24 stundir - 20.05.2008, Síða 29

24 stundir - 20.05.2008, Síða 29
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 29 Raunveruleikaþættir um fram- kvæmdir í húsnæði hafa um nokk- urt skeið verið mjög vinsælir í Bretlandi. Meðal þeirra má nefna Property Ladder sem sýndir eru á Channel 4 en þáttastjórnandi er Sarah Beeny. Í þáttunum er fylgst með fólki gera upp hús og reyna síðan að selja þau og vill oft mikið ganga á. Svipaðir þættir hafa nú einnig hafið göngu sína hér á landi en nýlega lauk fyrstu þáttaröð af sjónvarpsþættinum Hæðinni sem sýndur var á Stöð 2. Þátturinn sló rækilega í gegn og er spurning hvort hér geti verið um að ræða nýja söluleið fyrir fasteignasölur. Mikill áhugi „Þetta er mjög jákvæð og skemmtileg auglýsing og í kjölfar þess að við fjármögnuðum þáttinn fundum við fyrir því að umferð um heimasíðuna okkar jókst til mikilla muna sem hefur örugglega hjálpað okkur í sölu nú á afar erf- iðum tíma,“ segir Albert Björn Lúðvígsson, sölumaður hjá fast- eignasölunni Húsakaup, sem hefur í sölu eignirnar sem notaðar voru í Hæðinni. Nýlega var haldið opið hús í húsunum þremur og segir Albert að á bilinu 400 til 500 manns hafi mætt til að skoða. Verður að vera raunsær „Margir hafa vissulega áhuga á því að skoða húsin þar sem þeir fylgdust með þáttunum og það sem kom mér mest á óvart var hvað mikið af ungum krökkum hafði haft gaman af þættinum. Í raun og veru snýst þetta síðan um að það þurfa ekki nema þrír af þessum fjölda að hafa áhuga á að kaupa. Áhuginn er töluverður en eins og markaðurinn er núna verð- ur maður að vera raunsær, það gerist ekkert 1, 2 og 10,“ segir Al- bert. maria@24stundir.is Hæðin opnar nýja möguleika í fasteignasölu Mikill áhugi á eignunum Sigurvegarar Hæðarinnar Voru þeir Beggi og Pacas og hlutu þeir tvær milljónir króna í verðlaunafé. Þegar talað er um fjallakofa dettur flestum í hug eitthvað á borð við söguna af Heiðu og félögum eða langar stundir við arineld eftir langan skíðadag. Fjallakofar eru þó ekki allir í snæviþöktum fjöllum og hér sést einn sem stendur í sann- arlega grænu umhverfi í Þýska- landi. Þarna er hægt að æja og þiggja veitingar sem reynist vel fyr- ir þreytta og þyrsta ferðalanga á faraldsfæti. Fjallakofi í grænni laut Matargjafakörfur með ýmiss konar góðgæti eru ekki bara tilvaldar í af- mælisgjafir. Þær geta líka verið sniðugar sem snemmbúnar innflutn- ingsgjafir fyrir þá sem standa á haus við að koma heimilinu í lag áð- ur en flutt er inn. Settu gott kaffi í körfuna með súkkulaði, osti og sultu og jafnvel heimabakað brauð og köku. Þetta ætti að veita kærkomna hvíld frá hefðubundn- um samlokum og gosi. Snemmbúin innflutningsgjöf Venjan er að halda reisugilli þegar lokið er við framkvæmdir eða byggingu nýs húsnæðis. Þá gerir fólk sér glaðan dag og lyftir glasi til að fagna góðum árangri. Skemmti- legur siður og síðan þarf auðvitað að endurtaka leikinn og halda al- mennilegt innflutningspartí þegar flutt er inn. Þó skal hafa í hug að oft er ekki allt frágengið og mik- ilvægt að fara varlega, sérstaklega ef börn eru með í gleðinni. Skálað fyrir góðum árangri KYNNING Fyrirtækið Áltak sérhæfir sig meðal annars í utanhússklæðningum, undirkerfum fyrir utanhússklæðn- ingar, kerfisloftum, kerfisveggjum, innihurðum, brunakerfum og mörgu fleira. Magnús Ólafsson, framkvæmdastjóri Áltaks, segir að það sé mjög algengt að ál sé notað í klæðningar. „Það er bæði fljót- legra, auðveldara og ódýrara. Álið hefur það fram yfir aðra málma að það ryðgar ekki og tærist ekki. Auk áls erum við með kopar og sink en allir þessir málmar eiga það sam- eiginlegt að þeir hafa líftíma í 50- 100 ár, ef allt er gert rétt, án nokk- urs viðhalds. Lakkhúðin sem við notum upplitast ekki og þolir sól- ina sem skemmir allt með tím- anum,“ segir Magnús og bætir við að svo sé álið vitanlega létt. „Ál er eini málmurinn sem mengar ekki ef rignir á húsið og þá skila aðrir málmar snefilefnum með sér í jarðveginn en álið gerir það ekki. Álið er 100% endurvinnanlegt. Ef það er tekið af þá er hægt að setja það allt í endurvinnslu sem er ekki hægt með stálið eða annað slíkt. Álið er því mjög umhverfisvænt.“ Magnús segir að Áltak sé með um 80-90 prósenta markaðshlutdeild. „Við erum fyrst og fremst vinsælir vegna gæða þeirrar vöru sem við erum með og vegna þeirrar þjón- ustu sem við veitum. Við keppum ekki í verði þar sem við erum ekki ódýrastir þegar fermetraverð er skoðað. Hins vegar erum við ódýr- astir þegar verkið er búið. Grindin okkar og efni hefur meiri styrk en annað, hlutur blikksmiðjunnar er minni og þetta telur allt saman þannig að þegar endanlegi vegg- urinn er frágenginn er okkar efni ódýrara.“ svanhvit@24stundir.is Álklæðning „Ef álið er tekið af þá er hægt að setja það í endurvinnslu.“ Algengt er að ál sé notað í klæðningar utanhúss Umhverfisvænt og endurvinnanlegt ál Verslunin Rúmgott · Smiðjuvegi 2 · Kópavogi · Sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16 www.rumgott.is Gel/ethanOl aRineldStæði í SumaRbúStaðinn eða heimilið. ReyKlauS OG lyKtaRlauS byltinG í SVefnlauSnum tilbOðSdaGaR - VaxtalauS lán í 6 mánuði 55 ára Húsgagnavinnustofa rH Frí legugreining og fagleg ráðgjöf um val á heilsudýnum. 20-50% afSláttuR

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.