaflóðið“ sem fjallað er um í sjöunda kafla Mósebókar. Sjónarmið sín hafa þeir sett fram á grundvelli Biblíunnar, m.a. í riti um Miklagljúfur, Grand Canyon: A Different View. Bókin er til sölu í þjóð- garðinum og flokkuð undir vís- indi! Flottur útsýnispallur í þjóðgarði Horft ofan í Miklagljúfur

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.