24 stundir - 20.05.2008, Síða 28

24 stundir - 20.05.2008, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 24stundir Danfoss tengigrindur Fyrir neysluvatns-, ofnhita-, gólfhita- og snjóbræðslukerfi og fl. Sérhannaðar fyrir íslenskar aðstæður Áratuga reynsla stjórnbúnaðar við íslenskar hitaveituaðstæður Við erum leiðandi í hönnun og framleiðslu á stjórnbúnaði og tengigrindum fyrir hitakerfi Skútuvogi 6 104 Reykjavík Sími 510 4100 • www.danfoss.is Danfoss hf Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@24stundir.is „Furan hefur reynst vel og krefst ekki jafn mikils viðhalds og margir halda. Það er misskilningur hjá mörgum að harðviðurinn sé við- haldsfrírri því það þarf ekkert minna að bera á hann og jafnvel meira því hann drekkur ekki vörn- ina eins vel í sig. Þegar við hefjum verk kemur fyrir að viðskiptavin- urinn sé tilbúinn með teikningar af því sem hann vill og fái þá tilboð í teikninguna. Oftast er það þó þannig að fólk hefur ákveðnar hugmyndir í huga sem við reynum að útfæra eftir því sem hentar garðinum best,“ segir Guðjón Rúnarsson, húsasmíðameistari og eigandi Sólpalla ehf. Flétturnar dottnar úr tísku Guðjón segir að stílhreint útlit sé vinsælast í dag og minna sé um skraut eins og kubba og fléttur sem tíðkuðust fyrir nokkrum árum. Þá hafi ker og Holtasteinar einnig ver- ið á undanhaldi síðastliðin ár sem sé að hluta til komið til af því að steinarnir séu friðaðir og því æ erf- iðara að nálgast þá. Pláss fyrir einn stól „Minnsti pallurinn sem ég hef smíðað var 5 fm og rúmaði einn stól en þjónaði tilgangi sínum þrátt fyrir smæðina. Mjög algengt er að fólk vilji girða sig af og vera í friði og láti því skjólvegginn ná í kringum húsið sitt. Þar sem sum- arið á Íslandi er stutt skýrir það líklega vinsældir sólpallanna því fólk vill njóta sumarsins í garð- inum sínum. Einnig stækkar sól- pallurinn nýtilegt rými og eykur um leið lífsgæði fólks. Mitt í þessu krepputali er líka athyglisvert að það hefur aldrei verið jafn mikið að gera í sólpallasmíðinni en hugs- anleg ástæða þess gæti verið sú að fólk vill frekar gera notalegt heima við og njóta þess frekar en að kaupa hjólhýsi eða fara til út- landa,“ segir Guðjón. Íslendingar vilja njóta sumarsins í garðinum sínum Aldrei jafn mikið að gera í sólpallasmíði ➤ Ekki er óalgengt að það kostifrá um hálfri milljón og upp úr að smíða pall. ➤ Of þéttir veggir hleypa yfirsig frekar en í gegn og geta þannig myndað meiri vind. ➤ Stílhreint útlit er vinsælast ídag og minna um skraut eins og kubba og fléttur sem tíðk- uðust fyrir nokkrum árum. SÓLPALLURINN Sólpallasmíði er nú kom- in á fullt um allt land en ef vel viðrar er í raun hægt að smíða pall hve- nær ársins sem er. Furan er langvinsælasta bygg- ingarefnið þó að einn og einn velji sér harðvið, t.d. Síberíulerki eða mahóní. Stílhreint útlit Vinsælast í pallasmíði í dag. Sólpallar eru mismun- andi Stærðir og gerðir. Fallega útfært Sturta og pottur. Útfærslurnar Eru ýmsar.

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.